Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Blaðsíða 31
Trump hefur svolítið skrítinn hátt á að umgangast
sína bandamenn. Jafnvel eftir tæp 2 ár í Hvíta húsinu
lætur hann enn eins og hann búi ekki þar, en eigi enn
heima á 58. hæð í Trumpturni í N.Y. og honum sem
formanni húsfélagsins dugi að láta fyrirmæli frá efstu
hæðinni í póstkassana á næstu 57 hæðum fyrir neðan.
Þegar Macron, sem virtist í þessu tilviki búa smátt
mörgum hæðum neðar, fékk fjölritið um heimköllun
2.000 bandarískra hermanna var honum brugðið og
fordæmdi ákvörðunina. Forsetinn var einmitt þá að
stofna Evrópuherinn sem varist gæti Kína, Rússlandi
og Bandaríkjunum. Þessi herafli er svo sem eins og
þriðjungur þess sem siglir um á einu bandarísku flug-
móðurskipi um heimshöfin.
Hvaða her?
En það sem meira var, að Macron herstofnandi hafði
ekki einu sinni mannskap til að verja eigin höfuðborg
fyrir fáeinum heimamönnum í endurskinsvestum,
sem segja forsetann hafa gleymt sér og þessum
venjulegu Frökkum sem stundum eru kallaðir sál
þessa lands.
Hverjir eiga að vera í þessum Evrópuher, með leyfi
að spyrja? Mesta herveldi ESB og annað kjarnorku-
veldi þess af tveimur, Bretland, er á leiðinni út. Fjöl-
mennasti her álfunnar tilheyrir ekki ESB og leiðtogar
ESB hafa lengi haft í flimtingum „að auðvitað fái
Tyrkland inngöngu í ESB, en þó ekki fyrr en næst á
eftir Suður-Kóreu“.
Næstburðugustu þjóðirnar á eftir tveimur stærstu,
Ítalir og Spánverjar, eru í verulegum efnahagslegum
vandræðum. Og jafnvel enn verri stjórnskipulegum.
Spánn hefur Hæstarétt landsins sem fyrsta dómstig í
snúningum fyrir stjórnvöld og hefur sá frómi réttur
nú haldið fjölda manns í fangelsi á annað ár grunaða
um að í þeim blundi draumar um sjálfstæði Katalóníu!
Þeir fangelsuðu geta ekkert áfrýjað þessum héraðs-
dómsúrskurði því Hæstiréttur afgreiddi sjálfur þessa
pöntun.
Verður Ítalía með?
Þá er það Ítalía. Það land er algjörlega ófært um að
sjá um ytri landamæri ESB af sinni hálfu eins og
dæmin sanna. Hvaða verkefni á það að hafa í Evrópu-
hernum?
Bréfritari kom eitt sinn til Ítalíu frá landi utan
Schengen. Hann ákvað að gera smákönnun á landa-
mæravörslunni. Hann fékk vegabréf konunnar lánað
eins og fyrir mistök. Landmæraverðirnir tveir sátu í
glerbúri og virtust rífast um fótbolta af töluverðum
hita. Sá sem hafði bréfritara til athugunar opnaði
vegabréfið á þeim stað þar sem mynd konunnar var.
Hún er lagleg og ljósskolhærð. Þeir sem til þekkja
vita að hvorugt á við bréfritara, auk þess sem afger-
andi munur er á kynferði.
Vörðurinn horfði á myndina og svo á manninn fyrir
framan sig. Stimplaði svo í vegabréfið og afhenti það.
Þar sem konan var fáeinum skrefum frá var vegabréf-
inu kastað til hennar með sveiflu. Hún gekk að
búrinu, afhenti bréfið og fékk annan stimpil við hlið-
ina á hinum. Schengen lifandi komið. Gangi Macron
vel að búa til Evrópuher sem verður fær um að verj-
ast Kína, Rússlandi og Bandaríkjunum. Hann lætur
vonandi vita af því þegar verkinu er lokið.
Meinlegt muldur
En í Bretlandi eru þeir ekki komnir fyrir vind með
brexitvandræðin. Einhver taldi sig hafa heyrt May
muldra „brexit þýðir ekki lengur brexit“ en er þó
sennilega flökkusaga.
En muldur og jafnvel minna en það er þó ekki gam-
anmál. Það veit Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, núna, hafi hann ekki vitað það áður.
Hann var sakaður um það í vikunni að hafa kallað
fram í ræðu Theresu May „stupid woman“ sem væri
brot á ákvæðum Me too-stjórnarskrárinnar.
Reyndar var ásökuninni breytt því ekkert þess
háttar heyrðist í upptökutækjum þingsins.
En þingmenn Íhaldsflokksins, sem sitja á bekkj-
unum öndvert, sögðust hafa séð Corbyn segja þennan
dónaskap við May og framið með því kynferðislega
árás.
Og þegar búið er að segja manni hvað Corbyn á að
hafa sagt, þótt það heyrðist ekki, og horft er á skjá frá
atvikinu, þá verður ekki betur séð en að hann segi
„stupid woman,“ karlálftin.
Nú hefur verið upplýst að hefði May verið staðin að
því að segja „stupid man“ án þess að það heyrðist, þá
hefði ekkert verið hægt að finna að því. Ástæðurnar
séu einkum þær að konur séu enn í minnihluta í
þinginu, þótt úr mun dragi, og svo sátu allmargir karl-
ar á bekknum hjá Corbyn svo ekki hefði verið hægt að
fullyrða að átt hefði verið við hann og þar fram eftir
götunum.
Nú hafa a.m.k. 4 viðurkenndir varalesarar staðfest
að Corbyn hafi sagt „stupid woman“ en hann þver-
neitar og segist hafa sagt „stupid people“ og því óljóst
við hvern hann á. Kannski þá sem greiddu brexit at-
kvæði (eins og almennt er talið að Corbyn hafi gert
sjálfur) eða hina. Kannski hefur hann verið að for-
dæma bresku þjóðina sem heild. Og það mun engin
kynferðisleg áreitni felast í því og breytir þá engu
hvers kyns það orð er, t.d. á íslensku.
En varalesarar og þrautavaralesarar segja að þeir
myndu aldrei ruglast á orðinu woman og people enda
séu geiflur þessara orða jafn ólíkar og orðanna Cor-
byn og May. Langlíklegast er því talið að Corbyn hafi
verið að tala við sjálfan sig í huganum fyrst hin vönd-
uðu tæki námu ekkert og þá hreyft varirnar eins og
ósjálfrátt.
Er eitthvað til enn?
Bréfritari sat í forsætisráðherrastól Alþingis flesta
hvunndaga nokkuð á 14. ár samfleytt og myndavél
„var á honum“ allan þann tíma. Oftast sat hann þegj-
andi og hlustaði á hina 62 þingmennina og þótti, í
þennan hóp sagt, ekki alltaf tímanum vel varið. Bréf-
ritari hefur þó örugglega hugsað sitt þar sem hann sat
„í mynd“ og þykist viss um að fæst af því hefði verið
bannað fyrir börn eða viðkvæma.
En í gær hefði bréfritari hrokkið upp með andfæl-
um hefði hann verið sofandi þegar það flaug að honum
að hann væri kannski, án þess að vita það, með cor-
bynheilkennið heimsfræga og hreyfði varir sínar óaf-
vitandi þegar verst gegndi.
Kannski væri því öruggast að fá lögfróðan til þess
að krefjast lögbanns við því að varalesarar legðust
yfir þessi bönd fyrr en eftir að bréfritari væri allur
eða að allir væru búnir að gleyma honum, eftir því
hvor tíminn reyndist lengri.
Allur er varinn góður þegar varalesarar leggja úr
vör sagði Jón þaðan.
Morgunblaðið/Hari
23.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31