Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 53
1 msk svartur pipar grófmalaður 1 msk reykt paprikuduft 1 msk chiliflögur Öllu blandað saman. Sætkartöflu- og appelsínumús 1 stór sæt kartafla 4 appelsínur 20 g smjörlíki salt Kartaflan flysjuð og skorin í litla bita, safinn er kreistur úr appels- ínunum og settur í pott með sætu kartöflunni, það má bæta smá vatni í pottinn svo að vökvinn fljóti yfir. Soðið þar til kartöflurnar eru orðnar mjög mjúkar. Þá eru þær settar í blandara með helmingnum af safanum sem eftir er og klípu af smjörlíki. Blandað þar til slétt áferð fæst. Smakkað til með salti. Blómkálskúskús ½ haus blómkál 2 hausar blómkál (aðeins miðjan á þeim fer í steikina, restina er gott að nýta í kúskús eða mauk) 1 dl sítrónuolía grænmetisrub – eftir þörfum. Blómkálið skorið í u.þ.b. 1½ cm þykkar sneiðar úr miðjum hausn- um. Sítrónuolíu nuddað á það og grænmetisrubi stráð yfir. Blómkál- inu er síðan vakúmpakkað og eld- að í sous vide á 72°C í 2 klst. Síðast er það steikt á sjóðheitri pönnu til að fá góða og fallega húð utan á það. (Ekki er nauðsynlegt að nota so- us vide við blómkálið, einnig má steikja það beint á pönnu og klára í ofni á 180°C í um það bil 10 mín- útur.) Grænmetisrub 3 msk þurrkað óreganó 2 msk þurrkuð steinselja 2 msk þurrkað timían 2 msk flögusalt ½ pakki graslaukur 1 sítróna 8 msk stökkt kínóa salt Blómkálið annaðhvort rifið nið- ur á grófu rifjárni eða skorið mjög smátt, graslaukurinn einnig skor- inn smátt. Þessu er blandað saman ásamt stökka kínóanu, smátt rifn- um berkinum af sítrónunni sem og safanum. Smakkað til með salti Spicy tómatsósa 300 g tómatsósa 1 msk chiliflögur 1 tsk sriracha-chilisósa 1 stk skallottlaukur 3 msk kóríander salt Laukur og kóríander skorinn smátt. Næst er öllu blandað saman og hrært vel, gott er að leyfa sós- unni að standa í u.þ.b. tvo tíma áð- ur en hún er notuð. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hægelduð blómkálssteik Sjóðheitt blómkál Blómkál er það allra heitasta þessi dægrin og ekki að ástæðulausu. Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty Shoulder cushion Verð 1.950 kr. Comfort bra Stærðir S-XXL. Verð 3.990 kr. Nærbuxur 2 í pakka. Stærðir S-XXL. Verð 2.950 kr. Comfort straps Verð 2.550 kr. Púðar til að setja hlýrana inn í til að dreifa álagi á öxlum og stamir svo hlýrarnir síður af öxlunum. Það eru fáir lunknari í eldhúsinu en Aníta Ösp Ingólfsdóttir, yfir- matreiðslumaður á Ríó Reykjavík, en hér galdrar hún fram ómót- stæðilega vegan-rétti fyrir lesendur eins og henni einni er lagið. Vegan er málið og á miðvikudögum verður boðið upp á auka vegan-valkosti sem ættu að gleðja sælkera þessa lands. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vandræðalega gott vegan Mögnuð hollusta Aníta Ösp Ingólfsdóttir, matreiðslumeistari á Ríó Reykjavík fram- reiðir frábæran mat og vegan-réttirnir hennar eru í algjörum sérflokki. Þessa dagana virðist meirihluti lands- manna vera að taka mataræðið í gegn eftir vel heppnað vellystingatímabil yfir hátíðarnar. Ketóbókin selst eins og heitar lummur en samkvæmt heimildum Matarvefjarins rjúka LKL-matarpakkar út hjá fyrir- tækjum á borð við Einn, tveir og elda sem sérhæfa sig í máltíðum sem koma undirbúnar heim í hús og ein- ungis þarf að elda. „Það vill svo til að það er yfirleitt auðvelt að matreiða lágkolvetna- máltíðir og upp til hópa er þetta bara venjulegur heimilismatur nema öllum kartöflum, brauði og aukafyllingu er sleppt. Það gerir það að verkum að fólk er ekki að mikla þetta fyrir sér og nær auðveldlega að halda sínu striki,“ segir talsmaður Einn, tveir og elda aðspurður um ástæður vinsæld- anna. Að hans sögn hefur lágkolvetna- pakkinn aldrei selst jafn vel og al- gengt sé að viðskiptavinir kaupi sér þjónustuna viku eftir viku. Það er því ljóst að þjóðin er að hugsa um heils- una, enda sjálfsagt ekki vanþörf á, og greinilegt að ketó- og lkl-mataræðið er langvinsælast hér á landi. Þægindi Vinsælt er að panta matarpakka sem þessa beint heim að dyrum. Fjölskyldufólkið velur LKL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.