Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Blaðsíða 18
VIÐTAL
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2018
Þ
eir eru fáir jarðarbúar sem eytt
hafa áramótum um borð í skipi við
Suðurskautslandið en það er ein-
mitt það sem Hafdís Hanna Ægis-
dóttir hyggst gera. Það styttist í
brottför og spennan eykst en aðdragandinn
hefur verið langur. Hafdís Hanna, sem er for-
stöðumaður Landgræðsluskóla Háskóla Sam-
einuðu þjóðanna, er líffræðingur í grunninn en
tók síðar doktorspróf í plöntuvistfræði.
„Í meistaranáminu var ég m.a. að skoða
hvernig háfjalla- og heimskautaplöntur svara
snöggum umhverfisbreytingum og í doktors-
náminu var ég að skoða háfjallaplöntur í Ölp-
unum. Þegar ég kom heim úr námi erlendis
sótti ég um starf hjá Landgræðsluskólanum því
það sameinaði svo margt sem ég hafði áhuga á.
Þar fór ég yfir í meiri stjórnun í stað rann-
sókna,“ segir Hafdís Hanna og bætir við að
námið tengi hana óneitanlega við Suður-
skautslandið.
Blaðamaður sér ekki fyrir sér plöntulíf á suð-
urpólnum en Hafdís Hanna er með svar á
reiðum höndum.
„Það eru tvær tegundir blómplantna á Suð-
urskautslandinu, þar á meðal ein grastegund.
Svo finnast einnig þónokkrar mosategundir
þar. En þetta er vissulega ekki fjölskrúðugt
plöntulíf,“ segir hún en nefnir að þarna sé heil-
mikið dýralíf.
„Á Suðurskautsskaganum eru mörgæsir og
margar aðrar tegundir sjófugla, hvalir og selir.
Flest dýranna eru sumargestir og það er sum-
ar núna á Suðurskautslandinu,“ segir Hafdís
Hanna og segist hlakka mikið til að fylgjast
með dýrunum. Hún býður blaðamanni upp á
rjúkandi heitt latte sem er vel þegið á óveðurs-
morgni. Við höfum það notalegt og á meðan
hvín í vindi og rigning lemur rúðurnar ræðum
við starf hennar og fyrirhugaða ævintýraferð
til Suðurskautslandsins.
Breiða út þekkingu
Við hefjum spjallið á starfi Hafdísar Hönnu
sem forstöðumanns Landgræðsluskólans sem
hún hefur gegnt í áratug. Starfið hefur leitt
hana víða um heim, m.a. til Mongólíu, Níger,
Lesótó og Úganda, en skólinn hefur tekið á
móti mörgum nemum frá fyrrnefndum löndum
og sinnt ýmsum öðrum verkefnum.
„Það eru fjórir skólar í tengslum við Háskóla
Sameinuðu þjóðanna hér á landi, Landgræðslu-
skólinn, sem ég stýri, Sjávarútvegsskólinn,
Jarðhitaskólinn og Jafnréttisskólinn. Þessir
skólar sérhæfa sig allir í að byggja upp hæfni
einstaklinga og stofnana í þróunarlöndum og
erum við styrkt af íslenska ríkinu í gegnum al-
þjóðlega þróunarsamvinnu. Landgræðsluskól-
inn er hýstur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands
í samstarfi við Landgræðslu ríkisins. Við bjóð-
um hingað fólki frá þróunarlöndum í sex mán-
aða nám, frá mars til september. Nemendurnir
eru allir starfandi sérfræðingar í sínum heima-
löndum. Þeir vinna hjá þarlendum stofnunum,
t.d. háskólum, rannsóknarstofnunum, frjálsum
félagasamtökum og ráðuneytum, ásamt öðrum
opinberum aðilum. Þetta er allt fólk með há-
skólagráður sem fær leyfi frá sinni vinnu til að
koma til Íslands og afla sér þekkingar í land-
græðslu og sjálfbærri landnýtingu,“ segir hún.
„Svo fara þau aftur heim og nýta þekk-
inguna. Við erum að byggja upp færni ein-
staklinga og stofnana til að takast á við þessar
stóru áskoranir sem blasa við í dag. Í okkar
samstarfslöndum í Afríku og Mið-Asíu tengist
landeyðing og ósjálfbær landnýting fátækt og
fæðuframboði. Það er ekki hægt að rækta jafn
mikinn mat á landi sem hefur blásið upp og
misst frjósemi sína og á landi í góðu ástandi.
Svo tengist þetta líka loftslagsmálum mjög
mikið,“ segir Hafdís Hanna og segir að Ísland
hafi sérstöðu hvað varðar þekkingu á þessu
sviði.
„Við höfum yfir hundrað ára reynslu hér-
lendis í landgræðslu. Landgræðslan, sem hét
reyndar Sandgræðslan í upphafi, var stofnuð
1907. Þá var ástand landsins afar slæmt. Á
Rangárvöllum þurftu bændur t.a.m. að yfirgefa
jarðir sínar vegna sandfoks. Þá voru sett lög og
Sandgræðslan stofnuð. Við erum ennþá að læra
og eigum langt í land við að bæta landgæði hér-
lendis en við höfum öðlast góða reynslu og
þekkingu, bæði af því sem vel hefur farið og því
sem betur mætti fara,“ segir Hafdís Hanna.
Hún segir þau hjá Landgræðsluskólanum
einnig læra heilmikið af erlendu nemunum og
þau hvert af öðru. „Þetta er heilmikil áskorun
fyrir þau að vera hér í sex mánuði og þetta er í
raun leiðtogaþjálfun í leiðinni. Þau þurfa að
læra að koma fram og tileinka sér gagnrýna
hugsun,“ segir hún.
„Svo leggjum við mikla áherslu á kynjajafn-
rétti og erum með sérstaka jafnréttisstefnu.
Við bjóðum alltaf jafn mörgum konum og körl-
um hingað. Það skiptir miklu máli einkum
vegna þess að það eru oft konur sem vinna við
að rækta landið, t.a.m víða í Afríku,“ segir hún.
„Þessi sex mánaða námskeið eru grunnurinn
í okkar starfi en við höldum líka 1-2 vikna nám-
skeið erlendis og getum þá þjálfað fleiri,“ segir
hún.
Hafdís Hanna segir að von sé á tuttugu
manns á næsta ári í sex mánaða nám Land-
græðsluskólans.
„Við viljum svo að þau beri út boðskapinn
þegar þau koma heim til sín. Við fylgjum okkar
nemum vel eftir og erum í mjög góðu sambandi
við þau eftir að þau fara héðan,“ segir hún og
bætir við að starfsfólk skólans heimsæki oft
fyrrverandi nemendur í vinnuferðum til sam-
starfslanda.
„Það er mjög gaman að sjá hvað þau hafa
eflst mikið, komið af stað verkefnum sjálf, feng-
ið styrki til að græða upp landið og hafa jafnvel
haft áhrif á stjórnvöld varðandi stefnumótun í
landgræðslu. Við höfum séð mjög margt spenn-
andi og gott. Við sjáum árangur, svo sannar-
lega.“
Æskudraumurinn rætist
Það kemst fátt annað að þessa dagana hjá
Hafdísi Hönnu en undirbúningur ferðarinnar
á Suðurskautslandið. Upphafið að ævintýrinu
var þannig að Hafdís Hanna frétti af leiðtoga-
prógrammi sem ber nafnið Homeward Bound.
„Ég frétti af þessu fyrir nokkru frá prófessor
sem ég hitti á fundi erlendis og sá að hún var að
fara til Suðurskautslandsins og varð strax þá
mjög spennt. Það hefur alltaf verið draumur
hjá mér að fara þangað, þetta er í raun barn-
æskudraumur. Ég fann um daginn gamla rit-
gerð sem ég skrifaði í tíunda bekk. Hún er um
mörgæsir,“ segir Hafdís Hanna og hlær.
Blaðamaður fær að glugga í þessari gömlu
ritgerð, hún er skrifuð með fallegri skrift sex-
tán ára stúlku. Aftast í ritgerðinni má sjá ein-
Kvennafundur á
suðurskautinu
Hafdís Hanna Ægisdóttir mun eyða áramótum og þremur vikum betur um borð í skipi við Suður-
skautslandið. Hún verður þar í hópi áttatíu vísindakvenna frá öllum heiminum sem starfa allar á
einn eða annan hátt við að bæta jörðina og gera hana sjálfbærari. Loftslagsmálin verða í brennidepli.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
„Það er verið að búa til samfélag
kvenna sem geta með sinni reynslu
og þekkingu haft áhrif á stefnu-
mótun, bæði heima fyrir og á
alþjóðavísu,“ segir Hafdís Hanna.
Ljósmynd/Oli Sansom
Hafdís Hanna hefur ferðast til Mongólíu, sem er eitt samstarfslanda Landgræðsluskólans. Hér er
hún með tveimur mongólskum hirðingjakonum árið 2016.
„Homeward Bound er stofnað af ástralskri konu
sem er bæði athafnakona og leiðtogaþjálfi. Hún átti
sér þennan draum og dreymdi þetta eina nóttina
þar sem hún sá fyrir sér Suðurskautslandið. Hún
setti á stofn þetta prógramm þar sem hún vill þjálfa
þúsund konur á tíu árum,“ segir Hafdís Hanna.