Fréttablaðið - 20.03.2019, Síða 20
Dýr hafa verið rauði þráður-inn í lífi mínu. Fjölskyldan var alla tíð í hestamennsku
og oftast hundur á heimilinu. Í
mörg ár bjó ég svo í sveit í Skaga-
firði og þjálfaði hunda og hesta,“
segir Steinar sem byrjaði í björg-
unarsveit um tvítugt. Fljótlega var
hann kominn á kaf í starf björg-
unarhundasveitar og þjálfaði þá
hunda í snjóflóða- og víðavangs-
leit.
„Ég var í björgunarsveitum í 25
ár í það heila og starfaði að auki
sem lögreglumaður. Árið 2001 var
ég hjá lögreglunni á Austurlandi og
sýndi áhuga á því að læra hunda-
þjálfun. Því var vel tekið og emb-
ættið sendi mig í þjálfun hjá Þor-
steini Hraundal sem á þeim tíma
var hundaþjálfari hjá lögreglunni í
Reykjavík,“ lýsir Steinar sem lærði
þar þjálfun fíkniefnaleitarhunda.
Síðar fór hann í leiðbeinendanám
til Bretlands á vegum lögreglunnar
og sérhæfði sig í þjálfun sprengju-
leitarhunda. „Það er aðeins þróaðri
og ítarlegri útgáfa af fíkniefna-
leitinni,“ útskýrir hann.
Í dag starfar Steinar sem lög-
reglufulltrúi á Norðurlandi vestra.
Hann þjálfar lögregluhunda og
kennir auk þess lögreglumönnum
hundaþjálfun. „Ég er með nám-
skeið í gangi núna sem hófst í
febrúar og lýkur í maí. Það er kennt
í lotum bæði hér fyrir norðan og á
suðvesturhorninu,“ segir Steinar
og bendir á að starfsemi tengd
lögregluhundum hafi legið meira
og minna niðri í nokkur ár. „Svo
tók ráðherra þá ákvörðun að fela
lögreglunni á Norðvesturlandi
þennan málaflokk og við höfum
verið að byggja starfið upp að nýju
í góðri samvinnu við lögreglu-
stjóraembættið og menntasetur
lögreglunnar.“
Steinar hefur gríðarmikla
reynslu af þjálfun hunda og þó
margir hlutir spili inn í til að
þjálfun hunds lukkist vel segir
hann eitt atriði alltaf þurfa að vera
í lagi, og það er rétt fóðrun. „Rétt
fóður skiptir miklu máli. Það er
Steinar þjálfar lögregluhund í fíkniefnaleit.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr
Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Ég mæli með
hráfæðinu frá Petis
við allt mitt fólk, enda
eru hundarnir þarna að
borða það sem náttúran
ætlaði þeim.
Í fóðrið frá
Petis er notað
íslenskt kjöt af
hrossum sem
er náttúrulegur
próteingjafi.
Steinar starfar
sem lögreglu-
fulltrúi á
Norðurlandi
vestra. Hann
þjálfar lögreglu-
hunda og kennir
auk þess lög-
reglumönnum
hundaþjálfun.
MYND/SIGTRYGGUR
ARI
Petis Happy dog – Íslenskt hráfæði fyrir hunda
Petis er fyrirtæki sem sérhæfir sig
í framleiðslu á hágæða íslensku
hráfóðri fyrir hunda. Framleiðslan
fer fram á Sauðárkróki undir
ströngu gæðaeftirliti.
Í fóðrið er notað íslenskt
kjöt úr hrossum sem er
náttúrlegur próteingjafi.
Engin önnur aukaefni eru í
vörunum annað en viðbætt
steinefni og vítamín til að
tryggja sem bestu næringu
fyrir hundinn.
Kjötið í fóðrinu er alveg
hrátt og selst það frosið til að
ferskleikinn haldi sér sem best.
Kostir þess að nota hrá-
fóður er að fóðrið fer betur í
maga hunda, feldurinn verður
glansandi og margir heilsufars-
og meltingarkvillar hverfa.
Ráðlögð dagsþörf:
Ráðlögð dagsþörf er 2-3% af
þyngd, því má skipta niður í
tvær máltíðir. Hafa ber í huga að
fóðurþörf skal miða við hreyfingu.
Hundar sem hreyfa sig mikið
þurfa því meira en hundar sem
fá litla hreyfingu.
l 30 kg hundur 600-900 g
l 20 kg hundur 100-600 g
l 10 kg hundur 200-300 g
l 5 kg hundur 100-150 g
Innihald: Íslenskt hrossakjöt
og viðbætt næringarefni.
Framleiðandi: Kjötafurða-
stöð KS á Sauðárkróki.
Sölustaðir: Garðheimar,
Dýrabær, Dýraríkið og
Skagfirðingabúð.
Framhald af forsíðu ➛
ekkert öðruvísi með hundana
en okkur mannfólkið. Til að geta
gefið full afköst þarf fóðrunin að
vera rétt og rétt samsett.“
Hann segir rétta fóðrun skipta
máli fyrir alla hunda en sérstak-
lega fyrir hunda sem mikið mæðir
á eins og lögregluhunda eða aðra
vinnuhunda. „Við sem vinnum við
þetta sjáum svo vel hvað fóðrið
skiptir miklu máli. Við krefjumst
alltaf hámarks afkasta hjá þessum
dýrum og afköstin velta á því
hvernig þeim líður og hvort þau
hafi næga orku.“
Frábært hundafóður frá Petis
Steinar mælir með íslenska Petis
Happy Dog fóðrinu frá KS á
Sauðárkróki. „Þetta er hráfóður
sem unnið er úr íslensku hrossa-
kjöti. Fóðrið fer greinilega vel í
hundana, þeim líður vel og eru
sáttir. Þeir borða þetta vel og finnst
það greinilega gott,“ segir Steinar
og bendir á að fóðrið innihaldi
aðeins kjöt og dýrafitu en ekki sé
í því korn eða annað sem algengt
er að valdi ofnæmi hjá hundum.
„Maður sér það líka á feldinum
hvað fóðrið fer vel í hundana enda
verður hann glansandi fallegur.“
Steinar notar hráfóðrið með
þurrfóðri. „Stundum gef ég tvisvar
á dag, og þá gef ég hráfóður í aðra
máltíðina og blanda því við þurr-
fóður í seinni gjöfinni en ég nota
þá þurrfóður.“
Steinar áréttir að fóðrið henti
bæði vinnuhundum en líka venju-
legum heimilishundum. „Stóri
kosturinn við fóðrið frá Petis er að
þetta er hreint kjöt og hlutfall milli
fitu og próteins er miklu minna en
í öðru fóðri,“ segir hann og bendir
á að í mörgu fóðri sé hlutfall jurta-
fitu mjög hátt sem sé ekki tilvalið
fyrir hunda.
Steinar er með þrjá hunda hjá sér
í augnablikinu en annars fara fjöl-
margir hundar í gegnum hendur
hans. „Ég mæli með hráfæðinu frá
Petis við allt mitt fólk, enda eru
hundarnir þarna að borða það sem
náttúran ætlaði þeim.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
9
-2
0
A
C
2
2
9
9
-1
F
7
0
2
2
9
9
-1
E
3
4
2
2
9
9
-1
C
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K