Fréttablaðið - 01.05.2019, Síða 20
ef fólk gæfi okkur leyfi værum við
vinirnir meira en til í að ganga í
málningarverkið, ef svo bæri við,“
segir Jóhann kátur.
„Uppátæki okkar hófst sem létt
skemmtun en hefur undið upp
á sig í ótrúlega gefandi og upp-
byggilegt verkefni sem við njótum
til fulls. Breiðholtið er að vissu
marki misskilið hverfi en þar eiga
fordómar stóran þátt. Fólk les ef
til vill frétt um að lögreglan hafi
haft afskipti af Breiðholtinu og þá
er hverfið og íbúar þess dæmt með
það sama. Hér var hins vegar gott
að alast upp og hér er gott að vera.“
Þeim vinum þykir einkar gaman
að skella sér í foreldrarölt á kvöldin
og um helgar.
„Foreldraröltið varð til þegar við
vorum á leið í partí annars staðar
í hverfinu. Á sama tíma vorum við
farnir að líta í kringum okkur til
að athuga hvort það væru nokkuð
unglingar að vandræðast á svæð-
inu. Ætli það þýði ekki að ellin sé
farin að segja til sín, en okkur þótti
þetta svo skondið að við höfum
stundað þetta rölt síðan,“ segir
Jóhann broshýr.
Fær falleg bros að launum
Jóhann Helgi er 26 ára háskóla-
nemi sem þykir fátt skemmtilegra
en að leika sér á brimbretti og
fylgjast með fótbolta.
„Það er þrennt sem lýsir Breið-
hyltingum best: virðing, sam-
heldni og vinsemd. Alþjóðamenn-
ingin hefur góð áhrif á hverfið og
Breiðhyltingar njóta þeirra for-
réttinda að kynnast mismunandi
menningarheimum. Það er mín
skoðun að fjölbreytileikinn geri
alla að betri og víðsýnni einstakl-
ingum,“ segir Jóhann sem kannast
vel við niðrandi athugasemdir um
heimahagana í gegnum tíðina.
„Orðsporið er vissulega enn
til staðar; að hér ríki almennur
glundroði og stjórnleysi. Ég held
það séu ekki endilega fordómar
og þar býr sennilega ekkert illt
að baki – frekar þekkingarleysi,“
segir Jóhann og hvetur þá sem ekki
þekkja Breiðholtið til að koma í
heimsókn til að upplifa og njóta
töfra hverfisins.
„Uppskrift að góðum degi heima
í hverfinu mínu er að byrja daginn
á heita pottinum í Breiðholtslaug
sem er besta sundlaug Reykja-
víkur. Á eftir, þegar gengið er út
eftir sundið, er tekin vinstri beygja
og yfir í Iceland Vesturbergi sem
er besta kjörbúð landsins og þótt
víðar væri leitað. Þar fæst landsins
besta úrval af ís. Sund og ís hljómar
mjög næs, sérstaklega ef það er gott
veður,“ upplýsir Jóhann sem vill sjá
meiri þjónustu fyrir hans kynslóð
til að gera frábært hverfi enn betra.
„Til dæmis Mathöll Breiðholt.
Mathallir hafa gefið góða raun
annars staðar og ég sé því ekk-
ert til fyrirstöðu að slíkt myndi
ganga vel í Efra-Breiðholti. Einnig
væri gaman að sjá f leiri ísbúðir í
Breiðholtinu með fjölbreytt úrval
ísrétta,“ segir Jóhann.
Honum þykir gott að gleðja
náungann. Viðtökurnar hafa verið
gefandi og góðar, og margir kalla
hann hverfishetju.
„Það er vissulega ákveðinn
húmor fólginn í því að vera kall-
aður verndari Breiðholtsins, og
gaman að heyra, en ég vil ekki taka
neitt frá fólkinu sem hefur staðið
í þessu með mér. Klapp á bakið fá
Birkir, Atli minn, Arnar Brynjar,
Óli, Katrín, Ási gamli skóli og
sjálfur kóngurinn í hverfinu, Egill.
Sjálfur er ég engin hetja en vil fyrst
og fremst vekja athygli á mikil-
vægi náungakærleikans og því að
brosa til nágranna sinna. Við erum
öll jöfn þegar allt kemur til alls og
þótt fólk verði iðulega hissa á að
mæta mér með mínar velgjörðir í
hverfinu fylgir þeirri undrun alltaf
fallegt bros.“
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr
Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Framhald af forsíðu ➛
Að þora ekki upp í Breiðholt af ótta við að mæta þar glæpagengjum og óþjóðalýð
er akkúrat hugsunarhátturinn
sem ég og vinir mínir úr hverfinu
erum á móti. Hér eru vissulega
þröngar og dimmar götur en lífið
hefur kennt manni að flestir vilja
vel. Hverfið er því ekkert verra
né hættulegra en önnur hverfi,“
segir Jóhann Helgi Sveinsson
sem hrundið hefur af stað kær-
leiksbylgju meðal Breiðhyltinga
sem og vitundarvakningu til að
spyrna við fótum gegn neikvæðri
umfjöllun um Breiðholtið sem
trónir eins og kóróna í hæðum
Reykjavíkur með sín margfrægu
háhýsi og fjölþjóðlega mannlíf.
„Hugmyndin kviknaði í kjölfar
endalauss fréttaflutnings þar sem
sífellt var varpað skugga á Breið-
holtið og hverfið var sérstaklega
nafnbirt, meira að segja í tilvikum
þar sem slíkt var helber óþarfi. Ég
fann því fyrir löngun til að varpa
ljósi á jákvæðar hliðar Breið-
holtsins og í framhaldinu byrj-
uðum við vinirnir að ganga um
hverfið á kvöldin og birta myndir
af því á samfélagsmiðlum okkur
til skemmtunar en líka til þess
að sýna fram á að það sé almennt
lítið um tilefnislausa glæpi hér á
förnum vegi,“ segir Jóhann, sem er
fæddur og uppalinn í Hólahverfi
Efra-Breiðholts en hann bjó um
tíma í Danmörku.
„Efra-Breiðholt er einfaldlega
besta hverfið í borginni og ég vildi
hvergi annars staðar búa. Hér
eignast maður vini fyrir lífstíð og
ég get ekki beðið eftir að verða hér
gamall maður. Að byrja dagana
í pottinum í Breiðholtslaug með
sömu mönnum og ég byrjaði
dagana með í Hólabrekkuskóla
þegar við vorum litlir.“
Sprell sem vatt upp á sig
Jóhann hefur vakið athygli og
aðdáun Breiðhyltinga fyrir fram-
lag sitt til enn betri heimahaga.
Hann hefur meðal annars dúkað
upp borð í alfaraleið til að bjóða
hverfisbúum upp á heita súpu,
kaffi og rúllutertu á göngu þeirra
um hverfið, staðið fyrir foreldra-
rölti um dimma stíga næturinnar
með vinum og málað yfir veggja-
krot til að fegra ásýnd hverfisins,
eins og myndir á samfélagsmiðlum
hafa sýnt.
„Við erum samheldinn hópur
gamalla vina héðan úr hverfinu
og höfum tekið upp á ýmsu með
það fyrir augum að vekja athygli
á jákvæðum viðburðum sem
eiga sér stað í hverfinu. Vissulega
höfum við mjög gaman af og þetta
er því ekki eingöngu grafalvarlegt
verkefni. Okkur strákunum þykir
gaman að slá þessu upp í grín og að
fólk hafi gaman af slíkri nálgun,“
útskýrir Jóhann en þeir félagar
hafa löngum haft gaman af alls
konar flippi og skemmtilegum
uppátækjum.
„Því verður að segjast eins og
er að við máluðum ekki vegginn í
alvöru, enda væri slíkt jafn mikið
lögbrot og að graffa á vegginn
til að byrja með. Með myndinni
vildum við vekja athygli íbúa á
því að víða væri kominn tími til
að skella sér í málningargallann
og mála yfir krassið. Það gerir svo
mikið að hafa fínt í kringum sig og
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Efra-Breiðholt er sjónrænt en sumum stendur stuggur af hverfinu og óttast það. Jóhann Helgi vill sýna þess rétta andlit. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hér eignast maður
vini fyrir lífstíð og
ég get ekki beðið eftir að
verða hér gamall maður.
Að byrja dagana í heita
pottinum í Breiðholts-
laug með sömu mönnum
og ég byrjaði dagana
með í Hólabrekkuskóla
þegar við vorum litlir.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . M A Í 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
0
1
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
7
-9
1
7
C
2
2
E
7
-9
0
4
0
2
2
E
7
-8
F
0
4
2
2
E
7
-8
D
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K