Morgunblaðið - 31.12.2018, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018
ERLENDAR SKOPMYNDIR
Hinn 17. janúar féll verðmæti rafmyntarinnar Bitcoin niður fyrir 10.000 banda-
ríkjadali, sem var um 50% fall frá hæsta verðmati myntarinnar í desember 2017.
Bitcoin-myntin, sem var fyrst gefin út árið 2009, er þekkt fyrir miklar verð-
sveiflur. Rafmyntir urðu mjög vinsælar árið 2017 þegar fjárfestar á Wall Street
auk minni fjárfesta í Japan og Suður-Kóreu fóru að sýna þeim meiri áhuga, sem
aftur leiddi til þess að minni spámenn festu fé sitt í Bitcoin. Hagfræðingar töldu
að fall Bitcoin mætti rekja til ótta um að ríkisstjórnir myndu setja bönd á við-
skipti með rafmyntir.
VAN DAM/Landsmeer - Hollandi.
Janúar
Hallar undan Bitcoin-fætinum
Sautján manns, bæði nemendur og kennarar, biðu bana hinn 14. febrúar þegar
hinn 19 ára gamli Nikolas Cruz hóf skotárás við Marjory Stoneman Douglas-
framhaldsskólann í Parkland í Flórídaríki. Cruz hafði verið rekinn úr skólanum
og notaði til voðaverksins hálfsjálfvirkan AR-15 riffil. Árásin vakti upp umræðu í
Bandaríkjunum um löggjöf varðandi byssueign. Landssamtök skotvopnaeig-
enda, NRA, lögðu til að kennarar yrðu vopnaðir til að verjast skotárásum á
skóla, en andstæðingar byssueignar og nemendur við Parkland kölluðu eftir
umbótum. Rick Scott, ríkisstjóri Flórída, undirritaði herta löggjöf um byssueign
í ríkinu þremur vikum eftir árásina.
PARESH/Khaleej Times - Sameinuðu arabísku furstadæmin
Febrúar
Skotárás á skóla kallar á umræður um byssueign
Nærri því 3.000 fulltrúar á alþýðuþinginu í Kína samþykktu nær einhljóða hinn
11. mars að breyta stjórnarskrá landsins þannig að forseti landsins sé ekki
bundinn við tvö kjörtímabil, sem gerir Xi Jinping, forseta Kína, kleift að sitja eins
lengi og hann kýs. Takmarkanirnar á fjölda kjörtímabila voru hluti af þeim breyt-
ingum sem Deng Xiaoping gerði á sínum til þess að tryggja að valdaskipti færu
friðsamlega fram og koma í veg fyrir þá persónudýrkun sem varð á tímum Mao
Tsetung. Xi er einnig aðalritari Kommúnistaflokksins og yfirmaður heraflans, og
eru engar tímatakmarkanir á veru hans í þeim embættum.
HAGEN/Verdens Gang í Noregi
Mars
Xi Jinping að eilífu
Raúl Kastró yfirgaf forsetaembætti Kúbu hinn 19. apríl og batt þannig enda á
nærri sextíu ára valdaferil Kastróbræðra. Þingið útnefndi hinn 58 ára gamla
Miguel Díaz-Canel, fyrsta varaforseta og pótintáta í kommúnistaflokki Kúbu,
sem eftirmann hans. Valið á Díaz-Canel þótti sýna að valdið í landinu hefði
færst til yngri kynslóðar leiðtoga, sem flestir fæddust eftir byltinguna. Þrátt fyrir
að Kastró yfirgæfi forsetastólinn hugðist hann leiða kommúnistaflokkinn fram
til ársins 2021.
HENG/Lianhe Zaobao í Singapúr
Apríl
Raúl Kastró fer úr forsetastóli
KOTRHA/ Trencin – Slóvakíu
Maí
Trump dregur Bandaríkin úr kjarnorkusamkomulaginu
Donald Trump Bandaríkjaforseti vakti óánægju með helstu bandamanna sinna
víðsvegar um veröldina þegar hann tilkynnti hinn 8. maí að hann hygðist draga
Bandaríkin úr kjarnorkusamkomulaginu við Írana. Samkomulagið var und-
irritað í júlí 2015 af ríkisstjórn Barack Obama og fól í sér að viðskiptabanni á Ír-
an var aflétt gegn því að landið samþykkti takmarkanir á kjarnorkuáætlun sinni.
Ákvörðun Trumps var í samræmi við kosningaloforð hans, en Frakkar, Þjóð-
verjar og Bretar tilkynntu að þeir vildu varðveita samkomulagið.