Fréttablaðið - 01.05.2019, Qupperneq 22
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Greinendur Capacent hafa lækkað
verðmat sitt á Skeljungi um þrjú
prósent og meta nú gengi hlutabréfa
í olíufélaginu á 8,1 krónu á hlut. Til
samanburðar stóð gengi bréfanna í
8,04 krónum á hlut þegar markaðir
lokuðu síðdegis í gær.
Lakari sjóðsstaða Skeljungs og
breytt rekstrarspá sérfræðinga
Capacent fyrir þetta ár skýra lægra
verðmat ráðgjafarfyrirtækisins en á
móti vegur að hluta lægri fjármagns-
kostnaður olíufélagsins.
Í verðmati Capacent, sem Mark-
aðurinn hefur undir höndum, er
bent á að allt hafi unnið með Skelj-
ungi í fyrra þegar félagið skilaði
met afkomu. Olíuverð hafi hækkað
auk þess sem umsvif í íslenska
hagkerfinu hafi verið mikil og
fjöldi ferðamanna í hæstu hæðum.
Greinendur Capacent gera ráð
fyrir að EBITDA Skeljungs – afkoma
fyrir afskriftir, fjármagnsliði og
skatta – verði jákvæð um 3.153 millj-
ónir króna í ár en til samanburðar
gera áætlanir stjórnenda olíufélags-
ins ráð fyrir að EBITDA ársins verði á
bilinu 3.000 til 3.200 milljónir króna.
Er meðal annars tekið fram í verð-
matinu að stjórnendur Skeljungs hafi
hagrætt umtalsvert í rekstrinum
sem sýni sig meðal annars í því að
launakostnaður hafi dregist saman
um 130 milljónir króna eða sex pró-
sent í fyrra. Samfara því að framlegð
hafi aukist meira en kostnaður hafi
rekstrarhagnaður sem hlutfall af
framlegð farið úr 24,9 prósentum í
30,4 prósent. – kij
Verðmat Capacent á
Skeljungi lækkar lítillega
Þórarinn Ævarsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri IKEA, vinnur að
því að opna pitsukeðju, samkvæmt
heimildum Markaðarins. Hann
vildi ekki tjá sig um málið í samtali
við blaðið.
Þórarinn kom að stofn-
un Domino’s árið 1993
og veitti fyrirtækinu
forystu á árunum
2000 til 2005. Hann
hefur því áður byggt
upp pitsukeðju og
þek kir því vel til
rekstrar stærsta keppi-
nautarins ef af verður.
Ekki er vitað á hvaða sérleyfi hann
hefur augastað. Á meðal fjögurra
stærstu pitsukeðja í heimi eru tvær
ekki með pitsustað hérlendis, það er
Papa John’s og Little Cesars. Dom-
ino’s og Pizza Hut skipa sama lista
en keðjurnar eru þegar með starf-
semi hér á landi.
Þórarinn sagði nýverið starfi
sínu lausu sem framkvæmdastjóri
IKEA. Hann gegndi því frá árinu
2006 og var síðasti dagurinn
hans í því starfi í gær. Í IKEA
er með pitsudeig til sölu sem
byggist á sambærilegri
u p p s k r i f t o g
Þórarinn not-
aði hjá Dom-
ino’s á sínum
tíma. – hvj
Þórarinn er með nýjan
pitsustað á prjónunum
Fjöldi nýskráninga á
vanskilaskrá fer vaxandi
Ásdís Kristjánsdóttir,
forstöðumaður efna-
hagssvið Samtaka
atvinnulífsins, segir að
þetta sé enn ein vís-
bending um að verulega
sé að hægja á hagkerf-
inu. Rekstrarumhverfið
um þessar mundir er
mjög erfitt fyrir mörg
fyrirtæki og krónan
sterk í sögulegu ljósi.
Mesta aukningin í nýskráningum vanskila er hjá fyrirtækjum í bygginga- og mannvirkjagerð. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Fjöldi nýrra skráninga á vanskila-
skrá hjá fyrirtækjum fer vaxandi.
Hlutfallið hefur ekki verið hærra
á sex mánaða tímabili undanfarin
tvö ár og er nú rúmlega þrjú pró-
sent. Þetta segir Laufey Jónsdóttir,
lögfræðingur Creditinfo, og vitnar í
nýja greiningu fyrirtækisins. Mesta
aukningin er hjá fyrirtækjum í bygg-
inga- og mannvirkjagerð og heild- og
smásöluverslun.
Hún segir að um sé að ræða vís-
bendingar um að farið sé að hægja
á hagkerfinu og nefnir að hlutfall
nýrra skráninga á vanskilaskrá hjá
einstaklingum hafi einnig farið
vaxandi. „Fjöldi nýskráninga á van-
skilaskrá lýsir ástandinu betur en
heildarfjöldi fyrirtækja á skrá,“ segir
Laufey.
„Sögulega hefur verið fylgni á milli
nýskráninga á vanskilaskrá og efna-
hagsástandsins hverju sinni,“ bætir
hún við.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs Samtaka
atvinnulífsins, segir að aukin van-
skil endurspegli breytta stöðu í
efnahagslífinu. „Þetta er enn ein vís-
bendingin um að farið sé að hægja
verulega á hagkerfinu og krefjandi
tímar fram undan í rekstri margra
fyrirtækja. Efnahagshorfur hafa
versnað mjög hratt og ljóst að sam-
dráttur í ferðaþjónustunni hefur
víðtæk áhrif á allt efnahagslífið. Þá
er líklegt að vanskil muni aukast á
næstu mánuðum samfara því sem
efnahagsslakinn verður meiri líkt
og spár gera ráð fyrir.
Rekstrarumhverfið um þessar
mundir er mjög erfitt fyrir mörg
fyrirtæki. Þó krónan hafi gefið
lítillega eftir er hún enn mjög sterk
í sögulegu samhengi sem kemur
niður á samkeppnisstöðu íslenskra
fyrirtækja sem eru í erlendri sam-
keppni. Þá hefur launakostnaður
hækkað mikið síðustu ár og langt
umfram undirliggjandi framleiðni
en ytri skilyrði hafa verið hagstæð
og mikill hagvöxtur hefur skapað
rými til að mæta slíkum launa-
hækkunum. Nú hafa þær forsendur
breyst. Hár launakostnaður samfara
minnkandi hagvexti mun reynast
mörgum fyrirtækjum þungbær sem
þurfa þá að grípa til hagræðingar.
Þá eru skattar á Íslandi enn háir og
lítið svigrúm hefur verið skapað til
að draga úr skattheimtu og öðrum
opinberum gjöldum,“ segir hún.
Að því sögðu bendir Ásdís á að
viðnámsþróttur hagkerfisins sé
sterkari en oft áður við upphaf
niðursveif lu. „Skuldastaða ein-
staklinga, fyrirtækja og hins opin-
bera er sögulega lág. Síðustu ár hafa
skuldir verið greiddar niður og
hagkerfið því betur í stakk búið til
að takast á við áföll. Þá skiptir ekki
síður máli að svigrúm er hjá bæði
hinu opinbera og Seðlabankanum
til að styðja við þá aðlögun sem er
fram undan. Seðlabankinn hefur nú
þegar gefið mjög sterklega til kynna
að stýrivextir muni lækka á næst-
unni auk þess sem stjórnvöld geta
hæglega skapað rými í ríkisrekstri
til að lækka skatta og önnur gjöld.
Slíkar aðgerðir eru nauðsynlegar,
einkum nú þegar efnahagsforsendur
hafa nánast tekið u-beygju á mjög
skömmum tíma.“
Aukin vanskil eru í nær öllum
atvinnugreinum að undanskildum
fyrirtækjum í fjármála- og vátrygg-
ingastarfsemi. Eins og fram hefur
komið er mesta aukning á nýskrán-
ingum fyrirtækja á vanskilaskrá hjá
fyrirtækjum í byggingarstarfsemi-
og mannvirkjagerð eða 4,6 prósent
og í heild- og smásöluverslun en þar
er hlutfallið 3,6 prósent.
„Mikil fjárfesting hefur verið í
byggingarstarfsemi síðustu ár og
skuldsetning aukist samhliða. Bygg-
ingariðnaðurinn er því kannski við-
kvæmari fyrir breyttum rekstrar-
skilyrðum. Í raun má segja að
byggingariðnaðurinn sé að auka
verulega framboð fasteigna sem
hefur eðlilega þau áhrif að það tekur
lengri tíma að selja eignir nú en áður.
Á sama tíma eru efnahagsforsendur
að breytast hraðar en kannski gert
hafði verið ráð fyrir, þannig að heim-
ili og fyrirtæki halda að sér höndum.
Framboð er því fyrst nú að aukast en
á sama tíma er eftirspurnin minni,“
segir Ásdís. helgivifill@frettabladid.is
Hár launakostnaður
samfara minnkandi
hagvexti mun reynast mörg-
um fyrirtækjum þungbær
sem þurfa þá að grípa
til hagræðingar.
Ásdís Kristjáns-
dóttir, forstöðu-
maður efnahags-
sviðs Samtaka
atvinnulífsins
Þórarinn Ævars-
son, fyrrverandi
framkvæmda-
stjóri IKEA,
starfaði lengi
hjá Domino’s.
Borgarráð samþykkti í liðnum
mánuði að veita félagi í eigu meðal
annars Hauks Guðmundssonar og
Péturs Marteinssonar lóðavilyrði til
uppbyggingar á íbúðum fyrir ungt
fólk og fyrstu kaupendur í Skerja-
firði. Er Kvika banki sagður áhuga-
samur um að fjármagna verkefnið.
Gert er ráð fyrir því að allt að 72
íbúðir verði reistar á umræddri lóð
í Skerjafirði en félagið sem hefur
fengið lóðavilyrðið, HOOS, sem
er að fullu í eigu Frambúðar, hefur
undanfarið átt í viðræðum við full-
trúa Reykjavíkurborgar um upp-
bygginguna.
Frambúð er að helmingi í eigu
Hauks Guðmundssonar fjárfestis en
Pétur Marteinsson og Guðmundur
Kristján Jónsson fara báðir með
fjórðungshlut í félaginu, að því
er fram kemur í minnisblaði sem
KPMG tók saman að beiðni Reykja-
víkurborgar.
Í minnisblaðinu segir jafnframt
að Kvika banki, ráðgjafi Frambúð-
ar, sé áhugasamur um að fjármagna
framkvæmdina, að ákveðnum
skilyrðum uppfylltum, en áætl-
aður byggingarkostnaður er um 1,6
milljarðar króna.
Við mat á ætluðu eiginfjárfram-
lagi Frambúðar er gert ráð fyrir að
allar íbúðir verði afhentar í fyrsta
áfanga og að verð fyrir 41 fermetra
íbúð verði 28 milljónir króna. Er
þannig áætlað heildarsöluverð-
mæti íbúðanna um tveir milljarðar
króna.
Enn fremur kemur fram að Fram-
búð muni bjóða kaupendum brúar-
lán fyrir allt að tíu prósentum af
kaupverði sem ekki yrði tryggt með
veði í eigninni. Á móti mun félagið
eiga forkaupsrétt að íbúðum á upp-
runalegu kaupverði þar til brúar-
lánið hefur verið greitt. – kij
Fá lóðir undir fjölda íbúða í Skerjafirði
Pétur
Marteinsson.
1 . M A Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
0
1
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
7
-A
5
3
C
2
2
E
7
-A
4
0
0
2
2
E
7
-A
2
C
4
2
2
E
7
-A
1
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K