Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
og hafa starfsmenn verið flestir um
40. Það er talsverð tímapressa en við
erum á áætlun. Við verðum að ná að
loka húsinu núna í janúar og maður
vonar að veðrið verði okkur hag-
stætt. Þá tekur við að koma tækja-
búnaði fyrir og svo prufukeyra allt
saman og stilla áður en dýrin koma.“
Eyjamenn á heimavelli
Eyjamenn eru á heimavelli þegar
kemur að því að taka á móti hvölum.
Það var mikið fjölmiðlafár þegar há-
hyrningurinn Keikó var fluttur frá
vesturströnd Bandaríkjanna í beinu
flugi til Vestmannaeyja haustið
1998. Mátti þá litlu muna að illa færi
þegar hjólabúnaður vélarinnar
brotnaði í lendingu á Vest-
mannaeyjaflugvelli. Allt fór þó vel
og Keikó komst á sinn stað í Kletts-
vík en nú er hann allur og allt sem
minnir á veru hans í Klettsvíkinni er
horfið en verið er að leggja lokahönd
á kví og bryggjur fyrir Litlu-Grá og
Litlu-Hvít. „Allt okkar starf snýst
um að hafa allt klárt þegar stundin
rennur upp og það mun takast,“ seg-
ir Bragi.
Samhliða hefur verið unnið að
gerð kvíar í Klettsvík sem verður
aðalheimkynni mjaldranna. Að því
koma þrjú fyrirtæki, Króli sem sér
um smíði á kví og bryggjum, Ísfell
sér um netið í kvíarnar og Gerp um
alla köfun.
„Við byggjum á reynslunni af
Keikókvínni og höfum þetta allt ein-
faldara og hún er innar í víkinni.
Sem kemur sér vel því þarna getur
orðið ansi hvasst svo ekki sé meira
sagt,“ segir Bragi.
Risafyrirtæki á bak við komu
hvalanna til Vestmannaeyja
Páll Marvin Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Þekkingarseturs
Vestmannaeyja, hefur komið að
uppbyggingu náttúru- og hvala-
safnsins í Fiskiðjunni frá því hug-
myndin fyrst kviknaði og viðræður
hófust við Merlin Entertainment.
Það fyrirtæki er ekkert venjulegt,
annað stærsta fyrirtæki í heiminum
í rekstri skemmtigarða á eftir Disn-
ey, með rekstur víða um heim og eru
gestir um 60 milljónir á ári.
Það eru ekki bara mjaldrarnir
sem málið snýst um því stjórnendur
Merlin hafa mikinn áhuga á lund-
anum og pysjueftirlitinu sem fer í
gang á hverju hausti þegar pysjan
fer af stað. Ekki liggur fyrir hver
kostnaður verður en Vest-
mannaeyjabær þarf ekki að leggja
fram krónu.
Þegar rætt er við Pál um móttöku
hvala í Vestmannaeyjum er talað við
mann með reynslu en hann var í
fremstu víglínu Eyjamanna sem
tóku á móti háhyrningnum Keikó
1998. „Það var kannski reynsla mín
af Keikóverkefninu sem varð til þess
að ég tók það alvarlega þegar við-
ræður hófust við Merlin Entertain-
ment. Við áttum fund á Skype í maí
2016 og þá fóru hjólin að snúast.
Núna, þremur árum seinna, er þetta
að verða að veruleika,“ segir Páll
Marvin í samtali við Morgunblaðið.
Málið var kynnt í bæjarstjórn og
næsta skref var að kanna hvort að-
stæður hentuðu. „Ég kafaði í Kletts-
víkinni og tók fyrir þá myndir. Einn-
ig könnuðum við hljóðmengun í
samstarfi við vísindahóp sem hér
hefur kannað háhyrninga und-
Nýtt hús Á fyrstu hæð Fiskiðjunnar og í nýbyggingu við gömlu Fiskiðjuna verður náttúrugripasafn og laug fyrir hvalina með tilheyrandi tæknibúnaði.
Lögheimilið flutt úr sjávardýragarði í Sjanghæ í Klettsvík í Vestmannaeyjum
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551 3033
30-50%
afsláttur
ÚTSALA
karlmenn
Flottir í fötum