Fréttablaðið - 01.05.2019, Page 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —9 9 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 . M A Í 2 0 1 9
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Dagur B. Eggertsson
skrifar um trausta fjármála-
stjórn og betri þjónustu. 12
SPORT Fylkir mun fylgja eftir
góðu gengi á undirbúnings-
tímabilinu ef spá Fréttablaðsins
rætist. 14
MENNING Sigríður Jónsdóttir
gefur leikritinu Loddarinn
fjórar og hálfa stjörnu. 24
LÍFIÐ Bríet gerir það gott í sjón-
varpsþáttum í Hollywood. 28
PLÚS SÉRBLAÐ l FÓLK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
4BLS
BÆKLINGUR
Í FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Reykjavík • Hallarmúla 2 | Akureyri • Undirhlíð 2
Rauð vínber
399KR/KG
ÁÐUR: 798 KR/KG
-50%
1. maí, alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins, er í dag. Af því tilefni verða kröfugöngur farnar víðsvegar um landið
þar sem verkalýðurinn, driffjöður íslensks þjóðfélags, vekur athygli á sínum málstað. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ATVINNULÍF Fjöldi nýrra skráninga
á vanskilaskrá hjá fyrirtækjum
fer vaxandi. Hlutfallið hefur ekki
verið hærra á sex mánaða tímabili
undanfarin tvö ár og er nú rúmlega
þrjú prósent. Þetta segir Laufey
Jóndóttir, lögfræðingur Creditinfo,
og vitnar í nýja greiningu fyrirtæk-
isins. Mesta aukningin er hjá fyrir-
tækjum í bygginga- og mannvirkja-
gerð og heild- og smásöluverslun.
Hún segir að um sé að ræða vís-
bendingar um að farið sé að hægja
á hagkerfinu og nefnir að hlutfall
nýrra skráninga á vanskilaskrá hjá
einstaklingum hafi einnig farið
vaxandi. „Fjöldi nýskráninga á
vanskilaskrá lýsir ástandinu betur
en heildarfjöldi fyrirtækja á skrá,“
segir Laufey.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs Samtaka
atvinnulífsins, segir að aukin van-
skil endurspegli breytta stöðu í
efnahagslífinu. „Þetta er enn ein vís-
bendingin um að farið sé að hægja
verulega á hagkerfinu og krefjandi
tímar fram undan í rekstri margra
fyrirtækja.“ – hvj / sjá Markaðinn
Vísbending um að farið
sé að hægja á hagkerfinu
Þetta er enn ein
vísbendingin um að
farið sé að hægja verulega á
hagkerfinu og að krefjandi
tímar séu framundan í
rekstri margra fyrirtækja.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs SA
Halldór
DÓMSMÁL Dulbúnum hótunum um
búsifjar íslenskra flugfélaga og ann-
arra íslenskra fyrirtækja sem selja
ferðir til og frá Bandaríkjunum eru
meðal þeirra meðala sem beitt er í
deilum bandaríska f lugvélaleigu-
fyrirtækisins Air Lease Corporation
(ALC) og Isavia. Þetta herma heim-
ildir Fréttablaðsins. Eru erindrekar
félagsins einnig sagðir gefa stjórn-
endum Isavia til kynna að spjótum
kunni að verða beint að þeim per-
sónulega vegna málsins.
Málið varðar f lugvél í eigu ALC
sem WOW air hafði á leigu en Isavia
hefur kyrrsett vegna vangoldinna
lendingar- og annarra f lugvalla-
gjalda flugfélagsins.
Pólitísk tengsl milljarðamærings-
ins Steven F. Udvar-Házy, stjórnar-
formanns og stofnanda ALC, eru
sterk í Bandaríkjunum og ná allt
til ráðherra í ríkisstjórn Donalds
Trump. Udvar-Házy hefur ekki
farið leynt með bræði sína vegna
kyrrsetningar Isavia á vél ALC. Í
yfirlýsingu sem hann sendi fjöl-
miðlum fyrr í vikunni segir hann
að allra leiða verði leitað til að fá
kyrrsetningunni hnekkt og það
muni valda miklum álitshnekki
fyrir íslensk stjórnvöld. Segir hann
meðal annars að leitað verði lið-
sinnis bandarískra stjórnvalda
og stofnana Evrópusambandsins
vegna málsins. Heimildir blaðsins
herma að sendiherra Bandaríkj-
anna á Íslandi hafi átt fundi hér-
lendis vegna málsins. Málið hefur
þó ekki komið inn á borð utanríkis-
ráðuneytisins samkvæmt svari við
fyrirspurn Fréttablaðsins.
ALC hefur lagt fram aðfarar-
beiðni gegn Isavia og krefst afhend-
ingar flugvélarinnar á þeim grunni
meðal annars að engin lagaheimild
sé fyrir kyrrsetningunni enda um
eign þriðja aðila að ræða. Þá er því
meðal annars haldið fram að engin
lagaheimild sé fyrir kyrrsetningu
vélarinnar þar sem flugfélagið hafi
ekki haft umráð yfir vélinni þegar
félagið var úrskurðað gjaldþrota.
Einnig er gagnrýnt að Isavia hafi
ekki gripið fyrr í taumana vegna
vanefnda á greiðslu gjaldanna. Með
athafnaleysinu hafi Isavia farið í
bága við eigin reglur.
Hin vangoldnu gjöld sem kyrr-
setning hinnar umdeildu vélar
grundvallast á nema um það bil
tveimur milljörðum króna, en þau
varða ekki nema að litlu leyti þá til-
teknu vél sem kyrrsett hefur verið
heldur fjölda annarra flugvéla sem
WOW air hafði á leigu. Eftir fram-
lagningu aðfararbeiðninnar sendi
ALC Isavia tilboð um sátt í málinu
þess efnis að ALC greiddi þau gjöld
sem rekja megi beint til notkunar
þeirrar tilteknu vélar sem kyrrsett
er, með þeim fyrirvara þó að félag-
ið telji enga greiðsluskyldu hvíla á
félaginu. Isavia hafnaði tilboðinu
skömmu eftir fyrirtöku málsins
í Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Málið verður flutt munnlega í fyrra-
málið og úrskurðar um kröfu ALC
er að vænta síðdegis á morgun.
– aá
Hótar öllu illu
verði vélinni
ekki skilað
Erindrekar bandarísks félags sagðir hóta íslensk-
um félögum vandræðum vestanhafs vegna kyrr-
setningar Isavia á flugvél sem WOW air leigði af
félaginu. Fyrirtækið hafnaði sáttatilboði félagsins.
Úrskurðar héraðsdóms að vænta á morgun.
Félag Udvar-Házy er
umsvifamest allra flugvéla-
leigjenda í Bandaríkjunum
og leigir mörg hundruð vélar
til flugfélaga víða um heim.
0
1
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
7
-6
E
E
C
2
2
E
7
-6
D
B
0
2
2
E
7
-6
C
7
4
2
2
E
7
-6
B
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K