Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Blaðsíða 19
Mörgæsir hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá Hafdísi Hönnu en nóg er af
þeim á Suðurskautslandinu.
Ljósmynd/Anne Christianson
kunnina 10,0. Hvorki meira né minna. „Þetta er
þannig gamall draumur og ég hef alltaf haft
ævintýraþörf og verið spennt bæði fyrir nátt-
úru og menningu. Og þar að auki verða þarna
áttatíu konur í vísindum og hægt er að auka
tengslanet sitt við konur úti um allan heim.
Þetta tengir svo margt; þarna er leiðtogaþjálf-
un líka. Og loftslagsmálin eru í brennidepli,
þannig að þetta er fullkomið fyrir mig,“ segir
hún.
„Homeward Bound er stofnað af ástralskri
konu sem er bæði athafnakona og leiðtoga-
þjálfi. Hún átti sér þennan draum og dreymdi
þetta eina nóttina þar sem hún sá fyrir sér Suð-
urskautslandið. Hún setti á stofn þetta pró-
gramm þar sem hún vill þjálfa þúsund konur á
tíu árum,“ útskýrir Hafdís Hanna en hún er að
fara í þriðju ferðina af tíu.
„Þetta eru allt konur með vísindabakgrunn, í
vistfræði, líffræði, stjörnufræði, verkfræði,
læknisfræði, jarðfræði. Sumar eru að vinna í
rannsóknum, aðrar í menntun eða stefnumót-
um,“ segir Hafdís Hanna og bætir við að kon-
urnar séu á öllum aldri.
„Það er mikil reynsla í þessum hópi. Ég sótti
um þetta en það var heilmikið umsóknarferli.
Það var töluverð samkeppni,“ segir hún.
„Svo var það á afmælinu mínu 20. október í
fyrra að ég var með erindi á umhverfisþingi.
Þennan morgun fékk ég tölvupóst um að ég
hefði verið tekin inn en þennan sama dag var
gestafyrirlesari á umhverfisþingi kona sem
heitir Monica Araya frá Kosta Ríka sem hafði
farið í fyrsta leiðangurinn, sem var skemmtileg
tilviljun,“ segir hún.
Spennt fyrir tengslanetinu
Hafdís Hanna hefur verið í heilt ár að undirbúa
ferðina og verið í þjálfun í gegnum netið. Lögð
er áhersla á vísindamiðlun og leiðtogaþjálfun
og bæði var unnið í minni rannsóknarhópum og
eins var hópfundur einu sinni í mánuði. Hún
segist nú þegar hafa kynnst mörgum
kvennanna sem hún á eftir að hitta.
„Við höfum verið að vinna í þriggja manna
hópum sem svo rótera svo maður kynnist fleir-
um og svo eigum við að vera með kynningu um
borð í skipinu. Við höldum líka dálítið saman
við fimmtán sem eru frá Evrópu,“ segir hún.
Dvalið verður um borð í skipi í þrjár vikur og
siglt frá Argentínu til Suðurskautsskagans. Stíf
dagskrá er alla daga.
„Kennarateymið um borð er mjög flott og
langar mig sérstaklega að nefna Christinu
Figueres sem starfaði sem aðalframkvæmda-
stýra Loftslagsamnings Sameinuðu þjóðanna
og var fremst í flokki þegar Parísarsamkomu-
lagið var samþykkt árið 2015,“ segir hún.
„Það er verið að búa til samfélag kvenna sem
geta með sinni reynslu og þekkingu haft áhrif á
stefnumótun, bæði heima fyrir og á alþjóðavísu.
Sérstaklega í sambandi við loftslagsmálin. Við
sem erum að fara núna erum í miklu sambandi
og þetta eru ótrúlegar konur margar hverjar,“
segir hún.
„Ég er eiginlega mest spennt fyrir þessu
tengslaneti, þetta verður svo gott stuðningsnet.
Mér finnst eins og ég sé búin að finna minn hóp
því maður áttar sig á því að við erum allar að
takast á við það sama. Maður finnur traust í
hópnum.“
Gefa gjafir á gamlárskvöld
Hvers vegna varð Suðurskautslandið fyrir
valinu?
„Þetta er einn af síðustu stöðum jarðarinnar
þar sem áhrifa mannsins hefur hingað til gætt
lítið. Nú sjáum við hins vegar örar breytingar
vegna loftslagsbreytinga og við vitum að ef ís-
inn á Suðurskautslandinu bráðnar getur það
hækkað yfirborð sjávar töluvert á heimsvísu.
Suðurskautslandið er líka mjög einangraður
staður þannig að það myndast mikil samkennd,
við erum saman á skipi í þrjár vikur og kom-
umst ekkert annað,“ segir hún og hlær.
„Svo er þetta líka svolítið táknrænt; lengi vel
voru leiðangrar til Suðurskautslandsins bann-
aðir konum. Á öldum áður voru það bara karlar
sem þangað fóru,“ segir hún.
Hvað á að gera á gamlárskvöld?
„Góð spurning! Við förum um borð í skipið á
gamlársdag og leggjum í hann um kvöldmatar-
leytið. Það verður örugglega fagnað og við ætl-
um allar að koma með eina litla gjöf og gefa
hver annarri,“ segir Hafdís Hanna.
Oft er slæmt í sjóinn á siglingaleiðinni, að
sögn Hafdísar Hönnu.
„Leiðin heitir Drake Passage og er á milli
Argentínu og Suðurskautslandsins. Það tekur
um einn eða einn og hálfan sólarhring að kom-
ast þarna yfir. Þá er mælt með að liggja í koju
og taka sjóveikistöflu en þegar komið er að Suð-
urskautslandinu siglum við lygnan sjó,“ segir
Hafdís Hanna.
Eftirvæntingin leynir sér ekki. Bæði fyrir
fræðastarfinu og eins dýralífinu.
„Ég er mjög spennt að sjá mörgæsirnar,
þetta hafa alltaf verið uppáhaldsdýrin mín,“
segir Hafdís Hanna og segist vera tilbúin í æv-
intýrið; nú sé bara eftir að halda jól með fjöl-
skyldunni og pakka ullarsokkunum í tösku!
Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með
leiðangrinum á samfélagsmiðlum. Sjálf heldur
Hafdís Hanna úti sérstakri síðu á Facebook
sem heitir einfaldlega Hafdís Hanna á Suður-
skautslandinu. Einnig er hægt að fylgjast með
verkefninu, @homewardboundprojects, bæði á
Facebook og Instagram.
Morgunblaðið/Eggert
Mikið ævintýri bíður Hafdísar Hönnu en hún mun dvelja um borð í skipi við Suður-
skautslandið í þrjár vikur. Áramótunum verður fagnað um borð með útsýni yfir hafið.
Ljósmynd/Oli Sansom
’ Þetta er þannig gamalldraumur og ég hef alltaf haftævintýraþörf og verið spenntbæði fyrir náttúru og menningu.
Og þar að auki verða þarna átta-
tíu konur í vísindum og hægt er
að auka tengslanet sitt við konur
úti um allan heim.
23.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19