Fréttablaðið - 01.05.2019, Síða 31
Ísland er grafreitur
fyrir skyndibita-
staði. McDonald’s gekk ekki
upp, það er óþekkt í heim-
inum. Sömu sögu er að segja
af Burger King.
Nafn á viðmælenda og starfsheiti
ekki punktur á eftir
Alltaf til taks
Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki
Algjörlega
hnökralaust
Vodafone hentar mínum rekstri
best. Þau hafa þjónustað okkur
með allt sem þarf, algjörlega
hnökralaust.
Áskorunum fyrirtækja ekki sýndur skilningur
„Sanngirni er ekki gætt í umræð
unni hvað varðar rekstur fyrir
tækja á Íslandi,“ segir Birgir Örn,
sem jafnframt situr í stjórn Sam
taka iðnaðarins. „Starfsumhverfi
fyrirtækja og þeim áskorunum
sem við er að eiga er ekki sýndur
nægur skilningur.
Fyrirtækjum sem skila góðum
hagnaði er oft mætt með tor
tryggni og arðgreiðslur eru litnar
hornauga. Það kann ekki góðri
lukku að stýra. Skjóti þetta við
horf rótum verður æ erfiðara
fyrir þá sem eiga eða stýra
fjármagni að réttlæta þátttöku
í áhættuverkefnum. Það verður
ekki fram hjá því litið að stund
um tekst vel til í fjárfestingum og
stundum skila þær umtalsverðu
tapi. Það að sigið geti á ógæfu
hliðina vill oft gleymast.
Hagnaður er mikilvægur til að
fyrirtæki fái blómstrað og svo
hægt sé að byggja þau upp en
þau veita fólki atvinnu og skapa
hagsæld þjóða. Því öflugri sem
fyrirtækin eru því betri laun geta
þau greitt og veitt fleirum at
vinnu. Domino’s, sem er burðugt
fyrirtæki, greiðir til dæmis
nokkuð hærri laun í búðunum en
kauptaxti kveður á um í því skyni
að halda starfsmönnum lengur
í vinnu því vanir starfsmenn eru
betri starfskraftar.
Fyrir mörg minni fyrirtæki
getur það reynst þrautin þyngri
að greiða starfsmönnum laun í
hverjum mánuði, húsaleigu og
standa straum af öðrum kostn
aði. Það er ekki vegna þess að
stjórnendur þeirra séu vanhæfir
heldur er krefjandi að reka fyrir
tæki – sérstaklega þau sem hafa
ekki úr miklu fjármagni að moða.
Ég hef staðið í þessum sporum,
sem betur fer ekki í rekstri
Domino’s, og oft hefur launa
greiðslum vera bjargað fyrir horn
samdægurs eða ég hef orðið að
hringja í birgja og biðja um að fá
að greiða reikning viku seinna.
Þetta tók verulega á og þeir
sem ekki hafa staðið í þessum
sporum eiga erfitt með að setja
sig í þau.“
Birgir vekur athygli á að
stundum er sagt að íslensk
fyrirtæki séu almennt illa rekin
í samanburði við fyrirtæki er
lendis. „Glöggt er gestsaugað.
Domino’s á Íslandi hlaut verð
laun frá alþjóðlegum samtökum
sérleyfishafa um framúrskarandi
rekstur, Franchise Association
Awards. Það er vísbending um að
það sé ekki rétt að fyrirtæki hér á
landi standi sig illa.“
Borið hefur á góma í um
ræðunni að kennitöluflakk
sé stundað í nokkrum mæli á
Íslandi. „Það er orðum aukið að
mínu mati í dag. Bankarnir eru
kröfuharðir og lána einungis
gegn því að lagt sé fram eigið fé
í reksturinn og lánin eru oftast
veitt með traustum veðum. Fari
reksturinn í gjaldþrot er ekki
hægt að stökkva frá borði, taka
fjármuni úr fyrirtækinu og reyna
aftur fyrir sér. Þannig gengur það
sjaldnast fyrir sig.
Þeir sem lögðu eigið fé í rekst
urinn hafa tapað því og veðinu
sem var lagt fram til tryggingar
fyrir láni. Bankinn reynir að bæta
upp tjón sitt með því að ganga að
tryggingunum.
Það er því ekki stór hópur
manna sem hagnast á kenni
töluflakki í dag heldur eru
mýmörg dæmi af þeim sem hafa
tapað umtalsverðu fé á að reyna
fyrir sér í fyrirtækjarekstri eða
fjárfestingum,“ segir Birgir Örn.
Grafreitur fyrir skyndibitastaði
Það hafa margir reynt að opna
erlendar pitsukeðjur hér á landi en
engu að síður eruð þið eina stóra
keðjan. Hvað veldur?
„Ísland er grafreitur fyrir skyndi-
bitastaði. McDonald’s gekk ekki
upp, það er óþekkt í heiminum.
Sömu sögu er að segja af Burger
King. Þekktar pitsukeðjur á borð við
Papa John’s og Little Caesars, sem
eru á meðal þeirra fjögurra stærstu
í heiminum, hafa reynt fyrir sér án
árangurs. Pizza Hut var umsvifa-
mikill hérlendis en rekur nú einung-
is tvo veitingastaði. Íslenskar keðjur
hafa einnig átt erfitt uppdráttar,
eins og Pizza 67, Hrói Höttur og
Rizzo Pizzeria og orðið gjaldþrota.
Ísland er erfiður markaður. Hann
er smár og vindar geta breyst á auga-
bragði í efnahagslífinu. Fyrirtækin
þurfa að vera sveigjanleg en erlend
stórfyrirtæki eru vanari stöðugleika
og eiga því erfitt með að fóta sig í
þessu umhverfi.
Það má sömuleiðis lítið út af bera
til að reksturinn gangi illa og þegar
sá bolti fer að rúlla niður brekkuna
getur verið erfitt að stoppa hann.
Samkeppnin er mjög hörð – og
Domino’s er erfiður keppinautur.
Þegar Domino’s var opnað var talið
að markaðurinn myndi bera í mesta
lagi tvo eða þrjá pitsustaði. Það
grunaði engan að hægt væri að reka
hér 25 staði.
Á Íslandi eru seldar flestar pitsur
innan Domino’s miðað við höfða-
tölu í heiminum og nokkrar versl-
anir okkar skipa efstu sæti yfir þær
sem hafa mestu veltu hjá Domino’s
í heiminum þrátt fyrir að hér séu
flestar búðir á hvern landsmann.
Við erum stolt af því að í skoðana-
könnunum er Domino’s talin besta
pitsan. Það er óvanalegt. Í f lestum
löndum hlotnast eldbökuðum pits-
um sá heiður. Þetta gerir það mögu-
lega að verkum að salan gengur vel.“
Stefnið þið á að opna f leiri pitsu-
staði?
„Já, við stefnum á það. Talið er
að Íslendingum muni fjölga um
22 þúsund á næstu fjórum árum á
höfuðborgarsvæðinu og það kallar
á eina til tvær búðir í viðbót. Okkar
markmið er að opna 30 búðir. Það
yrði frábær árangur.“
Kjarasamningar eru áskorun
Hvernig horfa nýir kjarasamningar
við þér?
„Fyrir fyrirtæki sem starfa á sama
sviði og Domino’s, framleiðslu- og
veitingafyrirtæki, verða nýir kjara-
samningar mikil áskorun. Margir
félaga minna eru áhyggjufullir.
Samningnum er ætlað að ná utan
um fjölda ólíkra starfa hjá fjölda
ólíkra fyrirtækja og niðurstaðan
er málamiðlun. Það varð að semja
og skapa frið á vinnumarkaði. Það
var skýr vilji félagsmanna í Sam-
tökum atvinnulífsins að kjósa með
samningunum, 98 prósent kusu
með þeim hætti.
Veitingastaðir, sem eru með fjölda
starfsmanna á launaskrá, þurfa að
horfast í augu við 25-30 prósent
launahækkanir. Það er afar mikið.
Meðalhækkunin fyrir öll fyrirtæki
er 15,7 prósent.
Þeir atvinnuvegir sem þurfa að
glíma við hvað mestar hækkanir eru
framleiðsla, smásala, ferðaþjónusta
og fiskvinnsla. Mörg fyrirtæki sem
starfa á þeim sviðum, einkum þau
minni, höfðu ekki mikið til skipt-
anna fyrir samninganna.“
Hvernig mun Domino’s bregðast
við hækkunum?
„Það þarf að hagræða í rekstri. Við
erum alltaf að reyna að gera betur. Á
meðal þess sem verður skoðað er að
breyta opnunartímum.
Sjálfvirknivæðing færist sífellt í
aukana, 70 prósent pantana fara í
gegnum app eða vefinn en var ein-
ungis þrjú prósent fyrir sjö árum
og 30 prósent í gegnum símaverið.
Þessi þróun mun halda áfram og
skiptir sköpum fyrir reksturinn.
Engu að síður er starfsmanna-
fjöldinn í símaverinu álíka og áður.
Það fer nefnilega svipað mikil velta
í gegnum símaverið núna og þegar
við keyptum fyrirtækið.
Við settum ökurita í bílana okkar
í því skyni að draga úr hraðakstri
og fara betur með bílana. Það hefur
mikill árangur náðst á því sviði.
Kerfið gerir það að verkum að við
uppgötvuðum að bílarnir voru ekki
nýttir nógu vel. Bílar stóðu ónotaðir
á einum pitsustað á meðan annar
leigði bíla af bílaleigu til að anna
eftirspurn.“
Þarf Domino’s að hækka vöru-
verð?
„Við stefnum ekki á það. Það þarf
að reyna að leysa úr stöðunni sem
fylgir auknum kostnaði og það
er ekki hægt að segja til um það
strax með hvaða hætti við munum
bregðast við. Launakostnaður fyrir-
tækisins mun hækka og við munum
væntanlega fá ný vöruverð frá birgj-
um. Hver áhrifin verða á reksturinn
á enn eftir að koma í ljós, kakan á
enn eftir að bakast.
Lykilatriðið er að við munum
halda okkar striki og bjóða fólki
mikið fyrir peninginn.“
Óttastu að kjarasamningarnir
muni draga verulega úr EBITDA-
hagnaði Domino’s?
„Samningarnir munu klárlega
hafa áhrif á EBITDA-hagnað félags-
ins. Það þarf að grípa til margra
aðgerða til að bregðast við breyttum
aðstæðum. Það gildir um öll fyrir-
tæki í okkar geira, fyrir sum verður
þetta gríðarlega erfitt.“
En fyrir ykkur?
„Þetta verður líka erfitt fyrir
okkur.“
Hvernig horfa kjarasamningar
við nýjum eigendum, Bretum, sem
eru ekki vanir kjarasamningum af
þessum toga?
„Það hefur verið f lókið að skýra
þetta út fyrir þeim. Þeir eru ekki
vanir kjarasamningum sem þess-
um. Þeir þekktu til kjarasamnings-
ins sem gerður var á undan og þótti
hann undarlegur. Ísland spilar eftir
öðrum takti hvað varðar launa-
hækkanir og vinnumarkaðinn.“
Bjó lengi í útlöndum
Hvað gerðir þú áður en þú settist í
stól forstjóra Domino’s?
„Ég f lutti til útlanda árið 1997
eftir að hafa lokið námi í hagfræði
og hóf störf hjá Strax, sem selur
íhluti fyrir farsíma alþjóðlega og
var þriðji starfsmaður fyrirtækisins.
Það var stórkostlegt að taka þátt
í þessu ævintýri, fyrirtækinu óx
fiskur um hrygg og veltir nú um 15
milljörðum króna,“ segir Birgir Örn.
Strax er skráð í Kauphöllina í Sví-
þjóð og er markaðsvirðið um þrír
milljarðar króna. Það framleiðir
meðal annars farsímavörur undir
merkjum Adidas og Bugatti og á
vörumerkið Urbanista sem fram-
leiðir heyrnartól.
„Ég f lutti til Miami til að koma
starfseminni í Bandaríkjunum á
laggirnar með Ingva Tý Tómassyni
og bjó þar í nokkur ár, því næst tók ég
við starfseminni í Evrópu og flutti til
Bretlands til að sinna starfinu. Loks
keypti Strax fyrirtæki í Þýskalandi
og ég tók við rekstri þess um hríð.
Þetta var góður tími en á köflum
afar erfiður. Við höfðum úr litlu fjár-
magni að moða og fyrstu tvö árin
fengum við ekki hefðbundin laun
heldur skiptum við peningunum
þegar eitthvað var afgangs. Þetta
var dýrmætur skóli.
Ég sneri aftur til Íslands, vildi
ekki ílengjast erlendis, og tók við
rekstri Cintamani árið 2010. Ég
var orðinn býsna vanur harkinu og
hafði ekki tekið þátt í góðærinu sem
hafði verið á Íslandi í aðdraganda
hrunsins. Marga skorti reynsluna
til að takast á við eftirmál hrunsins
en segja má að ég hafi verið í slíkri
þjálfun í 13 ár, ég var því reiðubúinn
til að takast á við erfið en skemmti-
leg verkefni.
Mér þykir afar skemmtilegt að
byggja upp fyrirtæki. Ég kom að
uppbyggingu Joe & the Juice á
Íslandi, Domino’s í Noregi og er
hluthafi í Billboard/buzz sem er
að breyta flettiskiltum sem margir
kannast við í LED-skjái og er að setja
LED-skjái í strætóskýli á höfuð-
borgarsvæðinu og selur auglýsingar
þangað. Þetta mun bylta auglýsinga-
markaði á Íslandi.“
Hvernig gekk að koma starfsem-
inni í Noregi á fót?
„Það er erfitt að opna nýja mark-
aði. Domino’s hafði ekki verið með
starfsemi þar áður og því vorum
við að byggja upp reksturinn frá
grunni. Það tekur mörg ár að skilja
neytendur á nýjum markaði og
finna jafnvægið í rekstrinum.
Upphaf lega hugmyndin var að
endurtaka leikinn á Íslandi og
byggja á sömu hugmyndafræði,
sömu tilboðum og sambærilegum
auglýsingum. Það gekk ekki eftir.
Við urðum að hlaupa á einn vegg til
fara fram hjá honum og skella síðan
á næsta vegg. Það þarf að gefa þessu
tíma, það er verið að leita leiða og
finna út hvernig best er að haga
rekstrinum í Noregi en þar hefur
verið góður vöxtur milli ára.
Bretarnir keyptu meðal annars
fyrirtækið því við vorum með sér-
leyfissamning um að reka Domino’s
í Noregi og Svíþjóð. Þar eru vaxtar-
tækifæri.“
Kaupa Norðmenn mikið af pits-
um?
„Það eru stórar pitsukeðjur í
Noregi en það kaupir nánast engin
þjóð jafn mikið af pitsum og Íslend-
ingar. Við erum sér á báti hvað það
varðar.“
MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 1 . M A Í 2 0 1 9
0
1
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
7
-8
C
8
C
2
2
E
7
-8
B
5
0
2
2
E
7
-8
A
1
4
2
2
E
7
-8
8
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K