Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018
2018 með augum
fimm listamanna
Tímamót leituðu til fimm listamanna og báðu þá að velja eitt af sínum eigin lista-
verkum og lýsa með hvaða hætti það væri táknrænt fyrir eða endurspeglaði árið
2018. Svör þeirra fylgja hér fyrir neðan.
©2018 The New York Times
ÁRIÐ ENDURSPEGLAÐ Í LIST
SABA KHAN
„Haltu að þér höndum“
(„Apne Haath, Apne Paas“)
(2018)
Eftir því sem millistéttinni í Pakistan
hefur vaxið ásmegin hefur konum jafnt
og þétt fjölgað á vinnumarkaði. Pakist-
anskar konur eru nú um 22% af vinn-
andi fólki í landinu samkvæmt Al-
þjóðabankanum. Þótt það hlutfall sé
lægra en í öllum grannríkjum Pakist-
ans í Suður-Asíu nema Afganistan er
það engu að síður töluverð breyting í
landi þar sem hefð var fyrir því að kon-
ur ynnu innan veggja heimilisins.
Samfara þessari fjölgun kvenna á
vinnumarkaði er aukin meðvitund um
kynferðislegt áreiti á vinnustöðum. Ár-
ið 2010 voru sett lög sem gerðu áreiti á
vinnustöðum refsivert og þau hjálpuðu
til við að ryðja brautina fyrir #Églíka-
hreyfinguna í Pakistan. Nú svara fórn-
arlömb fyrir sig og nota félagsmiðla
sem tól til að leita réttlætis. Fyrr á
þessu ári var stjórnandi Listaháskóla
Pakistans í Rawalpindi látinn víkja
vegna ásakana um kynferðislega
áreitni. Og í apríl birti Meesha Shafi,
þekkt pakistönsk leikkona og söngv-
ari, tíst þar sem hún hélt því fram að
fyrrverandi samstarfsmaður hennar,
karl sem er poppstjarna og leikari í
Bollywood, hefði áreitt sig kynferð-
islega – ásökun sem hann neitaði.
Verkið mitt – veggteppi unnið úr
pallíettum og perlum upp úr kápum
reyfara á úrdú – er tilraun til að taka á
því hvernig kynferðislegt áreiti veldur
kúgun kvenna í Pakistan eftir sem áður
þótt komið sé árið 2018. Verkefnið
sýnir tvö pör af „sjalvar“, buxum, sem
karlar í Pakistan klæðast iðulega.
Þessar hólkvíðu buxur og sá verkn-
aður að leysa mittisstreng flíkurinnar
hafa verið notuð til að tákna yfirráð yfir
konum í bókmenntum á úrdú og pak-
istönskum kvikmyndum. „Dupatta“,
hefðbundinn hálsklútur sem táknar
hlédrægni kvenna, fellur niður að
tveimur konum. Hvorug þeirra er frjáls
frá samfélagi feðraveldisins. Táknið í
miðjunni segir áhorfandanum að
„halda að sér höndum“ eða „apne ha-
ath, apne paas“ eins og sagt er á úrdú.
Saba Khan
Saba Khan er sjónlistamaður
sem fæst við samspil stéttar, al-
þýðulistar og trúarbragða í Pak-
istan samtímans í verkum sín-
um. Hún er stofnandi
listamannabústaða sem lista-
menn reka við Murree-safnið
og kennir við Listaháskólann í
Pakistan.
„Haltu að þér
höndum“
(„Apne Ha-
ath, Apne Pa-
as“) (2018)/
Saba Khan/
Pallíettur og
perlur á
striga/18
tommur sinn-
um 24/©2018
Saba Khan
Saba Khan