Fréttablaðið - 17.04.2019, Page 24

Fréttablaðið - 17.04.2019, Page 24
Reginn keypti verslunar­rýmið við Hafnartorg á hagstæðu verði árið 2014. Þess vegna getum við boðið leiguverð sem er undir markaðs­ verði á sambærilegu húsnæði um þessar mundir,“ segir Helgi S. Gunn­ arsson, forstjóri fasteignafélagsins. Heildarfjárfesting Regins í eign­ unum er um sex milljarðar króna. „Við keyptum fermetrann á 430 þúsund krónur. Með kostnaði er fer­ metraverðið rúmlega 600 þúsund. Til samanburðar er fermetraverð á atvinnuhúsnæði á góðum stöðum í miðbænum allt að einni milljón króna. Það er helsta ástæða þess að Laugavegurinn er að gefa eftir. Fasteignir hafa gengið kaupum og sölum á of háu verði sem rekja má til væntinga um óraunhæfan vöxt í fjölda ferðamanna. Þær væntingar og hátt kaupverð leiða til þess að innheimta þarf háa leigu sem leigutakar eiga erfitt með að standa undir – nema mögulega á hátindi uppsveiflu. Boginn hefur verið spenntur of hátt og þegar það kemur bakslag í reksturinn, til dæmis að laun hækki eða ferða­ menn spara við sig í meiri mæli, hrynur spilaborgin. Reginn var að skoða kaup á fasteign við Skólavörðustíg fyrir þremur árum. Fermetraverðið var 1,1 milljón sem hefði þýtt að leigja þyrfti eignina á yfir 9 þúsund krón­ ur á fermetra. Það er óraunhæft að viðskiptavinir hefðu getað staðið straum af leigunni til lengri tíma á þeim stað. Í ljósi þessa háa verðs hefur fasteignafélagið keypt lítið af eignum í miðbænum á undan­ förnum árum.“ Undirbúningur hófst 1998 Helgi segir að uppbygging á reitnum við Hafnartorg hafi verið í undir­ búningi frá árinu 1998. „Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi borgarstjóri, og Björn Bjarnason, þá menntamálaráðherra, sameinuðust um að Harpan skyldi rísa þar sem hún reis. Samhliða var ákveðið að hugsa svæðið frá Hörpunni og að Lækjar­ torgi sem eina heild. Árið 2005 var samið við þann sem átti allar lóðirnar í kringum Hörpu og bygg­ ing hennar hófst í framhaldinu. Skömmu seinna verður fjármála­ hrun og eigandi lóðanna missir þær. Í kjölfarið er lóðin slitin í sundur og seld í bútum. Hugmyndafræðin sem mörkuð var um svæðið fyrir aldamót er enn við lýði. Margir átta sig ekki á hve langur aðdragandi er að skipu­ lagi á reitum og hve mikla faglega umfjöllun það fær. Það hafa hund­ ruð manna, Íslendingar sem erlend­ ir, komið að málum. Þetta hafa verið sérfræðingar í borgarskipulagi, verslunarrekstri, ráðstefnuhaldi, stjórnmálamenn úr öllum flokkum og svo framvegis. Þessi sjónarmið koma öll saman og úr verður mála­ miðlun sem hefur heppnast ansi vel í þessu tilviki. Það var til að mynda ákveðið efir hrun, sem betur fer, að draga úr byggingarmagninu á svæðinu. Mörgum þótti fyrstu hugmyndir að byggingunni yfirþyrmandi og því var ákveðið að minnka þær, taka í sundur og skapa minni ein­ ingar. Með þeim hætti var skapað meira rými fyrir fólk og birtu. Við hönnunina var horft til bygg­ inga í nágrenni við Kvosina eins og gömlu höfuðstöðva Eimskips og Landsbankans í Austurstræti. Þær byggingar eru svipaðar að hæð og umfangi. Reykjavík Development, sem áður hét Landstólpi og var í eigu Arion banka og einkafjárfesta, átti tvær lóðir á svæðinu. Forsvarsmenn fyrirtækisins voru að leita leiða til að koma verkefninu á skrið og buðu okkur að taka þátt í uppbygging­ unni. Við komum með gagntilboð, sem var samþykkt, um að kaupa allar jarðhæðir fasteignanna auk tveggja hæða í tveimur byggingum við Lækjargötu. Önnur þeirra hýsir nú H&M. Jarðhæðir eru verðmætustu bit­ arnir í fasteignunum en í ljósi þess hve snemma í ferlinu við vorum reiðubúnir til að kaupa eignirnar fengum við þær á hagstæðu verði.“ Miðbæir hafa aðdráttarafl Hvað fékk ykkur til að trúa á miðbæ- inn sem öflugan stað fyrir verslun og að rétt væri að bæta við verslunar- rými? „Miðbæir um allan heim hafa mikið aðdráttarafl. Fasteignaverð Öflugan verslunarkjarna vantaði í miðbæinn Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, segir að verslanir við Laugaveginn muni taka breytingum og njóta góðs af þeim fjölda sem Hafnartorgið muni laða til sín. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Hafnartorgið hefur verið í undirbúningi frá árinu 1998. Versl- anir eru valdar inn til að skapa skemmtilega heild sem laðar fólk að. 80 prósent af rým- unum hafa verið leigð út. Þrjú rými hafa verið tekin frá fyrir Gucci, Louis Vuitton og Prada. Í Smáralind var sami háttur hafður á og beðið í eitt og hálft ár eftir réttu vörumerkjunum. Ef við hugsuðum til skemmri tíma hefðum við getað náð mun hærri arðsemi á næstu fjórum árum með því að leigja til lundaverslana. 1 7 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN 1 7 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :2 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 4 -B A C 8 2 2 D 4 -B 9 8 C 2 2 D 4 -B 8 5 0 2 2 D 4 -B 7 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 1 6 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.