Morgunblaðið - 31.12.2018, Side 55

Morgunblaðið - 31.12.2018, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31. 12. 2018 55 Eins langt og rekja má aftur hefur pólitísk list skapað vandamál en reynst nauðsynleg þegar upp hefur verið staðið þar sem hún neyðir listina út fyrir þægindarammann og tengir listamanninn við heiminn. Sem listamaður í útlegð hefur það oft hent mig að fara yfir hið mjóa, rauða strik lista- heimsins, ekki vísvitandi heldur vegna þess að pólitískur veruleiki hefur skilgreint líf mitt. En það eru ekki bara listamenn sem þurfa að fást við þessi mörk — þau er að finna hvar sem list og gróði skarast, ávallt þegar listamenn eru togaðir í gagnstæðar áttir, þurfa að gæta jafnvægis milli æðri fagurfræði og viðfangs- efna sem eru hlaðin pólitík og skipta máli. Tökum nýleg mótmæli listamanna, sem voru sakaðir um ónærgætni í kynþáttamálum og að reyna að græða á sársauka svartra, hina umdældu mynd Dana Schutz af Emmett Till, „Opin kista“, eða „Sjálfsmynd“ eftir Luke Willis Thompson af kærustu Philando Castile, sem lögreglumenn drápu. Reiðin veikur erf- iðar spurningar: Hver getur fellt hinn end- anlega dóm þegar listin móðgar? Ættu þeir að axla meiri ábyrgð gagnvart því hvernig list þeirra er tekið þegar henni hefur verið komið fyrir á almannafæri? Ég get deilt með ykkur persónulegri reynslu. Eftir egypsku byltinguna kom ég upp stúdíói til bráðabirgða hjá listasamtökum á staðnum nærri Tahrir-torgi í Kaíró. Ég tók portrett af syrgjandi eldri egypskum körlum og konum á meðan þau lýstu harmi sínum á borð við missi barna sinna sem þau urðu fyrir í byltingunni. Ég vonaðist til að ná hinum mannlegu fórnum sem liggja að baki bylt- ingum sem koma oft harðast niður á fátækustu samfélögunum. Skömmu eftir að þessi ljósmyndasería, „Húsin okkar eru alelda“ frá 2013, var sýnd í sýningarplássi Rauschenberg-stofnunarinnar í New York, samtaka, sem ekki eru rekin í ágóðaskyni og kostuðu verkið í upphafi, birtist grein eftir gagnrýnanda þar sem ég var sak- aður um að ramma inn sorg Egypta fyrir við- skiptagallerí í Chelsea til að vekja samúð og á endanum græða. Augljóst var að hann hafði ekki hugmynd um þá staðreynd að allur ágóði af sölu á netinu rynni til góðgerðastofnana að mínu vali í Egyptalandi. Ég var steini lostinn eftir að hafa lesið gagn- rýnina á „Hús okkar er alelda“ og velti fyrir mér hvort túlkun og ásakanir rýnisins gætu verið réttar. Var ég sekur um að leika mér að tilfinningum fólks til að búa til list? Eða hafði hann rangt fyrir sér með því að mistúlka sann- leikann svo um munaði og sveigja sagnaþráð- inn þannig að hann félli að andófi hans gegn listaheiminum og pólitískum markmiðum? Á hinn bóginn er listin alltaf til staðar hve- nær sem orðið hefur mannlegur missir, átök eða harmleikur. Gildiskerfin eru líka gerólík, sem leggja mat á hvort slík list hefur gildi eða er viðeigandi. Um leið er slík list oft hreinust að inntaki, þegar henni er ætlað að finna skiln- ing í glundroða, eima kjarna úr ringulreið. Tökum sem dæmi hinn heimsfræga, kín- verska andófslistamann, Ai Weiwei. Í mynd- inni „Human Flow“, sem er í fullri lengd, skrá- setti hann hina hrikalegu flóttamannakreppu í heiminum. Fljótt á litið er sérlega lofsvert að velmegandi, viðurkenndur listamaður skuli fara inn í þungamiðju mannlegs og pólitísks harmleiks af þessum toga. Engu að síður get ég ekki að því gert að velta fyrir mér hvað fyr- ir honum vaki og eðli og áhrifa verks hans. Var Ai að nýta sér mannlegan harmleik til þess að draga athygli að sjálfum sér og hagnast á því? Eða hjálpaði verk hans við að vekja athygli á flóttamannavandanum? Hverjir eru áhorf- endur hans og hvernig gæti list breytt ein- hverju í heimi sem hefur verið drekkt í frétt- um og myndum af þessari eymd? Þegar ég fór að rýna í tilgang annars lista- manns með því að takast á hendur mannúðar- verkefni áttaði ég mig á því að ég var ekki svo ólíkur gagrnýnandanum, sem hafði dregið í efa heilindi mín sem listamanns. Ég áttaði mig á því að listamenn í útlegð standa frammi fyrir mótsögn, vegna þess að tilfinningaleg við- brögð þeirra við yfirstandandi hryllingi end- urspegla oft persónulega reynslu þeirra á meðan þau stangast á við það að viðhalda list- rænum ferli, sem hefur komið þeim í forrétt- indastöðu. Kannski býr vandinn í forræðiskerfi okkar þar sem neysluhyggju hins vestræna frjálsa markaðar og vélavirki hans í menningarfram- leiðslu hefur verið gefinn laus taumur í ger- vallri ástundum listar. Og því sem er öðru vísi og í andstöðu við þetta kerfi er annað hvort ýtt til hliðar eða yfirtekið þannig að kerfið virðist opið og umburðarlynt. Það er því í gegnum síu þessarar linsu sem verk listamanna á borð við Ai (sem er lýst sem hinum hugrakka, útlæga listamanni, sem slapp undan harðstjórn heimalandsins) og mig (kúguðu, útlægu, írönsku, múslimsku listakonuna) verða skoðuð og lögmæti þeirra metið. Listaheimurinn virðist hafa rækilega til- einkað sér og fylgt í hugmyndafræðileg fót- spor hagkerfis heimsins undanfarna þrjá ára- tugi og tekur í auknum mæli þátt í svallveislu auðsköpunar og takmarkaðrar dreifingar hans. En nú þegar ættbálkahyggja og þjóð- ernishyggja eru á uppleið ásamt hinni ófrýni- legu ásýnd fasismans er spurningin hvort hinn syfjaði, sjálfhverfi vestræni listaheimur getur líka vaknað úr mókinu. Pólitískt meðvituð, mannúðleg list er nú jafn nauðsynleg og loftið sem við öndum að okkur ef við eigum að lifa af þessa erfiðu tíma. Ann- ars erum við dæmd til að endurtaka í síbylju endalausa hringrás ógnar og mannlegra harm- leikja, jafnvel þótt forræðisöfl listaheimsins hafi áhrif á hverja einustu hreyfingu okkar. Á endanum er það undir okkur listamönnunum komið að ákveða framtíð þessa mjóa, rauða striks og hversu auðvelt verði að fara yfir það — ekki gagnrýnendanna eða markaðarins. ©2018 The New York Times og Shirin Neshat. Benjamin Norman fyrir The New York Times Mona úr myndröðinni Hús okkar er alelda. Shirin Neshat Ahmed úr myndröðinni Hús okkar er alelda. Shirin Neshat Þegar pólitísk list fer yfir strikið Listamenn þurfa frelsi til að skilgreina eigin mörk. SHIRIN NESHAT er íransk-bandarískur sjónlista- og kvikmyndagerð- armaður. En nú þegar ættbálkahyggja og þjóðern- ishyggja eru á uppleið ásamt hinni ófrýnilegu ásýnd fasismans er spurn- ingin hvort hinn syfjaði, sjálfhverfi vestræni lista- heimur getur líka vaknað úr mókinu. TÍMAMÓT: ÁKVÖRÐUN UM AÐ FJARLÆGJA VERK MEÐ FANGELSUÐUM KATALÓNUM Á LISTASTEFNU Í MADRÍD ’’ Opin kista Dana Schutzs sem hér sést á Whitney-tvíæringnum 2017 vakti reiði og mótmæli. Gagnrýnendur sögðu að það væri ekki við hæfi að hvítur liðsta- maður efnaðist á sársauka svartra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.