Fréttablaðið - 01.05.2019, Síða 4

Fréttablaðið - 01.05.2019, Síða 4
Veður Eins milt og veðrið verður Veðrið á fyrstu dögum sumars hafa verið með ágætum og svo virðist sem borgar- búar í Reykjavík ætli að njóta þessara sumardaga til hins ýtrasta. Í miðborg Reykjavíkur nutu margir blíðunnar í gær og gerðu sér glaðan dag á Austurvelli. Norðaustan 5-10 í dag og skýjað en úrkomulítið norðan- og austanlands með hita 2 til 8 stig. Hægari breytileg átt um landið sunnanvert, skýjað með köflum og skúrir síðdegis, hiti að 14 stigum. SJÁ SÍÐU 20 FANGE L SISMÁL Fangelsismála- stofnun kaupir í hverjum mán- uði töluvert magn af tóbaki af Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) sem stofnunin svo selur föngum á kostnaðarverði. Fang- elsismálastjóri segir verslanir fangelsanna ekki reknar í ágóða- skyni. Stofnunin kaupir tóbak fyrir mörg hundruð þúsunda í hverjum mánuði. Rafrettur verða þó sífellt vinsælli meðal fanga. „Við rekum verslanir í fang- elsunum þar sem vistmenn geta keypt ýmsan varning sem áhugi er fyrir. Sígarettur eru vinsælar þó að verulega hafi dregið úr reykingum hefðbundinna sígar- etta eftir að rafsígarettur komu á markað,“ segir Páll Winkel fang- elsismálastjóri í svari við fyrir- spurn Fréttablaðsins um reikning sem birtist á vef Opinna reikninga á dögunum. Reikningurinn var fyrir „áfengi og tóbaki“ og hljóðaði upp á 790 þús- und krónur. Páll segir stofnunina að sjálfsögðu ekki kaupa áfengi fyrir fanga eða starfsmenn. Aðeins tóbak upp í pant- anir fanga. Þegar viðskipti Fang- elsismálastofnunar við ÁTVR eru skoðuð aftur í tímann á vef Opinna reikninga má sjá að stofn- unin kaupir nok kurt magn tóbaks mánaðar- lega. Það sem af er þessu ári hefur til að mynda verið keypt tóbak fyrir alls tæpar 3,7 millj- ónir króna. En aðspurður segir Páll þó stofnunina engar tekjur hafa af sölunni. „Verslanir fangelsanna eru ekki reknar með ágóða. Við reynum að eiga til það sem skjólstæðingar okkar óska eftir hverju sinni og það er breytilegt frá einum tíma til annars,“ segir Páll og því ljóst að sígaretturnar eru seldar á kostnaðarverði. Verslanir sem þessar eru reknar í fangelsunum á Sogni og Litla- Hrauni en í síðarnefnda fangels- inu er rekin hin þekkta verslun Rimlakjör. Þar er aðgengi að hinum helstu nauðsynjavörum ásamt mat en þar starfa jafnan tveir fangar ásamt starfsmanni fangelsisins. mikael@frettabladid.is Fangelsin kaupa tóbak fyrir milljónir  Fangelsismálastofnun kaupir tóbak fyrir hundruð þúsunda króna í hverjum mánuði fyrir fanga. Tóbakið er selt í fangelsissjoppunum á Litla-Hrauni og Sogni. Stofnunin hefur engar tekjur af og selur tóbakið á kostnaðarverði. Sígarettur eru vinsælar þó að verulega hafi dregið úr reykingum hefðbundinna sígaretta eftir að rafsígar- ettur komu á markað. Verslunin Rimlakjör hefur verið starfrækt lengi á Litla-Hrauni. Þar eru föngum útvegaðar sígarettur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK SAMFÉLAG Hátíðahöld í tilefni 1. maí verða í meira en 30 sveitar- félögum samkvæmt tilkynningu frá ASÍ. Í Reykjavík verður gengið frá Hlemmi niður á Ingólfstorg þar sem útifundur verður. Fer gangan af stað klukkan 13.30. Meðal ræðumanna á Ingólfstorgi verða Sólveig Anna Jónsdóttir, for- maður Eflingar, Þuríður Harpa Sig- urðardóttir, formaður ÖBÍ, og Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Þá munu Bubbi Morthens og GDRN koma fram. VR býður upp á skemmtun á Klambratúni fyrir gönguna sem hefst klukkan 11.30. Eftir útifund- inn verður kaffisamsæti í anddyri Laugardalshallarinnar. Efling býður í kaffi í Valsheimilinu að Hlíðarenda að loknum útifundi. Drífa Snædal, forseti ASÍ, f lytur aðalræðuna í hátíðardagskrá á Akureyri. Þar verður farið í kröfu- göngu frá Alþýðuhúsinu klukkan 14. Meðal annarra viðburða má nefna samstöðutónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði, kröfugöngu og dag- skrá í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, hátíðardagskrá í íþróttahöllinni á Húsavík og kaffisamsæti í Alþýðu- húsinu í Eyjum. – sar Fjölbreytt hátíðahöld Frá alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Akstur undir áhrifum vímuefna er aldrei réttlætanlegur. Ökum allsgáð. Minningarsjóður Lovísu Hrundar | lovisahrund.is SAMFÉLAG Opnaðar verða göngu- götur í miðborginni í dag og verða þær opnar til 1. október. Líkt og síðustu ár verða göngugöturnar Laugavegur og Bankastræti frá Klapparstíg að Þingholtsstræti, Skólavörðustíg u r milli Berg- staðastrætis og Laugavegar, Póst- hússtræti milli Kirkjustrætis og Hafnarstrætis, Austurstræti ásamt Veltusundi og Vallarstræti. „Gangandi vegfarendur fá betri hljóðvist á öllu svæðinu, minni mengun og aðgengi fyrir alla er betrumbætt. Þá verður aðstaða til vörulosunar bætt,“ segir í tilkynn- ingu borgarinnar. 1.144 bílastæði eru í húsum Bílastæðasjóðs í mið- borginni og 800 stæði í bílakjöll- urum Hafnartorgs og Hörpu. – bg Sumarlokanir í gildi í Reykjavík Fleiri myndir af mannlífinu er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta- blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS 1 . M A Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 1 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E 7 -7 3 D C 2 2 E 7 -7 2 A 0 2 2 E 7 -7 1 6 4 2 2 E 7 -7 0 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.