Fréttablaðið - 17.04.2019, Qupperneq 36
Í hverri keppni eru
tvær gerðir af slétt-
um dekkjum í boði, hörð
dekk sem endast betur
og gefa minna grip og
mýkri dekk sem gefa
meira grip en endast
skemur.
Dekkin sem notuð eru í Formúlu 1-kappakstrinum eiga fátt skylt við venjuleg
bíladekk. Á venjulegum dekkjum
má aka allt að 80 þúsund kíló-
metra en Formúludekkin aftur á
móti eru gerð til að endast hluta
úr einni keppni. Þessi skammi
endingartími kemur til af því
of boðslega álagi sem er á dekkj-
unum. Skipt er um dekk minnst
einu sinni í hverri keppni. Reyndar
var bannað að skipta um dekk árið
2005 og því þurfti sami dekkja-
gangurinn að endast alla keppnina
eða um 300 kílómetra. Þessi regla
var afturkölluð strax árið eftir
og skipti þar mestu atvik sem
upp kom í bandarísku Formúlu-
keppninni árið 2005. Þá lenti Ralf
Schumacher, sem ók fyrir Toyota, í
harkalegum árekstri í 13. beygju í
Indianapolis-brautinni. Ástæðan
var bilun í hægra afturdekki. Æði-
mörg vandamál komu upp tengd
Michelin-dekkjum í keppninni. Að
lokum voru aðeins sex keppendur
eftir, allir ökumenn í liðum sem
voru með Bridgestone-dekk.
Nokkrir dekkjaframleiðendur
hafa þróað og framleitt dekk fyrir
Formúlu 1 í gegnum tíðina. Þetta
eru Avon, Bridgestone, Continen-
tal, Dunlop, Englebert, Firestone,
Goodyear og Michelin. Pirelli
hefur frá árinu 2011 haft einkarétt
á því að útvega dekk í keppnina.
Dekkin sem notuð eru í Formúl-
unni í dag eru flest slétt. Hægt
er að þekkja dekkin á litunum.
Hypersoft eru bleik, Superhard eru
appelsínugul og Hard eru ljósblá. Á
þessu tímabili er Pirelli með fimm
dekkjategundir og fækkaði þeim
um tvær. Þá urðu litirnir skýrari
svo hinn venjulegi aðdáandi gæti
áttað sig á dekkjareglunum.
Á árunum 1998 til 2008 kröfðust
reglur þess að minnst fjórar rásir
væru í öllum dekkjum og var það
gert til að hægja á bílunum. Þessari
reglu var breytt árið 2009 þegar
sléttu dekkin fóru undir bílana á
ný. Í blautu veðri eru hins vegar
notuð annars konar dekk með
rásum sem kljúfa vatnið betur.
Í miklu vatnsveðri hafa dekkin
þó ekki við að kljúfa vatnið. Þá
halda Formúlubílarnir ekki í við
öryggisbílinn þar sem dekkin
fljóta ofan á vatninu. Í slíkum til-
fellum er keppni frestað. Í hverri
keppni eru tvær gerðir af sléttum
dekkjum í boði, hörð dekk sem
endast betur og gefa minna grip og
mýkri dekk sem gefa meira grip en
endast skemur. Liðin verða að nota
báðar týpurnar í keppninni. Þó er
gerð undantekning ef notuð eru
bleytudekk. Reglurnar kveða einn-
ig á um að ökumenn sem komast
áfram eftir tímatöku verði að byrja
keppni á sömu dekkjum og voru
notuð í hraðasta hringnum í tíma-
tökunni.
Skipt á mettíma
Dekkjaskipti í Formúlu 1 taka
aðeins örfáar sekúndur. Felipe
Massa hjá Williams fór í gegnum
dekkjaskiptin árið 2016 á aðeins
1,92 sekúndum sem er magnað.
Enda er myndbandið af dekkja-
skiptunum nánast óraunverulegt.
Hvert dekk vegur
aðeins níu kíló
Dekk skipta höfuðmáli í Formúlu 1-kappakstrinum. Mikil
þróunarvinna liggur að baki dekkjunum sem notuð eru.
Miklar breytingar hafa verið gerðar á dekkjunum. Heims-
metið í dekkjaskiptum er undir tveimur sekúndum.
Formúlu 1-bíll Spánverjans Carlos Sainz kemur á fullri ferð í gegnum beygju í Mónakó. NORDICPHOTOS/GETTY
Nokkrar staðreyndir um
Pirelli-Formúludekkin:
n Bleytudekkin geta tvístrað
meira en 60 lítrum af vatni á
sekúndu þegar ekið er á 300 km
hraða á klukkustund.
n Öll Formúludekkin eru búin til í
verksmiðju Pirelli í Izmit í Tyrk-
landi.
n Í hverri keppni er Pirelli með 60
starfsmenn, þar af einn verk-
fræðing fyrir hvert lið.
n Hvert framhjól vegur um níu
kíló. Afturhjólin eru eilítið
þyngri.
n Dekkin virka best við um 90
gráðu hita.
JEPPADEKK.IS
EXPLORE WITHOUT LIMITS Fyrir þig - á fjöllum!
ARCTIC TRUCKS
KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
www.arctictrucks.is
Undir flestar
gerðir jeppa
og jepplinga.
6 KYNNINGARBLAÐ 1 7 . A P R Í L 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R SUMARDEKK
1
7
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
4
-9
3
4
8
2
2
D
4
-9
2
0
C
2
2
D
4
-9
0
D
0
2
2
D
4
-8
F
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K