Morgunblaðið - 31.12.2018, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018
Matthías Jochumsson spyr í Þjóðólfi árið
1874 hvað sé sannur þjóðvilji og svarar:
„Það er almenn framfarastefna í landinu,
bygð á frjálslyndi, viti og réttvísi. Með þess
konar þjóðvilja stendr og fellr velferð og
hamingja vor. Kærir landsmenn! Þjóð vor
er enn skamt á veg komin, ekki einungis í
verkunum, heldr í sannri menntan, sem er
frelsisins andlegi grundvöllr. En allt er
bætt ef andinn lifir, framfaralöngunin, lífs-
kjarkurinn, metnaðurinn, sá stórhugi, sem
gleymir stríðinu en seilist eftir sigrinum.“
Þessi sýn sem séra Matthías setur fram
er grundvölluð á upplýsingarstefnunni og
þeirri framfaratrú sem Framsóknarflokk-
urinn og Samvinnuhreyfingin byggir síðar á
og byggir enn. Tímarnir eru ólíkir en sýnin
hin sama. Sumir segja að tímarnir séu
flóknari nú áður og líta til hinna „gömlu
góðu daga“ með söknuði. Það eina sem
truflar slíka fortíðarþrá er að aðstæður hins
almenna manns hafa aldrei verið betri en
nú. Einfaldleiki fortíðarinnar og hörð lífs-
barátta stenst ekki fjölbreytileika og tæki-
færi okkar tíma þótt að sjálfsögðu megi
gera betur á mörgum sviðum.
Sanngjarnar leikreglur
Samfélagið breytist stöðugt. Við hverja nýja
löggjöf, hverja nýja reglugerð verður breyt-
ing á umhverfi okkar. Íslendingum hefur
auðnast að byggja upp það sem á marga
mælikvarða er fyrirmyndarsamfélag. Mik-
ilvægt er að skapa samfélaginu leikreglur
sem veita öllum jöfn tækifæri til að
blómstra. Við getum öll verið sammála um
að húsnæðiskostnaður er of hár og lægstu
laun of lág. Við þurfum samt sem áður að
rannsaka betur hvort að í samfélagsgerð-
inni eru fátæktargildrur eða hvort fólk
staldrar stutt við á lægstu launatöxtum.
Rannsóknir sýna að Ísland býr við mesta
félagslega hreyfanleika allra þjóða sem þýð-
ir að fólk getur unnið sig hratt upp með
menntun og dugnaði.
Samvinna er lykillinn að framförum
Síðustu ár hafa verið umbrotatími í
stjórnmálum víða um heim: Brexit, forseta-
kosningar í Bandaríkjunum, uppgangur po-
púlista víða í Evrópu og gul vesti eru allt
dæmi um öfgavæðingu samfélaga. Ólíkt
flestum nágrannalöndum okkar var nið-
urstaða síðustu alþingiskosninga ríkisstjórn
sem endurspeglar allt pólitíska litrófið frá
vinstri til hægri og er grunnur að stöð-
ugleika sem við hljótum flest að vera sam-
mála um að sé mikilvægur. Umræðan er
hins vegar oft öfgafull og hlutum snúið á
hvolf: Samvinna er svik, trúnaður er leynd,
bjartsýni er naívismi. Hafi Íslendingar þó
eitthvað að kenna heiminum varðandi
stjórnmál þá er það að samvinna skilar okk-
ur áfram. Við í Framsókn lítum á verkefni
sem þarf að vinna frekar en vandamál sem
þarf að leysa. Samtakamáttur og samvinna
eru lykilinn að því að færa okkur fram á
við. Við horfum á þann góða grunn sem
samfélagið byggir á og styðjum við breyt-
ingar á því sem þarf að laga. Framsókn er
ekki flokkur byltinga, við erum flokkur
framfara sem byggjast á menntun, dugnaði
og hugsjónum.
Við erum ekki margar þjóðir
Við erum fámenn þjóð í stóru landi. Við er-
um ekki margar þjóðir. Hagsmunir okkar
fara að mestu leyti saman þótt stundum
skerist í odda. Nú, eins og áður, er mennt-
un og atvinna grunnurinn að framförum og
auknum lífsgæðum. Framsókn hefur átt
stóran þátt í að byggja það samfélag sem
við búum í. Við getum litið yfir 100 ára sögu
fullveldisins og séð að áhersla flokksins hef-
ur verið á atvinnu, menntun, velferð og
frjálslyndi. Fjölbreytt baráttumál flokksins
hafa til dæmis skilað sjálfsögðum réttindum
feðra til fæðingarorlofs og hjónaböndum
samkynhneigðra.
Tæring fordómanna
Margar þjóðir standa frammi fyrir vanda-
málum sem tengjast því að hópar innan
samfélagsins einangrast og fordómar skjóta
rótum. Mér hefur stundum dottið í hug að
Ísland ætti að vera of lítið fyrir átök og for-
dóma því að í okkar litla samfélagi þarf
mikla orku til að vera illa við einhvern ein-
stakling af því hann tilheyrir einhverjum
sérstökum hópi. Fordómar láta undan við
samtöl og samskipti. Við höfum öll ólík hlut-
verk í samfélaginu og án hvert annars vær-
um við veikari heild.
Skynsemin verður að ráða
Eftir fordæmalausa aukningu kaupmáttar
frá síðustu kjarasamningum spá margir erf-
iðum vetri á vinnumarkaði. Ríkisstjórnin
hefur fundað reglulega, alls fjórtán sinnum,
með aðilum vinnumarkaðarins og þannig
undirstrikað mikilvægi þess að skynsemi á
báða bóga ráði för í komandi samninga-
viðræðum. Það er áríðandi að fólk setjist
niður og komi sér að minnsta kosti saman
um mælikvarða og markmið til að nið-
urstaða náist sem skilar okkur áfram frem-
ur en aftur á bak.
Heiðarleg, sanngjörn og
opin stjórnmál
Spilaborg eða „House of Cards“ er ekki
heimildarmyndaröð um íslensk stjórnmál
þótt sumir virðist líta svo á. Þingmenn
vinna að heilindum að þeim verkum sem
þjóðin hefur kosið þá til þótt stundum fari
einstaka út af sporinu. Mikilvægt er að við
höldum stjórnmálaumræðu okkar heið-
arlegri, opinni og sanngjarnri. Átök í
stjórnmálum og í samfélaginu eru eðlileg
svo lengi sem þau grundvallast á baráttu
hugmynda. Rökræður eru leið samfélaga að
niðurstöðu, að þjóðvilja, eins og Matthías
nefndi það í Þjóðólfi. Þeir eru þó til sem líta
á pólitísk átök sem persónulegar árásir en
sagan sýnir að slíkum mönnum reynast
stjórnmálin og sagan erfið.
Samhljómur í umhverfismálum
Heimurinn stendur frammi fyrir umfangs-
miklum og knýjandi verkefnum þar sem
umhverfismál eru í brennidepli. Stór skref
hafa verið stigin af ríkisstjórn Íslands á
fyrsta starfsári hennar. Það er líka rétt að
hafa í huga að þegar kemur að umhverf-
ismálum er samhljómur í máli flestra
stjórnmálamanna um að sjálfbær þróun sé
lykilatriði. Enginn flokkur er með það á
stefnuskrá sinni að ráðast í frekari upp-
byggingu mengandi stóriðju eða byggingu
risavirkjana. Sá tími er einfaldlega liðinn.
Hagsmunir náttúrunnar eru þáttur í
ákvarðanatöku stjórnvalda en þau eru hins
vegar ekki eini þátturinn því sjálfbær þróun
felur líka í sér efnahagslega og samfélags-
lega þætti sem eru einnig mikilvægir.
Málflutningur sem einkennist af ofstopa
skilar okkur ekki áfram í málum umhverf-
isins frekar en á öðrum sviðum. Líkt og
þegar mokað er ofan í skurði til að end-
urheimta votlendi þarf að moka ofan í skot-
grafirnar í umræðu um umhverfismál til að
ná nauðsynlegum árangri. Það er einfald-
lega ekkert annað í boði en að við hysjum
upp um okkur og tökumst á við verkefnin
framundan. Hér verður skynsemin að ráða
för.
Þau eru falleg tímamótin þegar ár mætir
ári og sólin lengir dvöl sína með okkur dag
frá degi. Hækkar sól, hækkar brá og við
göngum léttum sporum inn í nýtt ár með ný
verkefni. Styðjum hvert annað til góðra
verka og hugsum til orða þjóðskáldsins í
Sigurhæðum: „En allt er bætt ef andinn lif-
ir, framfaralöngunin, lífskjarkurinn, metn-
aðurinn, sá stórhugi, sem gleymir stríðinu
en seilist eftir sigrinum.“
Gleðilegt ár.
„Sá stórhugi, sem gleymir
stríðinu en seilist eftir sigrinum“
Mikilvægt er að við höldum stjórnmála-
umræðu okkar heiðarlegri, opinni og
sanngjarnri. Átök í stjórnmálum og í
samfélaginu eru eðlileg svo lengi sem þau grund-
vallast á baráttu hugmynda.
SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON, SAMGÖNGURÁÐHERRA OG FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS
’’
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon