Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Síða 18
VIÐTAL 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2018 Þ eir eru fáir jarðarbúar sem eytt hafa áramótum um borð í skipi við Suðurskautslandið en það er ein- mitt það sem Hafdís Hanna Ægis- dóttir hyggst gera. Það styttist í brottför og spennan eykst en aðdragandinn hefur verið langur. Hafdís Hanna, sem er for- stöðumaður Landgræðsluskóla Háskóla Sam- einuðu þjóðanna, er líffræðingur í grunninn en tók síðar doktorspróf í plöntuvistfræði. „Í meistaranáminu var ég m.a. að skoða hvernig háfjalla- og heimskautaplöntur svara snöggum umhverfisbreytingum og í doktors- náminu var ég að skoða háfjallaplöntur í Ölp- unum. Þegar ég kom heim úr námi erlendis sótti ég um starf hjá Landgræðsluskólanum því það sameinaði svo margt sem ég hafði áhuga á. Þar fór ég yfir í meiri stjórnun í stað rann- sókna,“ segir Hafdís Hanna og bætir við að námið tengi hana óneitanlega við Suður- skautslandið. Blaðamaður sér ekki fyrir sér plöntulíf á suð- urpólnum en Hafdís Hanna er með svar á reiðum höndum. „Það eru tvær tegundir blómplantna á Suð- urskautslandinu, þar á meðal ein grastegund. Svo finnast einnig þónokkrar mosategundir þar. En þetta er vissulega ekki fjölskrúðugt plöntulíf,“ segir hún en nefnir að þarna sé heil- mikið dýralíf. „Á Suðurskautsskaganum eru mörgæsir og margar aðrar tegundir sjófugla, hvalir og selir. Flest dýranna eru sumargestir og það er sum- ar núna á Suðurskautslandinu,“ segir Hafdís Hanna og segist hlakka mikið til að fylgjast með dýrunum. Hún býður blaðamanni upp á rjúkandi heitt latte sem er vel þegið á óveðurs- morgni. Við höfum það notalegt og á meðan hvín í vindi og rigning lemur rúðurnar ræðum við starf hennar og fyrirhugaða ævintýraferð til Suðurskautslandsins. Breiða út þekkingu Við hefjum spjallið á starfi Hafdísar Hönnu sem forstöðumanns Landgræðsluskólans sem hún hefur gegnt í áratug. Starfið hefur leitt hana víða um heim, m.a. til Mongólíu, Níger, Lesótó og Úganda, en skólinn hefur tekið á móti mörgum nemum frá fyrrnefndum löndum og sinnt ýmsum öðrum verkefnum. „Það eru fjórir skólar í tengslum við Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi, Landgræðslu- skólinn, sem ég stýri, Sjávarútvegsskólinn, Jarðhitaskólinn og Jafnréttisskólinn. Þessir skólar sérhæfa sig allir í að byggja upp hæfni einstaklinga og stofnana í þróunarlöndum og erum við styrkt af íslenska ríkinu í gegnum al- þjóðlega þróunarsamvinnu. Landgræðsluskól- inn er hýstur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við Landgræðslu ríkisins. Við bjóð- um hingað fólki frá þróunarlöndum í sex mán- aða nám, frá mars til september. Nemendurnir eru allir starfandi sérfræðingar í sínum heima- löndum. Þeir vinna hjá þarlendum stofnunum, t.d. háskólum, rannsóknarstofnunum, frjálsum félagasamtökum og ráðuneytum, ásamt öðrum opinberum aðilum. Þetta er allt fólk með há- skólagráður sem fær leyfi frá sinni vinnu til að koma til Íslands og afla sér þekkingar í land- græðslu og sjálfbærri landnýtingu,“ segir hún. „Svo fara þau aftur heim og nýta þekk- inguna. Við erum að byggja upp færni ein- staklinga og stofnana til að takast á við þessar stóru áskoranir sem blasa við í dag. Í okkar samstarfslöndum í Afríku og Mið-Asíu tengist landeyðing og ósjálfbær landnýting fátækt og fæðuframboði. Það er ekki hægt að rækta jafn mikinn mat á landi sem hefur blásið upp og misst frjósemi sína og á landi í góðu ástandi. Svo tengist þetta líka loftslagsmálum mjög mikið,“ segir Hafdís Hanna og segir að Ísland hafi sérstöðu hvað varðar þekkingu á þessu sviði. „Við höfum yfir hundrað ára reynslu hér- lendis í landgræðslu. Landgræðslan, sem hét reyndar Sandgræðslan í upphafi, var stofnuð 1907. Þá var ástand landsins afar slæmt. Á Rangárvöllum þurftu bændur t.a.m. að yfirgefa jarðir sínar vegna sandfoks. Þá voru sett lög og Sandgræðslan stofnuð. Við erum ennþá að læra og eigum langt í land við að bæta landgæði hér- lendis en við höfum öðlast góða reynslu og þekkingu, bæði af því sem vel hefur farið og því sem betur mætti fara,“ segir Hafdís Hanna. Hún segir þau hjá Landgræðsluskólanum einnig læra heilmikið af erlendu nemunum og þau hvert af öðru. „Þetta er heilmikil áskorun fyrir þau að vera hér í sex mánuði og þetta er í raun leiðtogaþjálfun í leiðinni. Þau þurfa að læra að koma fram og tileinka sér gagnrýna hugsun,“ segir hún. „Svo leggjum við mikla áherslu á kynjajafn- rétti og erum með sérstaka jafnréttisstefnu. Við bjóðum alltaf jafn mörgum konum og körl- um hingað. Það skiptir miklu máli einkum vegna þess að það eru oft konur sem vinna við að rækta landið, t.a.m víða í Afríku,“ segir hún. „Þessi sex mánaða námskeið eru grunnurinn í okkar starfi en við höldum líka 1-2 vikna nám- skeið erlendis og getum þá þjálfað fleiri,“ segir hún. Hafdís Hanna segir að von sé á tuttugu manns á næsta ári í sex mánaða nám Land- græðsluskólans. „Við viljum svo að þau beri út boðskapinn þegar þau koma heim til sín. Við fylgjum okkar nemum vel eftir og erum í mjög góðu sambandi við þau eftir að þau fara héðan,“ segir hún og bætir við að starfsfólk skólans heimsæki oft fyrrverandi nemendur í vinnuferðum til sam- starfslanda. „Það er mjög gaman að sjá hvað þau hafa eflst mikið, komið af stað verkefnum sjálf, feng- ið styrki til að græða upp landið og hafa jafnvel haft áhrif á stjórnvöld varðandi stefnumótun í landgræðslu. Við höfum séð mjög margt spenn- andi og gott. Við sjáum árangur, svo sannar- lega.“ Æskudraumurinn rætist Það kemst fátt annað að þessa dagana hjá Hafdísi Hönnu en undirbúningur ferðarinnar á Suðurskautslandið. Upphafið að ævintýrinu var þannig að Hafdís Hanna frétti af leiðtoga- prógrammi sem ber nafnið Homeward Bound. „Ég frétti af þessu fyrir nokkru frá prófessor sem ég hitti á fundi erlendis og sá að hún var að fara til Suðurskautslandsins og varð strax þá mjög spennt. Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að fara þangað, þetta er í raun barn- æskudraumur. Ég fann um daginn gamla rit- gerð sem ég skrifaði í tíunda bekk. Hún er um mörgæsir,“ segir Hafdís Hanna og hlær. Blaðamaður fær að glugga í þessari gömlu ritgerð, hún er skrifuð með fallegri skrift sex- tán ára stúlku. Aftast í ritgerðinni má sjá ein- Kvennafundur á suðurskautinu Hafdís Hanna Ægisdóttir mun eyða áramótum og þremur vikum betur um borð í skipi við Suður- skautslandið. Hún verður þar í hópi áttatíu vísindakvenna frá öllum heiminum sem starfa allar á einn eða annan hátt við að bæta jörðina og gera hana sjálfbærari. Loftslagsmálin verða í brennidepli. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is „Það er verið að búa til samfélag kvenna sem geta með sinni reynslu og þekkingu haft áhrif á stefnu- mótun, bæði heima fyrir og á alþjóðavísu,“ segir Hafdís Hanna. Ljósmynd/Oli Sansom Hafdís Hanna hefur ferðast til Mongólíu, sem er eitt samstarfslanda Landgræðsluskólans. Hér er hún með tveimur mongólskum hirðingjakonum árið 2016. „Homeward Bound er stofnað af ástralskri konu sem er bæði athafnakona og leiðtogaþjálfi. Hún átti sér þennan draum og dreymdi þetta eina nóttina þar sem hún sá fyrir sér Suðurskautslandið. Hún setti á stofn þetta prógramm þar sem hún vill þjálfa þúsund konur á tíu árum,“ segir Hafdís Hanna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.