Morgunblaðið - 31.12.2018, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31. 12. 2018 37
Bára Halldórsdóttir, uppljóstrarinn í Klausturmálinu svonefnda, var boðuð í skýrslutöku í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í desember vegna mögulegs máls sem höfða átti á hendur henni. Mikill
fjöldi fólks mætti í réttinn til að sýna henni samstöðu, og var málinu vísað frá.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bára í héraðsdómi
Handboltakappinn Ólafur Stefánsson tók þátt í verkefni með Reykjavíkurborg í vetur þar sem
íþróttafélög og eldri borgarar voru leidd saman. Hann segir hér eldri borgurum í Krafti í KR
sögur með sínum einstaka hætti, vopnaður leikmunum og hljóðfærum.
Morgunblaðið/Hari
Sögustund með Ólafi Stefánssyni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bandaríska þyrluflugmóðurskipið USS
Iwo Jima II lá við Skarfabakka í október-
mánuði. Vakti koma skipsins töluverða at-
hygli og nýttu margir tækifærið til að
skoða þetta gríðarstóra skip, en það er
257 metra langt og 32 metrar á breidd.
Skipið var hér á landi ásamt nokkrum
öðrum herskipum í tengslum við her-
æfingu Atlantshafsbandalagsins, Trident
Juncture, í októbermánuði, og spunnust
nokkrar umræður um heræfinguna hér á
landi í kjölfarið, sér í lagi hina svokölluðu
vetraræfingu, sem fram fór í Þjórsárdal,
en þar gekk um 400 manna lið land-
gönguliða um 10 kílómetra vegalengd
með fullan herbúnað. Mótmæltu hern-
aðarandstæðingar æfingunni fullum hálsi.
Morgunblaðið/Hari
Risi í
Reykjavíkurhöfn
Kjaradeila hófst í sumar milli
ljósmæðra og hins opinbera
og hófu ljósmæður meðal
annars yfirvinnuverkfall um
miðjan júlí. Efndu ljósmæður
til nokkurra samstöðufunda
og voru þeir vel sóttir. Á end-
anum var deilunni vísað til
gerðardóms, en ekki voru all-
ir sáttir við niðurstöðu hans,
þar sem ekki var fallist á
kröfu ljósmæðra um hækkun
á grunnlaunum, þó að geng-
ið væri að nokkrum öðrum
kröfum þeirra.
Kjaradeila
ljósmæðra
Morgunblaðið/Árni Sæberg