Morgunblaðið - 31.12.2018, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 31.12.2018, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018 Þegar síðari heimsstyrjöld lauk árið 1945 var 51 aðildarríki í Sameinuðu þjóðunum. Nú eru þau 193. Mörg hinna nýju ríkja komu fram eftir baráttu og átök þegar gömul heimsveldi hrundu. Þessi hringrás pólitískrar baráttu heldur áfram í dag. Brexit-kreppan gæti valdið gríð- arlegum efnahagslegum búsifjum fyrir hag- kerfi Írlands og jafnvel ógnað samkomulag- inu sem kennt er við föstudaginn langa. Fólk berst fyrir réttinum til sjálfstjórnar í Kata- lóníu og Baskalandi, sem bæði vilja sjálfstæði frá Spáni, Hong Kong og Palestínu. Um allan heim er barátta þjóða fyrir því að setja sér eigin lög og ákveða samskipti sín við aðrar þjóðir áberandi. en til þess að fólk fái stjórn yfir ákvörðunum sem hafa áhrif á líf þess þurfum við að veita því vald með samningum, samstarfi og samtali. Þegar rík- isstjórnir setja einfalda sómakennd og rétt fólks í öndvegi þegar samið er um átök heimsins fylgir lýðræði í kjölfarið. Það er hins vegar hægara sagt en gert, sérstaklega þar sem þeir sem bera ábyrgð á að fram- fylgja lögunum leggja oft meira upp úr sínum eigin völdum en almannaheill. Þegar ég var unglingur í Belfast gerði ég mér grein fyrir því að jafnaldrar mínir og ég fengum ekki sanngjarna meðferð. Norður- Írland varð til þegar breska stjórnin skipti Írlandi. Fólki var skipt upp eftir trúar- brögðum og ákveðið var að katólikkar væru ótrúir. Okkur var neitað um grundvallarrétt- indi og bjuggum í raun í smáríki aðskilnaðar. Ójafnréttið sem við upplifðum var svo kirfi- lega inngróið í samfélag okkar að það var orðið að stefnu. Þó fannst mér að til að laga ástandið þyrfti aðeins að vekja athygli þeirra sem réðu á því. Þegar þeir áttuðu sig á vand- anum myndu þeir greiða úr honum. Ég áttaði mig brátt á því að fólkið við völd treysti á ójafnréttið til að halda völdum. Þeir væru ólíklegir til að þurrka það út ef það myndi kosta þá ítök sín og allar lausnir yrðu að vera tempraðar þannig að þeir yrðu áfram við völd. Fólk sem er með völd, eða jafnvel tálmynd valda, er tregt til að láta þau frá sér. Meðal þeirra sem eru hinum megin í jöfn- unni – þeir sem bera skarðan hlut – eru margir sem trúa að stöðu þeirra verði ekki breytt. Sumir eru jafnvel tregir til að íhuga að breyting sé möguleg. Sumir óttast breyt- ingar. Sumir eru vanir því að samfélagið sé skipulagt með ákveðnum hætti, jafnvel þegar þetta samfélag beitir það órétti. Sumir eru svo uppteknir af að komast af eða lifa lífi sínu að það hvarflar ekki að þeim að lífið gæti ver- ið öðruvísi. Það verða engar framfarir án pólitískrar baráttu, en til að hún beri árangur þarf að valdefla fólk. Það þarf að eiga hlutdeild í þjóðfélaginu og sínu samfélagi. Það þarf að meta það að verðleikum og virða og verja mennsku þess. Það hefur réttindi sem þarf að virða og ýta undir. Samfélagið þarf að miðast við borgarana og hverfast um þessi réttindi. Veruleikinn er vitaskuld sá að breytingar til hins betra verða sjaldnast af sjálfu sér. Það þarf að hrinda þeim í framkvæmd, semja um þær. Ofbeldi sprettur oft fram þegar fólk heldur að það eigi ekki lengur annað úrkosta. Og sú trú getur orðið ágengari eftir því sem ríki fara út fyrir rétt og lög og beita ofbeldi í auknum mæli til að verja hagsmuni sína. Talið er að árleg útgjöld til hernaðarmála í heiminum séu 1,7 billjónir dollara (210 billj- ónir króna), en útgjöld Sameinuðu þjóðanna og stofnana skyldra þeim eru í kringum 30 milljarðar dollara (3,7 billjónir króna) á ári. Átök nærast á fátækt, arðráni og viljanum til að ráða yfir vatnsréttindum, olíulindum og öðrum náttúruauðlindum. Bretar höfðu háð tugi stríða gegn upp- reisnum áður en þeir sendu hermenn sína á götur Írlands árið 1969. Þeir voru með stefnu, sem hafði verið fest rækilega í sessi, um að lögin væru, eins og Frank Kitson liðs- foringi orðaði það, aðeins „enn eitt vopnið í vopnabúri stjórnvalda … lítið annað en áróð- ursskjól til að losna við illa þokkaða ein- staklinga úr röðum almennings“. Írskum lýðveldissinnum og öðrum tókst að skipta úr átökum til friðar með því að búa til annan kost við vopnaða baráttu og úr varð samkomulag föstudagsins langa. Þar er kveð- ið á um tiltekin réttindi til handa Norður- Írlandi, þar á meðal réttinn til að halda þjóð- aratkvæði um hvort það eigi áfram að vera hluti af Bretlandi eða binda enda á sam- bandið og mynda sameinað Írland. Sam- komulagið varð hægt og bítandi til og kostaði mikla vinnu. Á endanum voru ríkisstjórnir og samningsaðilar tilbúin að taka áhættu auk þess sem stuðnings alþjóðasamfélagsins naut við. Enn er margt ófrágengið. Í átökunum milli spænska ríkisins og sjálf- stæðishreyfingar Baska hefur svipað ferli, sem að miklu leyti hafði það írska að fyr- irmynd, orðið til þess að binda enda á vopnuð átök jafnvel þótt spænsk stjórnvöld hafi enn ekki gefið sig að fullu að málinu. Leiðtogar Sinn Fein hafa oft ferðast til annarra átaka- svæða, þar á meðal Afganistans og Kólumbíu, og lagt áherslu á að samtal, samningar og friðarferli eigi að hafa forgang. Ég hef oftsinnis ferðast til Mið-Austur- landa, heimsótt Gasasvæðið og Vesturbakk- ann og talað við háttsetta leiðtoga í Ísrael og Palestínu. Því miður lifa margir Palestínu- menn við aðstæður örvæntingar án vonar um aðra betri framtíð. Ástæðan er sú að ríkis- stjórnum hefur því miður ekki tekist að virða þjóðarétt og ályktanir Sameinuðu þjóðanna og stjórn Ísraels hefur neitað að verja lýðræðislegar hefðir og gera sanngjarnar málamiðlanir. Fyrir vikið búa Mið-Austur- lönd við stöðug átök. Eigi að breyta þessu þarf að leggja sig fram um að skilja hvað knýr fólk áfram, veit- ir því innblástur og fær það til að taka þær ákvarðanir sem það tekur. Samtalið sem opn- ar fyrir þann skilning mun þegar upp er staðið gefa þeim sem deila afl til að ná sam- an. Hver sá sem sagði að stjórnmál væru list hins mögulega gerði stjórnmál að iðn með- almennskunnar. Það þarf að upphefja vænt- ingar fólks um virði sitt – ekki minnka. Þegar við náum því gerum við lýðræðinu kleift að ná fótfestu jafnvel þar sem öll sund virðast lokuð. ©2018 The New York Times og Gerry Adams Katalónskir bændur ganga til stuðnings atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu árið 2017. Áður en Katalónar fengu kosið um sjálfstæði sitt skoruðu spænsk stjórnvöld á íbúa að sitja heima, gerðu kjörseðla upptæka og hótuðu að loka netinu. Samuel Aranda/The New York Times Ísraelska landamæralögreglan eltir palestínskt ungmenni í átökum við mótmælendur í gamla bænum í Jerúsalem. Friður í Mið-Austurlöndum lætur á sér standa þrátt fyrir viðræður í áratugi. Uriel Sinai/The New York Times Í stað vopna Á meðan fólk um allan heim berst fyrir sjálfstjórn ættum við að hafa hugfast að það voru viðræður, ekki ofbeldi, sem kom Ír- landi á braut til friðar. Gagnkvæmur skilningur skiptir miklu. Hann kostar vinnu en er forsendan að því að ná samkomulagi. GERRY ADAMS hefur verið félagi í írska stjórnmálaflokknum Sinn Fein síðan á sjöunda áratugnum. Hann var einn af höfundum samkomulagsins, sem kennt er við föstu- daginn langa og stuðlaði að því að binda enda á rósturnar á Norður-Írlandi. Hann situr nú á írska þinginu. Hver sá sem sagði að stjórnmál væru list hins mögulega gerði stjórnmál að iðn meðalmennskunnar. Það þarf að upp- hefja væntingar fólks um virði sitt – ekki minnka. TÍMAMÓT: Á BLÓÐUGASTA DEGI 2014 FELLDI ÍSRAELSHER TUGI PALESTÍNUMANNA OG SÆRÐI ÞÚSUNDIR ’’
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.