Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 75
Síldarvinnslan hf. er stærsta sjávarútvegsfyrirtækið á Austurlandi. Fyrirtækið
sinnir fjölbreyttri starfsemi en leggur þó megináherslu á uppsjávarveiðar og –
vinnslu. Fyrirtækið var stofnað árið 1957 og á sér athyglisverða sögu. Samstæða
Síldarvinnslunnar hefur nú starfsstöðvar á sex stöðum á landinu og að undanförnu
hefur fyrirtækið lagt áherslu á að endurnýja framleiðslutæki sín og auka fjölbreytni
starfseminnar. Á árinu 2017 öfluðu skip Síldarvinnslusamstæðunnar 163 þúsund
tonna og alls nam framleiðsla landvinnslunnar 105 þúsund tonnum að verðmæti
16,3 milljarðar króna. Heildartekjur fyrirtækisins námu 18,5 milljörðum króna að
frátöldum eigin afla.
Starfsmenn Síldarvinnslusamstæðunnar til sjós og lands eru um 360 talsins.
Launagreiðslur til þeirra á árinu 2017 námu 3,7 milljörðum króna og á því
ári greiddi fyrirtækið og starfsmenn 4,5 milljarða króna til hins opinbera að
meðtöldum veiðigjöldum síðasta fiskveiðiárs. Þar af var greiddur tekjuskattur
1,3 milljarðar króna og veiðigjöld 530 milljónir. Alls nam tekjuskattur starfsmanna
1,2 milljarði króna.
Starfsfólk Síldarvinnslunnar er stolt af góðum árangri fyrirtækisins og áfram verður
haldið að leggja höfuðáherslu á að gera sem mest verðmæti úr þeim aflaheimildum
sem til ráðstöfunar eru. Á árinu sem er að líða hefur Síldarvinnslunni einnig vegnað
vel en á nýju ári birtast ögrandi áskoranir; veiðiheimildir breytast frá ári til árs,
þróun gengis er óviss og einnig vakna spurningar er varða mikilvæga markaði.
Starfsfólk Síldarvinnslunnar mun mæta árinu 2019 með jákvæði hugarfari og jafn
staðráðið og áður í að gera sitt allra besta.
Stjórn og starfsfólk Síldarvinnslunnar hf. sendir öllum
landsmönnum hugheilar jóla- og nýárskveðjur