Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 52
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Ég gaf út rafrænt ketópróg-
ramm í febrúar á síðasta ári sem
fékk fádæma góðar viðtökur og ég
verð að segja að þrátt fyrir að hafa
verið lengi í bransanum hef ég aldr-
ei séð annan eins árangur hjá fólki,“
segir Gunnar um tilurð bókarinnar.
„Ég setti ketóprógrammið þannig
upp að ég blanda inn í það föstum ef
fólk kýs að fara þá leið og það virð-
ist vera sú leið sem skilar hvað
mestum árangri á vigtinni og hvað
heilsuna varðar. Mér þótti líka afar
skemmtilegt að fá reynslusögur frá
fólki sem hafði farið í gegnum pró-
grammið og hreinlega snúið lífi sínu
við.“
Ég er með 10 frábærar reynslu-
sögur í nýju bókinni þar sem fólk
segir frá sinni líðan á ketó og hvað
hefur breyst í þeirra lífi. Fólk er að
missa fullt af kílóum en heilsufars-
legi ávinningurinn er ekki síðri.
Reynslusögurnar segja frá fólki sem
hættir á lyfjum tengdum sykursýki,
gigt og háþrýstingi á ótrúlega
skömmum tíma, vikum og mán-
uðum. Fyrir mér er þetta aðalmálið
því þarna ertu bókstaflega að stór-
auka lífsgæðin með því eingöngu að
breyta því hvernig þú borðar. Al-
menn ánægja með rafprógrammið
ýtti mér út í það að gefa út „alvöru“
bók um efnið og salan fyrstu dagana
segir mér að það hafi verið rétt
ákvörðun.“
Finnurðu mikinn áhuga hjá fólki?
„Ég er búinn að gefa út þrjár
bækur um lágkolvetnamataræði og
fimm rafbókarprógrömm og verð að
segja það að þegar ketóprógrammið
kom gerðist eitthvað. Ég upplifði
áhugann á ketó á sama hátt og þeg-
ar fyrsta LKL-bókin mín kom út
2013. Það er mjög jákvætt að geta
þróað hugmyndina að LKL lengra
og það er það sem ketó gerir og
blandar saman ketógenísku mat-
aræði og föstum á hátt sem ég veit
að virkar einkar vel og það er auð-
velt að standa bak við þannig hug-
myndafræði þegar mörg þúsund
manns hafa farið í gegnum pró-
grammið með góðum árangri. Ketó
er þó auðvitað ekki málið fyrir alla
frekar en nokkurt mataræði en með
því að vera í góðu sambandi við
þátttakendur gegnum facebooksíð-
urnar sem ég er með hef ég reynt að
sníða prógrammið þannig að það
henti sem flestum og fólk geti lagað
það að sér með því að geta valið um
ólíkar leiðir til að taka ketó. Ég býð
í raun upp á þrjá kosti að taka og
fólk velur hvaða leið hentar því.“
Hver er mesti ávinningurinn að
þínu mati?
„Því er auðsvarað. Langstærsti
ávinningurinn af því að vera á ketó-
mataræði er stórbætt heilsufar og
verulegt fitutap. Það er ótrúlegt
hvað hægt er að gera með breyt-
ingum á mataræðinu og ég held því
fram að með breyttum mat-
arvenjum og lífsstíl getum við tekið
stjórn á eigin heilsu og bætt hana
stórkostlega, án lyfjagjafa eða lækn-
isfræðilegra inngripa. „Let food be
your medicine“ sagði góður maður
fyrir nokkrum öldum, láttu matinn
vera lyf þitt eða lækningu og það er
hverju orði sannara. Við höfum
þetta í alvöru í eigin hendi en þurf-
um flest leiðbeiningar með mat og
atriði eins og svefn, meltingu, hug-
arfar og svo framvegis og það er það
sem ketó aðstoðar fólk með. Heild-
ræn lausn til að stórbæta heilsuna.“
Heildræn
lausn til að
bæta heilsuna
Gunnar Már Sigurðsson sendi nú á dögunum frá
sér bókina KETO sem fjallar, eins og nafnið gefur til
kynna, um allt er viðkemur ketómataræði og föst-
um. Ketó hefur verið afskaplega vinsælt mataræði
um heim allan og fullyrðir fólk að það finni mikla
breytingu á almennri líðan til hins betra.
Ketókóngurinn Gunnar
Már Sigfússon veit sínu
viti þegar hollt mataræði
er annars vegar.
Mig langar að deila með ykkur
ánægju minni með ketó-prógramm-
ið. Ég er sem sagt einn mesti sæl-
keri og sælgætisgrís sem allir í
kringum mig þekkja og minn uppá-
haldsóvinur hefur verið brauðið.
Þegar ég var búin að lesa mér til
um ketó-efnið frá Gunna og þær
leiðir sem prógrammið bauð upp á
ákvað ég einnig að fara 17:7-leiðina
sem þýðir að ég borða ekki eftir
kvöldverð og fasta fram að hádeg-
isverði og sú leið hefur hentað mér
einstaklega vel. Þess á milli borða
ég samkvæmt ketó-uppsetningunni.
Ég hefði aldrei trúað því að ég
gæti kvatt sykurinn og hveitið eins
auðveldlega og ég er að gera núna.
Mér finnst ég hreinlega alltaf vera
að borða mjög girnilegan og góðan
mat og sakna í raun einskis og lang-
ar ekki í neitt annað en það sem ég
borða núna. Þetta er eitt það magn-
aðasta sem ég hef upplifað.
Eftir sjö daga hafði ég misst
fjögur kíló og eftir 15 daga var ég
búin að missa átta kíló. Eftir þetta
fór þyngdartapið að hægja á sér en
ég fann að ummálið var aug-
ljóslega ennþá að fara hratt niður.
Eftir sex mánuði á ketó hef ég nú
misst yfir 23 kíló, sem í mínum
huga er lítið kraftaverk, hvorki
meira né minna.
Það sem er jafnvel enn mikilvæg-
ara er að mér líður stórkostlega,
bæði andlega og líkamlega. Ég fann
áður fyrr oft fyrir þreytu og sleni
sem hefur vikið fyrir margfalt
meiri orku og gleði sem eru frábær
skipti.
Ég er bara svo endalaust þakklát
fyrir að hafa tileinkað mér þennan
lífsstíl því ég veit ekki hversu oft ég
hef reynt að hætta að borða sykur
eða brauð og pasta og hreinlega
gleymt því sama dag og ég byrja í
átakinu.
„Ég hefði aldrei trúað því“
Ljósmynd/Hildur Heimisdóttir
Ótrúlegur árangur Erna
Bryndís Einarsdóttir deil-
ir hér reynslu sinni af ketó
mataræði. Hún er af-
skaplega ánægð og kveð-
ur það henta sér vel.
Þessi uppskrift er að sögn
Gunnars Más algjör klassík
enda ekki annað hægt þegar
um er að ræða kremaða
hvítlaukssósu, ferskt spínat
og sólþurrkaða tómata.
Kremaður tuscan-kjúklingur
Fyrir 2
7 g af kolvetnum
Aðferð:
Hitaðu ofinn í 180° og blástur
Hráefni:
350 g úrbeinuð kjúklingalæri
eða kjúklingabringur
3 rif hvítlaukur, kraminn
½ haus blómkál, grjónað í
matvinnsluvél eða rifið niður
með rifjárni
1 poki ferskt spínat, grófsaxað
2 msk. sólþurrkaðir tómatar,
saxaðir smátt
125 ml rjómi
2 msk. ferskur parmesan-
ostur rifinn niður
1. Settu smjör eða olíu á
heita pönnu og steiktu kjúk-
lingalærin vel og kryddaðu
þau með kryddi að eigin
vali. Settu þau síðan í eldfast
mót og hafðu í ofni í 10-15
mínútur. Fer eftir þykkt.
Mæli með að skera bring-
urnar langsum í tvennt ef þú
ert að nota þær til að stytta
eldunartímann. 2. Settu 1
msk. smjör á pönnuna og
byrjaðu á að steikja hvít-
laukinn í 30 sekúndur og
bættu svo blómkálinu við.
Steiktu það í 5 mínútur.
Bættu þá spínatinu saman
við ásamt tómötunum. 3.
Bættu síðan rjómanum og
ostinum við og leyfðu þessu
að malla í 10 mínútur eða
þar til kjúklingurinn er klár.
Ef þetta er að þykkna of
mikið bætirðu við smá vatni.
Smakkaðu til með salti.
4. Bættu kjúklingnum aft-
ur á pönnuna og berðu fram
með fersku grænu salati.Ljósmynd/Hildur Heimisdótir
Kremaður
ketókjúk-
lingur
Kremaður kjúlli
Þessi réttur er að
sögn Gunnars al-
gjörlega skotheldur.