Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 35% AFSLÁTTUR ÚTSALAN Í FULLUMGANGI SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS VISTVÆNAR ANDADÚNSÆNGUR OG KODDAR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Fjölmenni var á íbúafundi sem Vega- gerðin boðaði til í gær á Reykhólum. Talsverður hópur kom af sunnan- verðum Vestfjörðum þrátt fyrir slæmt ferðaveður, að sögn Tryggva Harðarsonar, sveitarstjóra Reyk- hólahrepps. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, kom á fundinn ásamt fleiri starfsmönnum. Þau sögðu frá vinnu og afstöðu Vegagerð- arinnar vegna þess kafla Vestfjarða- vegar sem eftir er að leggja á sunnan- verðum Vestfjörðum. Þá voru ástæður fyrir niðurstöðu um val á veglínu milli Bjarkalundar og Skála- ness skýrðar. Einnig var sagt frá um- ferðaröryggisskýrslu um Vest- fjarðaveg. Að framsögu lokinni svöruðu fulltrúar Vegagerðarinnar spurningum fundarmanna. Sveitarstjórn Reykhólahrepps fundaði með Vegagerðinni fyrir íbúa- fundinn. Tryggvi sagði að laga þyrfti Reykhólasveitarveg án tillits til þess hvaða leið verður valin vestur. Fjölmenni á fundi um vegamál Ljósmynd/Sveinn Ragnarsson Íbúafundur Ekki fengu allir sæti á íbúafundi um vegamál í Reykhólaskóla á Reykhólum í gær og kom fólk m.a. af sunnanverðum Vestfjörðum. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Helst hef ég áhyggjur af því að tapa fagfólki sem þegar er af skornum skammti, enda stundum erfitt að manna leikskólana. Það eru auðvitað alltaf átök þegar farið er í samein- ingar, ekki bara fyrir starfsfólk held- ur einnig börn og foreldra. Þetta myndi því setja báða leikskóla í hálf- gerða upplausn,“ segir Berglind Hall- grímsdóttir, starfandi leikskólastjóri á Suðurborg í Breiðholti. Vísar hún í máli sínu til tillögu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur- borgar um sameiningu tveggja leik- skóla, Suðurborgar og Hólaborgar, í Suðurhólum í Breiðholti. Er í tillög- unni gert ráð fyrir að með sameiningu verði til nýr leikskóli 10 deilda með um 160 börn og með sérhæfðri ung- barnadeild. Í dag liggja lóðir skólanna saman og eru þær aðskildar með girð- ingu, en 43 metrar eru á milli Suð- urborgar og Hólaborgar. Aðspurð segir Berglind „áhyggju- hljóð“ vera í starfsfólki á Suðurborg. „Það kvíðir þessum fyrirhuguðu breytingum og ég hef áhyggjur af því að missa starfsfólk. Það mun svo hafa áhrif heim til foreldra og auðvitað á starfið með börnunum,“ segir hún og bætir við að foreldrar séu þegar búnir að óska eftir fundi með starfsfólki leikskólans. „Fólk vill fara betur yfir þetta,“ segir hún. Borgin vill stórar einingar Sigrún Grétarsdóttir er starfandi leikskólastjóri á Hólaborg. Hún tekur í svipaðan streng og hugnast ekki hugsanleg sameining skólanna. „Þetta er ekki eitthvað sem við í skólanum myndum velja sjálf. En stefna Reykjavíkurborgar er að vera með stóra leikskóla og margar deildir og það er það sem þeir stefna að,“ segir hún og bætir við að Hólaborg sé lítill leikskóli, með þrjár deildir og um 50 börn. Suðurborg er hins vegar sjö deilda leikskóli fyrir 113 börn. „Svo má ekki gleyma því að innan þessara tveggja skóla er rekin ólík uppeldisstefna,“ segir Sigrún og á þar meðal annars við að í starfi Suður- borgar er farið eftir hugmyndafræði sem byggist á jákvæðu agakerfi, svo- nefnt PBS, auk þess sem hann sinnir einnig atferlisþjálfun fyrir börn á ein- hverfurófi. Á Hólaborg er aftur á móti lögð áhersla á að auka flæði í leik- skólastarfinu, ferilmöppur, skráning- ar og hópastarf. „Einfaldlega of mikið í húfi“ Fram kemur í greinargerð með til- lögu um sameiningu leikskólanna að bæði Berglind og Sigrún stýri leik- skólum sínum tímabundið eftir að leikskólastjórar létu af störfum og renna tímabundnar ráðningar þeirra beggja út 31. mars næstkomandi. Verði af sameiningu myndi einn leik- skólastjóri verða ráðinn í stað tveggja. Þá er einnig gert ráð fyrir sparnaði í rekstri mötuneyta með breyttu fyrirkomulagi. Yrði hádegis- verður framleiddur í Suðurborg en eldhús Hólaborgar fengi hlutverk móttökueldhúss. Þá er í greinargerð einnig minnst á nýlega viðbyggingu við Suðurborg, sem reist var til að bæta starfsmannaaðstöðu þar, og er hún sögð myndu nýtast í stærra sam- hengi þar sem aðstaða starfsmanna í Hólaborg er sögð bágborin. Örn Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og aðalmaður í skóla- og frístundaráði, tekur undir áhyggjur Berglindar. „Allur óróleiki getur leitt til brottfalls menntaðs starfsfólks og það er mikið áhyggju- mál enda þurfum við á hverjum ein- asta starfsmanni að halda,“ segir hann og heldur áfram: „Ég tel þörf á því að taka þetta mál til frekari skoð- unar á næsta fundi ráðsins. Það er einfaldlega of mikið í húfi.“ Myndi setja leikskólana í upplausn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Breiðholt Starfsfólkið er sagt kvíða þeim breytingum sem horft er til.  Til skoðunar er að sameina tvo leikskóla í Breiðholti  Leikskólastjórar beggja skóla eru andvígir sameiningu  Annar segist hafa áhyggjur af því að missa starfsfólk og hinn bendir á ólíkar stefnur Bjarna Sæmundssyni, rannsókna- skipi Hafrannsóknastofnunar, verð- ur að óbreyttu lagt fyrir fullt og allt í haust. Þá mun að minnsta kosti tólf til sextán manns verða sagt upp störfum að sögn Sigurðar Guðjóns- sonar, forstjóra Hafrannsóknastofn- unar. Ástæðan er krafa um mikla hagræðingu í rekstri stofnunarinn- ar, sem greint hefur verið frá í Morg- unblaðinu. „Við höfum núna tekið þá ákvörð- un að leggja öðru rannsóknaskipinu, Bjarna Sæmundssyni, í haust. Þá munum við leigja Árna Friðriksson til Noregs í haust í einn og hálfan mánuð,“ sagði Sigurður í samtali við 200 mílur í gær. Aðspurður segir hann að Bjarna verði þá lagt fyrir fullt og allt nema til komi einhver leiðrétting á því ástandi sem nú er uppi. Spurður hvort því muni fylgja uppsagnir, segir Sigurður að það sé óhjákvæmilegt. „Þegar við leggjum einu skipi þá er farin ein áhöfn. Og því miður er það ekki nóg, það verð- ur sjálfsagt eitthvað að fækka í landi líka,“ sagði hann og bætti við að búið væri að tilkynna starfsmönnum að fyrirhugað væri að leggja Bjarna. Útlit er því fyrir að ekkert íslenskt hafrannsóknaskip verði á Íslands- miðum á eins og hálfs mánaðar tíma- bili í haust. „Síðan verðum við bara að keyra á einu skipi, ef þetta verður raunin.“ sh@mbl.is Bjarna lagt og fólki sagt upp  Hafró bregst við hagræðingarkröfu Óveðrið í gær olli rafmagnsbilunum á Vestfjörðum og foktjóni. Björgunarsveitin Dagrenning á Hólmavík var búin að fá tvö útköll um klukkan 20.30 í gærkvöld. Það fyrra var vegna garðhúss sem fauk á íbúðarhús. Seinna útkallið var vegna þaks sem var að fjúka í byggðarlaginu. Nokkrar rafmagnstruflanir urðu vegna óveðursins fyrir vestan. Bíldudalslína sló út í hádeginu í gær og var gripið til varaafls. Þá fór rafmagn af í Árneshreppi um klukkan 14.00 og var rafmagn kom- ið aftur á þar klukkan 14.48. Patreksfjarðarlína bilaði og sló rafmagn út á Patreksfirði og þar í kring um kl. 14.10. Gripið var til varaafls meðan bilunar var leitað. Björgunarsveitin Blakkur fór með starfsmönnum Orkubús Vestfjarða og fundust bilanir á báðum línum. Ljúka átti viðgerð fyrir miðnætti. gudni@mbl.is Rafmagnsbilanir og foktjón fyrir vestan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.