Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2018 HEILSA Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. Þegar ég ákvað að fara í átakið góða, semnú hefur staðið yfir í rúma þrjá mánuðimeð þokkalegum árangri, gerði ég mér strax grein fyrir því að ég þyrfti að stíga út fyrir þægindarammann og gera ýmislegt sem mig langaði ekkert sérstaklega til að ana út í. Í fyrsta lagi vissi ég að mataræðið þyrfti að taka breytingum – ég mætti ekki borða allt góðgæt- ið sem mér þykir svo freistandi, það yrði minna um bjór yfir sjónvarpinu um helgar og að ég þyrfti að fórna samverustundum með mínum nánustu til að drattast á hlaupabrettið. En það sem ég vissi að yrði stærsta hindrunin var lyftingarnar. Þær yrðu ekki flúnar mikið lengur. Ekki gott að lufsast um lyftingasalinn Líkt og margir, margir á undan mér, hef ég lufsast um lyftingasali líkamsræktarstöðv- anna, „rykkt“ í eitt og eitt lóð eða tæki en hvorki haft gagn af því né gaman. En ástæða þess að ég vissi að nú þyrfti ég að ná tökum á þessari tegund hreyfingar var í raun tvíþætt. Ég var vel meðvitaður um að ég hefði ekki sinnt vöðvabyggingu líkamans sem skyldi og að þarna væri kjörið tækifæri til að auka brennsluna og léttast um leið – stærri vöðvar taka meiri orku en litlir. Og þá vissi ég líka að bakmeiðslin sem ég hafði átt við að stríða frá ársbyrjun 2015 voru þess eðlis að með því að lyfta gæti ég dregið úr óþægindunum sem af þeim hljótast og dregið úr líkum þess að ástandið verði verra en það þó er í dag. Það var því til mikils að vinna. En samt var ég með hnút í maganum yfir þessu, ekki síst vegna þess að tilhlaupið að þessu verkefni hafði alltaf endað úti í skurði fram til þessa. Eftir á að hyggja var það hins vegar algjör lykill að því að ég hef þokast í rétta átt að hafa samband við Ívar Guðmundsson einkaþjálfara og fá hann mér til aðstoðar. En af hverju skipti það máli í mínu tilfelli? Ástæða þess að ég entist aldrei í lyftinga- salnum – nema kannski tvær þrjár vikur í senn – var einfaldlega sú að ég vissi ekki hvað ég var að gera. Ómarkvissar æfingar leiða nefni- lega ekki til neins og þekkingarleysið getur einnig haft þau áhrif að maður geri óraunhæf- ar væntingar til verkefnisins og búist við ár- angri sem aldrei hefði sést innan þess tíma- ramma eða verklags sem sett var. Því var mikilvægt þegar af stað var haldið að fá leiðsögn um hvaða æfingar ætti að taka á hverjum tíma, hversu miklar þyngdir ætti að vinna með og einnig að ræða hvað væru ásætt- anlegar framfarir. Sú staðreynd að vöðvar byrja að vaxa innan frá, áður en þeir taka að byggjast upp að utanverðu með sýnilegum hætti –getur t.d. stillt væntingum í eðlilegt og raunhæft horf. Miðjan skiptir öllu Meðal þess sem kom mér á óvart þegar ég byrjaði að lyfta undir leiðsögn var hversu mikla áherslu Ívar hefur á það svæði sem oft er nefnt „miðjan“. Þar er vísað í mjóbak og maga. Engin æfing er tekin öðruvísi en að láta reyna á maga- og bakvöðva. Það hefur haft margvísleg áhrif, m.a. minni verki í baki, aukna meðvitund um að ganga beinn í baki en svo finnur maður augljóslega að með því að styrkja þennan hluta líkamans, léttir maður róðurinn í öðrum æfingum. Nær öll hreyfing líkamans tengist þessu svæði með einum eða öðrum hætti og ef bak og magi eru ekki vel bú- in undir átök tengd fóta-, handa- eða axlalyft- um, er ekki aðeins hætt við að maður geri æf- inguna vitlaust heldur hreinlega setji sig í hættu á meiðslum. Þessi reynsla, sem nú hefur skilað lækkandi fituprósentu, auknu ummáli handleggja og brjóstkassa og minna ummáli um magann sjálfan, færir heim sanninn um að lyftingar eru góður grunnur að annarri hreyf- ingu. Margir sjá ofsjónum yfir þeim kostnaði sem felst í því að ráða til sín einkaþjálfara. Og sannarlega er það ekki ókeypis en það getur hins vegar margborgað sig ef ætlunin er að ná árangri og að gera hlutina rétt. Ekki veigrar maður sér við kaupa rándýra hlaupaskó eða íþróttafatnað af öðru tagi, ekkert tiltökumál að greiða tugi þúsunda fyrir aðgang að líkams- ræktarstöðvum. Hví skyldi maður ekki fjár- festa í aukinni þekkingu á því sem maður er að gera í heilsuræktinni eins og maður gerir gjarnan á öðrum sviðum lífsins? Styrktaræfingar skila árangri Sumt er betra að gera undir leiðsögn en algjörlega af eigin rammleik. Eitt af því er lyftingar. Það skiptir meira máli að fara rétt inn í þær en að lyfta þungu því auknar þyngdir fylgja nær óhjákvæmilega ef rétt er staðið að málum. Laus lóð eða lyftingatæki? Það hefur reynst mér vel að nýta mér blandaða notkun en ég hefði bara haldið mig við tækin ef ég hefði ekki fengið góða leiðsögn frá Ívari um rétta notkun lausu lóðanna. Morgunblaðið/Ernir Eins og einhverjir lesendur þess- arar síðu hafa tekið eftir hef ég talsvert haft hugann við róður að undanförnu. Það skýrist af því að ég hef sannfærst um að þessi tegund hreyfingar er afar hentug í bland við lyftingar og aðra hreyfingu. Það kemur til af tvennu. Það tekur enga stund að skjótast á róðrarvélina, þ.e. ef maður á hana til heima við, og hún æfir næstum allan líkamann án þess að valda miklu álagi á einhverja tiltekna vöðvahópa. Þá kemur hún í veg fyrir nei- kvæð áhrif á hrygg og fætur, líkt og hlaupin – uppáhaldið mitt – gera því miður.En þegar rennt er yfir skrif um heilsurækt kem- ur í ljós að það eru fleiri sem hugsa á þessum nótum. Svo virðist vera sem róður sé að komast aftur í tísku. Fyrir því kunna ýmsar ástæður að vera en m.a. þeirra sem virðast sennileg- ar er sú kynning sem þetta form hreyfingar hefur fengið á síðustu árum, einkum í tengslum við út- breiðslu Crossfit. Einnig hafa þættirnir House of Cards haft þar nokkuð að segja, líkt og áður hefur verið nefnt á þessum vett- vangi. Claire Underwood virðist hafa flutt róðrarvél eiginmanns- ins með þeim í Hvíta húsið og hefur sést nota hana í þáttunum. Annað sem kann að hafa áhrif á vinsældir róðursins er sú stað- reynd að það geta nær allir stundað þessa tegund hreyf- ingar, bæði ungir og aldnir, stórir sem smáir. Ekki draga útlit og eiginleikar Water Rower vélar- innar úr áhuga yngstu kynslóð- arinnar. Syni mínum, rétt ríflega tveggja ára, finnst ótrúlega gam- an að róa og hefur hann náð sér- staklega góðum tökum á því að renna sér upp og niður eftir vél- inni á sleðanum góða sem setið er á meðan róið er. AÐ KOMAST Í TÍSKU Með róður á heilanum Róður er fyrir alla aldurshópa. Pistill Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR 92,9 kg 84,7 kg 85,4 kg Upphaf: Vika 14: Vika 15: 36.249 25.923 13.125 13.569 4 klst. 3 klst. HITAEININGAR Prótein 26,3% Kolvetni 35,2% Fita 38,5%

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.