Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Síða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Síða 16
Æskan býr í ávaxtasafanum Þ að er orðið jólalegt hjá Svanhildi Jakobsdóttur í Fossvoginum. Stæðilegt jólatré í stofunni, skraut á veggjum og konfekt á borðinu. Í sólstofunni stendur sperrtur lítill jólasveinn og bíður þess í ofvæni að klukk- urnar klingi. Frammi á gangi geltir hundur án afláts en eftir að húsfreyja fer til viðræðna við hann steinþagnar hann og tekur ekki meira til máls að sinni. Mögulega hefur henni tekist að sannfæra hann um að gesturinn sé ekki kom- inn til að stela jólunum. Svanhildur upplýsir að þetta sé Chihuahua sem sé alla jafna svolítið hvumpinn en besta skinn og góður félagi. „Ég verð hérna heima um jólin,“ upplýsir Svanhildur, þegar við höfum fengið okkur sæti í stofunni. „Anna Mjöll dóttir mín kemur frá Bandaríkjunum ásamt sínum manni og jóla- hald verður með hefðbundnu sniði hjá okkur. Sonur minn, Andri Gaukur, býr líka vestra en á ekki heimangengt að þessu sinni. Hann er skurðlæknir og fær ekki frí um jólin.“ Kemur til að halda íslensk jól Anna Mjöll, sem er söngkona, hefur búið lengi í Kaliforníu og spurð hvort þau spúsi hennar komi með einhverjar amerískar jólahefðir með sér heim fórnar Svanhildur höndum. „Nei, nei, nei. Hún er að koma heim til að halda íslensk jól.“ Og dóttirin þekkir ekki annað en íslensk jól í Fossvoginum en Svanhildur og eiginmaður hennar heitinn, Ólafur Gaukur tónlistarmaður, byggðu húsið árið 1970. „Ég er að verða búin að búa hér í hálfa öld. Að hugsa sér.“ Þess má geta að eiginmaður Önnu Mjallar, Patrick Leonard, fæst líka við tónlist. „Hann er lagasmiður og píanóleikari og hefur meðal annars samið þekkt lög fyrir Madonnu.“ Ekki svo að skilja að Svanhildur kunni illa við amerísku jólin. „Ég var í hitanum í Arizona um síðustu jól hjá syni mínum og eiginkonu hans og það var ljómandi fínt. Það er alltaf gott að vera í Arizona og hitinn mjög notalegur á þessum tíma árs. Það verður gríðarlega heitt þar á sumrin, til dæmis heitara en í Kaliforníu, en það á ágætlega við mig. Verði hitinn manni um megn kælir maður sig bara niður; það er alls staðar loftkæling. Annars er loftið yfirleitt þurrt og fínt í Arizona, ekki mikill raki.“ Saknar ekki snjósins Spurð hvort jólaveðrið í Arizona sé eins og sumarveðrið á Íslandi svarar Svanhildur. „Nei, það er hlýrra, alla vega en í Reykjavík. Kannski er þetta eins og á Akureyri,“ segir hún brosandi. „Fólk fékk að minnsta kosti sumar þar að þessu sinni, meira en sagt verður um okkur hérna á suðvesturhorninu.“ Í þessu ljósi kemur ekki á óvart að Svanhild- ur sakni hvorki kuldans né snjósins núna á að- ventunni. „Veðrið hefur verið fínt upp á síð- kastið. Að vísu svolítill vindur en ágætlega hlýtt. Snjórinn má alveg láta sjá sig á að- fangadagskvöld – að því gefnu að hann fari strax aftur!“ Hún hlær. Eðli málsins samkvæmt fer Svanhildur mik- ið til Bandaríkjanna að heimsækja börnin og barnabörnin tvö og stoppar þá í tvær til þrjár vikur í senn. Fátt þykir henni skemmtilegra en að keyra á milli Kaliforníu og Arizona en það tekur sjö klukkutíma. „Við skiptumst á að keyra, klukkutíma í senn, og það er alltaf jafn gaman að fara í svona „road trip“ eins og það er kallað, keyra í gegnum litla bæi og stoppa í vegasjoppunum sem allar hafa sinn sjarma.“ Heimurinn hefur minnkað Anna Mjöll og Andri eru líka duglega að koma heim að heimsækja móður sína sem er löngu orðin vön því að hafa þau ekki í næstu götu. „Við sjáumst þónokkuð oft. Heimurinn hefur minnkað svo rosalega. Þetta hefði aldrei verið hægt á árum áður, þá varð fólk að láta sendi- bréfin duga og símakostnaður var mikill. Það eru að vísu svolítil vonbrigði að WOW skuli ætla að hætta að fljúga beint til Kaliforníu en við því er ekkert að gera. Nóg er víst flug- framboðið í dag.“ Sjálf bjuggu Svanhildur og Ólafur Gaukur um tíma í Bandaríkjunum, meðan hann var þar í kvikmyndatónlistarnámi á níunda ára- tugnum og þar féllu börnin fyrir landi og þjóð. Og móðirin á síður von á því að þau flytji aftur heim til Íslands. „Það kæmi mér á óvart en enginn veit sína ævina ...“ Í gegnum tíðina hefur oft verið erilsamt við söng hjá Svanhildi á aðventunni en þetta árið fær hún alveg frí. „Í hittifyrra vorum við Anna Mjöll saman með jólatónleika í Salnum í Kópa- vogi og í fyrra kom ég fram á jólatónleikum Friðriks Ómars í Hörpu en hef það bara náð- ugt þessi jólin. Næst kem ég fram ásamt mörgum fleirum á tónleikum með Vest- mannaeyjalögum í Hörpu 26. janúar. Sjálf tengist ég Vestmannaeyjum ekki fjölskyldu- böndum en hef verið svo lánsöm að hafa fengið að flytja lögin hans Oddgeirs Kristjánssonar nær alla ævina. Þau eru löngu orðin sígild. Það er alltaf fullt hús á þessum tónleikum og mikil gleði og stemning.“ Ætlaði að kenna leikfimi Henni þykir alltaf jafn gaman að koma fram og syngja. „Ég vona að ég hætti aldrei að vera viðloðandi tónlist enda þótt ég sakni þess ekki að syngja á dansleikjum sex kvöld í viku. Það var gaman að fá að taka þátt í því á sínum tíma en í dag nægir mér alveg að koma fram endr- um og sinnum.“ Þau Ólafur Gaukur voru gift í fjöldamörg ár og störfuðu alla tíð saman. Spurð hvort hann hafi strax séð í henni söngkonu svarar Svan- hildur: „Ég held hann hafi vonað það. Það gat komið sér vel að vinna saman. Gaukur kenndi mér að syngja og það var alla tíð einkar gott að vinna með honum.“ – Var hann kröfuharður kennari? „Nei, alls ekki. Hann gat þó stundum verið svolítið óþolinmóður.“ – Sástu fyrir þér sem stelpa að þú ættir eftir að starfa alla ævina við söng? „Almáttugur, nei. Mamma kenndi leikfimi og ég ætlaði alltaf að feta í hennar fótspor. Ég var mikið í íþróttum á yngri árum og sýndi meðal annars fimleika. En lífið er alveg óút- reiknanlegt. Hafandi sagt það er ég ákaflega glöð að ég skuli hafa lagt sönginn fyrir mig; þetta hefur verið og er voðalega gaman.“ Heimilislegt að vera þekkt Söngvarar fá sinn skerf af athygli en Svanhild- ur segir það aldrei hafa truflað sig. Þvert á móti. „Eftir að sjónvarpið kom til sögunnar fór fólk að þekkja mann en við vorum töluvert þar í árdaga. Mér hefur alltaf fundist gaman þegar fólk þekkir mig og heimilislegt þegar ókunnugir gefa sig á tal við mann og víkja ef til vill að manni fallegum orðum. Annars lít ég ekki svo á að fólk sé frægt á Íslandi, en það getur verið þekkt.“ Hjónin gerðu allnokkra þætti fyrir Sjón- varpið á þessum tíma en aðeins einn þeirra hefur varðveist. Svanhildi þykir það miður enda var mikið í þættina lagt og til þeirra vandað. En fé var af skornum skammti og menn sífellt að spara spólurnar. Því fór sem fór. „Það glötust allskonar heimildir af þessum sökum. Ekki bara þessir þættir, heldur marg- víslegt annað. Sem er synd.“ Svanhildur og Ólafur Gaukur lifðu árum saman á því að leika fyrir dansi; á höfuðborg- arsvæðinu á veturna og á sumrin var farið kringum landið. Sú ballmenning heyrir nú sög- unni til, „gufaði bara upp“, eins og Svanhildur orðar það. „Auðvitað var gaman að kynnast landinu en þetta var líka strembið; að ferðast um á malar- vegum sem hristu bílinn nánast í sundur. Við Gaukur gátum lengi vel á eftir ekki hugsað okk- ur að fara út á land í frí. Annars vandist þessi ferðamáti svo sem ágætlega, maður þekkti ekk- ert annað. Ég var til dæmis búin að ná býsna góðum tökum á því að lesa í bílnum – enda þótt hann hossaðist svona. Þessar tónleikaferðir gengu alltaf mjög vel og ég get því miður ekki deilt neinum hneykslissögum með þér.“ Hún skellir upp úr. Gaman að fá að vera með Svanhildur á ekki síður góðar minningar úr bænum, eins og frá Hótel Borg, þar sem þau léku um árabil, og ekki síður Lídó. „Ég hugsa alltaf mjög hlýlega til Lídó enda byrjuðum við þar. Lídó stóð þar sem síðar var Tónabær og nú allra síðast skrifstofur Fréttablaðsins.“ Svo yngri lesendur séu upplýstir. Spurð hvort hún sakni einhvers frá þessum tíma hristir Svanhildur höfuðið. „Nei, ég sakna ekki neins. En það var gaman að fá að vera með – og vera með ennþá.“ Margir þekkja Svanhildi líka sem útvarps- konu en þáttur hennar, Óskastundin, er á dag- skrá Rásar 1 á föstudagsmorgnum. „Það kom þannig til,“ rifjar hún upp, „að Ólafur heitinn Þórðarson í Ríó Tríó hafði samband við mig og bauð mér starf. Hann vann þá á Útvarpinu. Ég kann það ekkert, svaraði ég, en Ólafur hlustaði ekki á þá röksemdafærslu. Sagði þetta ekkert mál og að við skyldum prófa þetta í eitt ár. Það var árið 1988 og ég er þarna enn. Þetta kom til mín eins og annað. Allt hefur komið til mín í líf- inu og fyrir það er ég afskaplega þakklát.“ Hefur hlutverki að gegna Svanhildur segir virkilega skemmtilegt að vinna á Útvarpinu og kynnast öllu því góða fólki sem þar starfar og hefur starfað gegnum tíðina. „Þessi tími hefur liðið mjög hratt og ég trúi því varla að ég eigi orðið þrjátíu ára starfs- afmæli í útvarpi. Mér finnst Ríkisútvarpið allt- af hafa hlutverki að gegna og það er margt áhugavert á dagskrá Rásar 1. Áhersla er lögð á vandað efni sem unnið er af góðu og hæfi- leikaríku fólki sem veit hvað það er að gera.“ Tæknin í útvarpi hefur tekið miklum breyt- ingum á þessum þrjátíu árum og enda þótt Svanhildur Jakobsdóttir, söng- og útvarpskona, er komin í jólaskapið enda þótt hún sé aldrei þessu vant hvergi að syngja fyrir þessi jólin. Henni þykir alltaf jafn gaman að koma fram enda þótt hún sakni þess ekki að syngja á dansleikjum sex sinnum í viku eins og forðum daga. Hún ljóstrar einnig upp um galdurinn á bak við það að hún virðist ekki eldast. Ábyrgðina á því ber vél sem hún geymir í eldhúsinu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Svanhildur Jakobsdóttir kveðst hafa gaman af því að flytja jólalög en hún fari þó aldrei í neinar sérstakar stellingar af því tilefni á aðventunni. VIÐTAL 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.