Morgunblaðið - 31.12.2018, Side 43

Morgunblaðið - 31.12.2018, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31. 12. 2018 43 Kanada varð 17. október annað ríkið í heiminum til þess að lögleiða kannabisefni til einka- nota á eftir Úrúgvæ. Samkvæmt kannabislögum landsins er fullorðnum einstaklingum heim- ilt að kaupa allt að 30 grömm af marijúana frá sérstökum söluaðilum. Justin Trudeau for- sætisráðherra hélt því fram að löggjöfin myndi draga úr glæpum og efla forvarnir. Carlos Osorio/Reuters Kannabis lögleitt í Kanada Að minnsta kosti 21 lést í aurskriðum sem herjuðu á bæinn Montecito í Kaliforníuríki hinn 9. janúar. Samkvæmt stjórnvöldum í ríkinu voru meira en 65 heimili eyðilögð og hundruð til við- bótar urðu fyrir skemmdum. Skömmu áður höfðu skógareldar valdið miklum usla í ríkinu og vöruðu sérfræðingar við að eldarnir gætu aukið hættuna á aurskriðum í mörg ár. Jim Wilson/The New York Times Aurskriður í Kaliforníu Lögreglan í New York-borg handtók kvikmyndamógúlinn Harvey Weinstein hinn 25. maí síð- astliðinn. Hann hefur verið sakaður um að hafa beitt meira en 80 konur kynferðislegu ofbeldi. Weinstein var látinn laus gegn tryggingu síðar sama dag, en var seinna ákærður fyrir brot sín. Weinstein lýsti yfir sakleysi sínu í öllum ákæruliðum. Todd Heisler/The New York Times Mógúll leiddur út í járnum 17 manns létust þegar hinn tvítugi Nikolas Cruz hóf skothríð á nemendur við Marjory Sto- neman Douglas-framhaldsskólann í bænum Parkland í Flórídafylki hinn 14. febrúar síðastlið- inn. Þetta var mannskæðasta árásin á skóla í Bandaríkjunum frá árásinni á Sandy Hook- -grunnskólann árið 2012. Umræða um byssulöggjöf hélt áfram í Bandaríkjunum í kjölfarið. Saul Martinez/The New York Times Fjöldamorð á Valentínusardegi Nokkur árangur náðist í deilu al- þjóðasamfélagsins við Norður- Kóreumenn á árinu, og voru tveir merkir leiðtogafundir haldnir með Kim Jong-un, ein- ræðisherra landsins, á árinu. Hinn 27. apríl hitti hann Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, á landamærum ríkjanna tveggja (til hægri). Eftir að þeir tókust í hendur fór Kim yfir landamærin og varð fyrstur leiðtoga Norður- Kóreu til þess að heimsækja Suður-Kóreu. Hinn 12. júní hittust svo Kim og Donald Trump Bandaríkja- forseti og var það fyrsti leið- togafundur ríkjanna tveggja. Báðir fundir leiddu af sér loforð um að fundin yrði lausn á kjarn- orkudeilunni, en í árslok var ekki enn víst hvort og hvernig þau yrðu efnd. Doug Mills/The New York Times Sögulegir fundir með Kim Jong-un Korea Summit Press Pool/The New York Times

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.