Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 61
MINNINGAR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
✝ Erna ÓskarsÓskarsdóttir
fæddist 19. júlí
1934 í Reykjavík.
Hún lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítala við Hring-
braut 24. desember
2018.
Móðir hennar
var Lára Fríða
Ágústsdóttir, f. 9.
júlí 1912, d. 25. júní
2001. Faðir Láru var Ágúst Lár-
usson Lúðvíkssonar skókaup-
manns og móðir var Ágústa
Magnúsdóttir Sigurðssonar
pósts og Guðbjargar Jóns-
dóttur. Faðir Ernu var Óskar
Gíslason skipstjóri og útgerð-
armaður í Vestmannaeyjum, f.
6. mars 1913, d. 19. janúar 1983.
Foreldrar hans voru Gísli
Magnússon útgerðarmaður frá
Skálholti í Vestmannaeyjum og
september 1955 í Vestmanna-
eyjum, stýrimaður, búsettur í
Noregi, maki Marit Eriksson, d.
1. ágúst 2013. 2) Óskar, f. 26.
júlí 1958 í Reykjavík, kerfis-
fræðingur, giftur Vibeke Hard-
ers fjármálafulltrúa, eru þau
búsett í Danmörku. Synir þeirra
eru a) Þorbjörn 3D-hönnuður
og b) Valdemar nemi. Áður átti
Óskar soninn Óðin Örn, smið
sem búsettur er í Bandaríkj-
unum, móðir hans er María
Kristjánsdóttir. 3) Ágúst, fædd-
ur í Kópavogi 1960, bækl-
unarskurðlæknir, giftur Svan-
fríði Helgu Ástvaldsdóttur.
Börn þeirra eru a) Íris Ósk
innanhússhönnuður, gift Ægi
Friðrikssyni matreiðslumanni,
þeirra börn Markús Júlían, Jak-
ob Leó og Maríana Mírey, og b)
Magnús Kári 3D-hönnuður.
Erna og Kári ólust upp í
Vestmannaeyjum. Þau byggðu
sér fallegt heimili á Löngu-
brekku 31 í Kópavogi, þar sem
Kári býr enn, og bjuggu þar
alla sína búskapartíð frá árinu
1961.
Útför hennar fór fram í kyrr-
þey 4. janúar 2019 í Fossvogi.
kona hans Sigríður
Einarsdóttir. Erna
átti tvær systur og
var elst. Systur
hennar eru Hrefna,
fóstra, búsett í
Bandaríkjunum,
gift John Minner
smiði, þau eiga
þrjú börn, og
Ágústa, matráður,
gift Ernst Kettler
kvikmyndagerðar-
manni, þau eiga þrjú börn.
Um páskana 26. apríl 1957
giftist Erna eftirlifandi maka
sínum, Kára Óskarssyni múr-
arameistara, f. í Reykjavík 25.
júlí 1931. Foreldrar hans voru
Óskar Kárason byggingar-
fulltrúi, f. 9. ágúst 1905, d. 2.
maí 1970, og Anna Jesdóttir, f.
2. desember 1902, d. 18. septem-
ber 1994. Synir Ernu og Kára
eru: 1) Hreiðar Haukur, f. 4.
Minning um móður.
Það er auðvelt að skrifa minn-
ingu um móður okkar bræðra.
Margar minningar geymast í
hjarta okkar um ókomna tíð.
Minningin er sterk um sjálf-
stæða konu með sterkan útgeisl-
andi persónuleika og mikla hæfi-
leika á ýmsum sviðum.
Sjálfstæði mömmu sést vel á að
19 ára fór hún ein til Þýskalands
og Englands og dvaldi í heilt ár,
heimsótti ættingja og fór í skóla.
Mikinn listrænan áhuga hennar
nýtti hún til að ýta undir okkar
listsköpun allt frá unga aldri,
þannig lifir hennar list í okkur.
Mamma var húsmæðraskóla-
gengin og matarást heimilis-
fólksins á henni hefur alla tíð
verið mikil og var matreiðsla
hennar í hæstu gæðum. Ungir
fengum við bræður að hræra í
pottum og með jákvæðni hennar
og kunnáttu vorum við allir
farnir að búa til mat áður en við
vissum af af hjartans lyst.
Skipulag, hreinlæti og vinnulag
mömmu í eldhúsinu var til mik-
illar fyrirmyndar og lærðum við
bræður allir af. Grænir fingur
mömmu lifa áfram í okkur
bræðrum, en gróður og blóm
voru hennar yndi og garðurinn á
Löngubrekku samsafn úr nátt-
úru Íslands þar sem á ferðalög-
um pabba og mömmu voru
ávallt teknir græðlingar af fal-
legum blómum. Mamma varð
snemma hugfangin af blómi
blómanna sem er rósin og hóf að
rækta eðalrósir í gróðurhúsi
sem pabbi setti upp heima.
Mamma var félagi í rósarækt-
unarklúbbi garðyrkjufélagsins
um árabil og öðlaðist þekkingu
og næmni í rósarækt. Fegurð
rósanna er einstök og marg-
breytileg, ræktun á þeim krefst
hæfileika og þekkingar sem ekki
er öllum gefið. Mamma smitaði
okkur af ræktunaráhuga sínum
og nú höfum við tekið við keflinu
og báðir höfum við bræður
gróðurhús hvor í sínu landinu.
Þannig lifir hluti af móður okkar
áfram og mun gera um ókomin
ár.
Aldrei meira en nú í lokin
kom fram sterkur persónuleiki
mömmu okkar, aldrei kvartaði
hún sjálf um eigið ástand þrátt
fyrir margvíslega sjúkdóma.
Hún hafði mestar áhyggjur af
pabba og var ávallt á leið heim
til hans. Hún ætlaði heim á jól-
um og gerði það að lokum.
Ávallt kvaddi hún okkur bræður
mína og pabba á spítalanum
með brosi án þess að kvarta og
kyssti á báða vanga, þakkaði
fyrir komuna og vinkaði þegar
við stóðum í dyrum sjúkrastof-
unnar.
Þar sem pabbi og mamma ól-
ust upp í Vestmannaeyjum fram
að búskap og fjölskyldur þeirra
beggja samofnar sögu Vest-
mannaeyja, minntust þau Eyja
ávallt með hlýhug og virðingu.
Okkur langar að enda þessi
minningarorð um móður okkar
með tilvitnun í eftirmála sem
lýsir vel að okkar mati persónu-
gerð og lífssýn mömmu úr bók-
inni „Bergið klifið“ eftir Hlöðver
Johnsen. Það var sóknarprest-
urinn Þorsteinn Lúther Jónsson
sem lýsti lífi frumbyggja í eyjum
„útvegsbænda“ árið 1967 í Bliki;
„Í kyrrð og rósemi vinnur það
óhjákvæmilega öll sín störf, en
heiðarleiki og trúmennska í
smámunum er höfuðprýði þess.
Þannig ber það hita og þunga
dagsins, sem hinn trausti og
innsti kjarni þjóðarsálarinnar,
væntir sér hvorki hróss né út-
nefningar af neinu tæi og hverf-
ur síðan jafn hljóðlega til feðra
sinna eins og það kom inn í
þennan heim. Samt hefur það
unnið sér ógleymanlegan sigur-
sveig í hugum þeirra sem voru
svo hamingjusamir að fá að
kynnast því og njóta mann-
gæðanna, sem það átti í svo rík-
um mæli. Og þótt ekki fari há-
værar sögur af þessu fólki, á það
engu síður stórslegna og merki-
lega sögu, sem kallar á okkur til
frásagnar.“
Megi minning um ástkæra
móður okkar lifa.
Ágúst og Óskar.
Elsku kæra mamma. Núna
ert þú farin frá okkur og komin
heim í Guðs ríki! Við trúum því
sem Jesús Kristur sagði: Þeir
sem á mig trúa munu ekki deyja
heldur öðlast eilíft líf, með mér
hjá mér.
Það fyrsta sem kemur upp í
huga minn er besta mamma í
heimi. Þú varst svo ótrúlega góð
og hjálpsöm, dugleg og flink, al-
veg sama hvað þú gerðir, og svo
fjölhæf og fljót og það var alltaf
gaman að vera með þér. Þú
kenndir mér alltaf eitthvað nýtt
sem hefur nýst mér og fylgt mér
alla ævi.
Það er af svo ótrúlega mörgu
að taka. Einu sinni þegar við
strákarnir þínir vorum að kom-
ast á táningsaldurinn kallaðir þú
á okkur á þinn fund og sagðir:
„Elsku drengirnir mínir, nú er
ég með hugmynd um það að á
sunnudögum eldið þið og gangið
frá eftir matinn,“ en þá vorum
við vön að borða saman sunnu-
dagsmat sem oftast var lamba-
læri, hryggur eða kótelettur í
raspi og brúnaðar kartöflur og
svo eitthvað gott í eftirrétt. Hún
vildi að við lærðum að búa til
mat og ganga frá öllu eftir
matinn, bjarga okkur sjálfir.
Hún mamma var alltaf með okk-
ur og kenndi okkur og hrósaði
okkur á eftir með kossum og
faðmlagi. Nú get ég sagt með
hreinni samvisku að ég og bræð-
ur mínir erum allir flinkir að
laga mat og sjaldan neinn sem
kvartar. Takk elsku mamma.
Þú varst ótrúlega fjölhæf
elsku mamma, saumaðir, prjón-
aðir, heklaðir og málaðir.
Ég man þegar Bítlarnir urðu
frægir og tískan og músíkin
þeirra fór um allan heim, líka í
Kópavoginn. Þá kom ég til þín
og bað þig um hjálp. Ég var
með mikið krullað hár sem pass-
aði ekki alveg við tískuna þá! Þú
lánaðir mér nælonsokk og ég
bleytti hárið með vatni og
smeygði sokknum yfir höfuðið
og hárið og svaf með hann um
nóttina, daginn eftir var ég með
þetta líka fína „bítlahár“, svona
leystir þú þetta vandamál mitt!
Takk mamma. Þú saumaðir líka
á mig útvíðar „bítlabuxur“ og
gerðir mig svakalega glaðan og
fínan. Takk mamma.
Elsku mamma, þú hafðir
sannarlega græna fingur, rós-
irnar þínar sem blómstra allt ár-
ið svo ótrúlega stórar og fallegar
að orð geta ekki lýst því. Blóm,
grænmeti, tómatar og jarðarber;
allt blómstraði í höndunum þín-
um. Takk mamma mín. Það er
með mörgum tárum og ótrú-
legum söknuði sem ég kveð þig.
Takk, elsku mamma, fyrir allt
og allt.
Þinn sonur,
Hreiðar.
„Þegar ég sá Ernu fyrst var
ég tíu ára og nýflutt í nágrennið,
ég gat ekki annað en tekið eftir
þessari glæsilegu konu sem
gekk svo rösklega, seinna lærði
ég að það var hennar stíll og
hún gekk alltaf rösklega. Seinna
varð hún tengdamóðir mín og
urðum við strax góðar vinkonur.
Hún sagði við mig að hún ætti
þrjá yndislega syni en hana hafi
alltaf langað í dóttur og þar sem
hún fékk enga þá gæti ég verið
dóttirin sem hún aldrei fékk og
reyndist hún mér sem móðir alla
tíð. Hún var frábær kokkur og
eldaði góðan mat enda ástríða
hennar. Maturinn varð að vera
fallega borinn fram og vera
góður. Hún var húsmæðraskóla-
gengin, mjög praktískt nám.
Hún saumaði og prjónaði öll föt
á fjölskylduna fyrstu árin og síð-
ar á ömmubörnin þegar þau
komu. Ég naut leiðsagnar henn-
ar bæði með að elda og sauma,
hún kunni allt og kenndi mér
t.d. að setja rennilás á buxur og
ýmislegt um frágang og snið.
Hún leiðbeindi alltaf á fallegan
hátt eins og t.d. einu sinni þegar
ég var að prjóna peysu og var
langt komin með bolinn þá sýndi
hún mér í hvernig skapi ég var á
meðan ég prjónaði þar sem
lykkjurnar voru mislausar og
hlógum við báðar af þessu, ég
rakti upp bolinn og varð að aga
mig betur við tilraun tvö. Þegar
Ágúst var að byrja á öðru ári í
læknisfræði fæddist dóttir okkar
og var með eyrnabólgu fyrstu
mánuðina og svaf illa. Hann var
að lesa frá morgni til kvölds og
var því ekki hægt að láta hann
vaka með henni. Þá buðust þau
til að skiptast á að vaka með
henni á móti mér til að ég gæti
fengið svefn. Alltaf svo óeigin-
gjörn þegar kom að barnabörn-
unum sem fengu sérstakan sess
og alltaf sett í fyrsta sætið. Hún
naut þess að fá að umgangast
þau og leit á það sem forréttindi
sem allir nutu góðs af. Nú hafa
líka barnabarnabörnin einnig
fengið að njóta kærleika og um-
hyggju á Löngubrekkunni og
sækja þau í að fara þangað. Þar
er alltaf til eitthvað sem þeim
þykir gott og sækjast þau í ró-
legheitin.
Erna gerði garðinn sinn fal-
legan eins og skrúðgarð og sagði
hún mér að það væri hennar
hugleiðsla að róta í moldinni og
hlúa að fallegum blómum og
runnum. Enda hafa allir notið
þess að vera í garðinum hennar
því umhyggjan skilaði sér til
okkar sem vellíðan í fallegu um-
hverfi. Rósaræktin var stór hluti
af Ernu og litla gróðurhúsið sér-
lega fallegt fullt af stórum fal-
legum rósum. Erna var mikill
lestrarhestur og hafði þann eig-
inleika að geta lesið mjög hratt
þar sem hún strauk fingri niður
síðuna og var hún komin með
innihaldið á augnabliki. Þannig
las hún sumar bækur sem henni
þótti ekki mikið varið í og kall-
aði það að hafa farið yfir á
hundavaði. Mörgum árum
seinna sá ég að þetta var kennt í
hraðlestrarskólum.
Undanfarin ár hafa verið
Ernu erfið vegna veikinda en
hugurinn alltaf jafn skapandi og
lifandi en þrekið ekki mikið, með
þolinmæði og æðruleysi lét hún
hverri stund nægja sína þján-
ingu og gerði það sem hún gat á
skapinu einu saman án þess að
kvarta.
Mig langar til að þakka Ernu
fyrir allt sem hún hefur gert
fyrir mig og gefið mér af óeigin-
gjörnu örlæti. Guð geymi þig.
Þín tengdadóttir,
Helga.
Elsku amma mín. Það er svo
sárt að kveðja. Hlýja mjúka
faðmlagið þitt, allir aukakoss-
arnir þegar við kvöddumst, öll
blíðu orðin þín. Í kringum þig
var alltaf svo mikil ást. Það var
ást í öllu sem þú gerðir, hvort
sem það var að hugsa um okkur,
heimilið, afa eða rósirnar þínar
og garðinn ykkar. Þú gafst alltaf
svo mikið af þér. Nærvera þín
var svo mjúk og þægileg að þeg-
ar ég kom í heimsókn vildi mað-
ur helst ekki fara aftur.
Elsku amma. Ég sakna þín.
Þú hafðir svo góðan húmor
fyrir sjálfri þér og það var svo
gaman að heyra sögur af þér
ungri. Eins og þegar þið Sirrý
áttuð að fara að læra á píanó, en
það gekk svo illa að þér var vís-
að út úr tímanum áður en hann
var hálfnaður og ekki hleypt inn
meir. Eða sögur af kjólunum
sem þú hannaðir og þú leist út
eins og kvikmyndastjarna. Það
var svo gaman að tala við þig
um bækur, það varst ábyggilega
þú sem kveiktir áhuga minn á
bókmenntum. Þú ýttir að mér
bókum úr þinni barnæsku sem
ég gleypti í mig og hafði unun af
að lesa og lifa mig inn í gamla
tíma.
Elsku amma mín, ó, hvað ég
sakna þín.
Þú elskaðir mig svo mikið og
ég fann það alltaf svo vel. Þú
elskaðir börnin mín svo mikið og
þau drógust að þér. Þú kemur
ávallt til með að lifa í okkur í
gegnum kærleika og umhyggj-
una sem þú kenndir okkur að
endurkasta út í heiminn. Mikið
vorum við fjölskyldan lánsöm að
fá að eiga þig og njóta þess að
alast upp hjá þér og í kringum
þig. Takk fyrir allt, elsku amma.
Þín
Íris.
Erna Ó.
Óskarsdóttir
✝ TheodóraSteffensen,
eða Dídó eins og
hún var kölluð,
fæddist í Reykja-
vík 17. september
1928. Hún lést á
Hrafnistu í
Hafnarfirði 27.
desember 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Björn Stef-
fensen endurskoð-
andi og Sigríður Árnadóttir
Steffensen húsmóðir.
Theodóra var elst fjögurra
barna Björns og Sigríðar. Hin
eru Sigþrúður, sem er látin,
Helga og Björn.
Hinn 20. desember 1947 gift-
ist hún Finnbirni Þorvaldssyni,
sem starfaði lengst af sem
fjármálastjóri hjá Loftleiðum.
Hann lést í júlí á síðasta ári, 94
ára að aldri.
Börn þeirra eru: 1) Björn,
kvæntur Sigríði Aradóttur. 2)
Finnbjörn, kvænt-
ur Kathiu Rovelli.
3) Þorvaldur,
kvæntur Önnu
Árnadóttur. 4) Sig-
ríður, gift Halldóri
G. Hilmarssyni. 5)
Gunnar Þór,
kvæntur Eyrúnu
Magnúsdóttur. 6)
Halldóra Svala. 7)
Úlfar, kvæntur
Sigrúnu Hafsteins-
dóttur.
Afkomendur Theodóru og
Finnbjörns eru í dag 51 talsins.
Theodóra rak kvenfataversl-
unina Dídó ásamt vinkonu
sinni Guðnýju Ámundadóttur í
um 25 ár, fyrst við Hverfis-
götu, svo í Kringlunni og að
lokum í nokkur ár ein við
Laugaveg.
Theodóra var frábær
hannyrðakona.
Útför Theodóru fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Tengdamóðir mín er látin í
hárri elli, aðeins hálfu ári á eftir
bónda sínum.
Þau eignuðust sjö börn og
minnti „amma“ Dídó mig á
ungamömmu, sem breiddi væng-
haf sitt yfir ungana sína. Eftir
því sem fleiri bættust við, og á
ég þá við tengdabörn og barna-
börn, stækkaði vænghafið.
Hún var mér alltaf góð og á
mjög erfiðum tíma í okkar lífi
breiddi hún út sitt vænghaf og
reyndi að vera sterk fyrir okkur
þó að hún ætti líka um sárt að
binda.
Á fullorðinsárum, búin að
koma upp sínum sjö börnum,
tók hún að sér son okkar, ung-
ling sem vildi fara í skóla á Ís-
landi. Hún veitti honum það að-
hald sem þurfti til að ljúka
menntaskóla.
Nú leitar hugurinn til baka í
gamlar góðar minningar.
Blessuð sé minning þín Theo-
dóra Steffensen.
Sigríður Aradóttir (Dysta).
Elsku tengdamamma mín,
mikið á ég eftir að sakna þín.
Ég hef ekki kynnst annarri
eins kjarnakonu á minni lífsleið.
Þú eignaðist sjö börn, rakst þitt
eigið fyrirtæki, sást um heimilið,
prjónaðir listavel endalaust á öll
börnin, barnabörnin, barna-
barnabörnin og tengdabörnin og
allt virtist þetta leika í hönd-
unum á þér og vera þér mjög
létt og ánægjulegt.
Fjölskyldan var alltaf í fyrsta
sæti og varst þú dugleg að heim-
sækja hana hvort sem var heima
eða erlendis. Vinkonurnar í
saumaklúbbnum voru ekki langt
undan frekar en aðrir vinir sem
þið ferðuðust oft með til fram-
andi landa og nutuð lífsins.
Alltaf var safnast saman á
heimili ykkar Finna á sunnudög-
um og var þá oft margt um
manninn. Þið tókuð svo vel á
móti allri fjölskyldunni og alltaf
gastu töfrað fram endalausar
veitingar fyrir alla. Þú varst líka
listakokkur og áttir ekki langt
að sækja það, því amma þín rak
nokkra veitingastaði og þú heim-
sóttir hana stundum þangað.
Annar samkomustaður fjöl-
skyldunnar var á kaffistofunni í
kvenfataverslun þinni í Kringl-
unni. Alltaf varstu til í spjall og
ófáa kaffibollana drakk maður
þarna bæði á leiðinni að versla
og líka á leiðinni heim.
Fyrir mér varst þú ekki bara
tengdamóðir, því þú varst góð
vinkona og var alltaf mjög gam-
an að tala við þig að ég tali nú
ekki um að hlusta á þig segja frá
einhverju sem gerðist í gamla
daga eða bara hvað sem er. Þú
varst mjög skemmtileg og mað-
urinn minn hefur án efa erft
gleðina og drifkraftinn frá þér.
Ekki ætla ég að lofa þig
meira þótt þú eigir það svo
sannarlega skilið, þú hefðir ekki
viljað það.
Vil bara þakka þér fyrir allt,
elsku Dídó mín.
Þín
Sigrún.
Theodóra
Steffensen
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Kæra fjölskylda og vinir. Við þökkum
innilega samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar og tengdamóður, ömmu
og langömmu,
BRYNDÍSAR BJARNADÓTTUR
frá Húsavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Hlíðar á Akureyri fyrir
kærleiksríka umönnun.
Þórhallur Sigtryggsson Sesselja Valtýsdóttir
Bjarni Sigtryggsson
Sigtryggur Sigtryggsson
Þórdís Ósk Sigtryggsdóttir Davíð Jóhannsson
barnabörn og langömmubörn