Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Blaðsíða 26
Eva Dögg Jafetsdóttir og Álf-heiður Björk Sæberg Heimis-dóttir héldu af stað í heims- reisu í lok júní ásamt tveimur börnum sínum, Sindra og Söru. Núna er fjölskyldan stödd á eyjunni Boracay á Filippseyjum þar sem hún kann vel við sig en áfangastaðirnir á undan því hafa verið nokkrir. „Við byrjuðum á að vera mánuð í Taílandi og fórum til Bangkok, Chi- ang Mai, Pattaya og aftur til Bang- kok. Þaðan skelltum við okkur til Ví- etnams og dvöldum þar í rúmar fimm vikur. Við fórum til eyjunnar Pho Quoc, Ho Chi Minh, Hoi An, Danang, Hue, Phong Nha, Halong- flóa og Hanoi,“ segir Eva en planið var að fara frá Hanoi til Japans og vera þar í tvær vikur. Fellibylur hafði áhrif Fellibylur setti hinsvegar strik í reikninginn og fluginu var aflýst. „Við tókum því skyndiákvörðun og skelltum okkur til Seúl í Suður- Kóreu. Þaðan fórum við svo til Tókýó í Japan en stoppuðum styttra en við hefðum viljað. Frá Japan fórum við til Filippseyja og upplifðum stór- borgina Manila sem og strandlengj- una í Batangas en hápunkturinn var klárlega eyjan Boracay sem við urð- um ástfangnar af,“ segir hún. Frá Filippseyjum var ferðinni heitið til Siam Reap í Kambódíu þar sem þær dvöldu í nokkra daga og því næst slá leiðin til Battambang og svo aftur til Siam Reap þar sem pabbi hennar Álfheiðar og konan hans komu til þeirra. „Við fórum öll saman til Kho Lak í Taílandi og áttum þar góðar stundir saman. Þegar þau fóru heim fórum við til Patong á Phuket. Eftir nokkra slökunardaga þar tókum við á móti mömmu og pabba hennar Evu og skelltum okkur með þeim til eyj- unnar Koh Lanta í Taílandi. Við kvöddum þau eftir skemmtilega daga og flugum til Singapúr þar sem við gistum eina nótt áður en við héld- um ferðalaginu áfram aftur til Bora- cay,“ segir Álfheiður en þá voru þær búnar að ferðast um í fimm mánuði. „Nú höfum við verið á Boracay í rúman mánuð og planið er að dvelja hér um óákveðinn tíma en jafnframt halda ferðalögunum áfram enda margt sem við eigum eftir í Asíu,“ segir Eva. Menning, lærdómur, skemmtun og samvera Þær lögðu upp með fjórar megin- áherslur fyrir ferðalagið; menningu, lærdóm, skemmtun og samveru. Hefur það gengið eftir? „Það hefur svo sannarlega gengið eftir. Við höfum verið í mikilli keyrslu og lagt upp með að upplifa það helsta í hverri borg sem við sækjum heim. Við nýtum hvert tæki- færi til lærdóms og reynum eftir fremsta megni að taka þátt í menn- ingunni. Við skemmtum okkur vel saman og reynum ávallt að líta á björtu hliðarnar en það getur stund- um verið áskorun á svona ferðalagi enda margt sem getur farið á annan veg en maður planar. Við njótum þess að vera saman og þetta hefur styrkt okkur sem fjölskyldu og vini. Það eru algjör forréttindi að fá að vera svona mikið saman og við mun- um öll búa að því alla ævi,“ segir Eva. Hvað hefur verið mesta ævin- týrið fyrir börnin í ferðinni? „Þau eru að sjálfsögðu óteljandi ævintýrin en þegar við rifjum upp saman og spjöllum um ferðina þá koma nokkur atriði upp. Við elsk- uðum til dæmis öll að fara í sigl- inguna í Halong-flóa. Þar gistum við í tvær nætur á ótrúlega flottu skipi, fórum meðal annars á kajak og í ka- rókí, fengum að stýra skipinu og kynntumst góðu fólki,“ segir hún. Risaeðlur í stofunni „Við megum líka til með að nefna dvölina okkar í Manila en þar hittum við Rúnar frænda hennar Álfheiðar og í gegnum hann kynntumst við og fengum að gista hjá vini hans. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að gista á stað sem geymir beinagrindur af alvöru risa- eðlum í stofunni. Hue í Víetnam, borg sem við bara svona óvart stopp- uðum í, en við heilluðumst mikið af henni. Við ætluðum að vera þar í tvær nætur er enduðum á að vera þar í tíu. Þar gátum við fengið hjól með barnastól sem er frekar erfitt hérna í Asíu. Við nutum þess í botn að ferðast um á hjóli. Við hjóluðum borgina endilanga sem og í sveitina. Svona gætum við samt talið enda- laust upp enda er í raun sérhver dag- ur ævintýri út af fyrir sig og okkar mottó er að lifa hann til fulls,“ segir Eva. Hvað hefur verið mesta ævintýrið fyrir ykkur fullorðna fólkið? „Mesta ævintýrið fyrir okkur er klárlega dvölin á Boracay. Við urðum gjörsamlega heillaðar af eyjunni, gullfallegar strendur, sandurinn eins og hveiti og fólkið svo viðkunnanlegt. Við erum svo þakkátar öllu góða fólkinu sem við höfum kynnst á leið- GettyImages/iStockphoto Hefur styrkt fjölskylduböndin Jólahátíðin verður öðruvísi í ár hjá Evu Dögg Jafetsdóttur og Álfheiði Björk Sæberg Heimisdóttur og börnum þeirra tveimur, Sindra og Söru en þau halda jólin á eyjunni Boracay á Filippseyjum. Fjölskyldan hefur verið í heimsreisu frá því í júnílok. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is „Við urðum gjörsamlega heillaðar af eyj- unni, gullfallegar strendur, sandurinn eins og hveiti og fólkið svo viðkunnan- legt,“ segir Álfheiður um Boracay. Álfheiður Björk og Eva ásamt börnunum Söru og Sindra við stóru Búdda- styttuna sem er á stærstu eyju Taílands, Phuket. 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2018 FERÐALÖG laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Sjóðheit steypujárnssending Lodge járnpanna, 26 cm Verð 9.500 kr. Gildir á alla viðburði í húsinu Nánar á harpa.is/gjafakort Gjafakort Hörpu hljómar vel um jólin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.