Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 65
DÆGRADVÖL 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
Holtagörðum-Lóuhólum-Akureyri-Selfossi-
Bolungarvík-Vestmannaeyjum
ÞÚ FÆRÐ
HJÁ OKKUR!
S; 537-5000 dyrarikid@dyrarikid.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur ofgert þér að undanförnu
svo nú er komið að því að þú gefir þér
tíma til hvíldar og einveru. Virtu skoðanir
annarra.
20. apríl - 20. maí
Naut Búðu þig undir breytingar á síðustu
stundu og notaðu innsæið til að fleyta
hlutum áfram. Ekki er allt gull sem glóir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt til orðaskaks komi milli þín
og náins vinar skaltu sýna þolinmæði og
alls ekki láta reiðina ná tökum á þér. Fé-
lagslífið verður fjörugt hjá þér næstu vikur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú gætir rekist á gamla kunningja
og skólafélaga og það mun hugsanlega
opna þér ný tækifæri. Láttu þetta tækifæri
ekki úr greipum þér ganga.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Neikvæð gagnrýni dregur úr þér kjark
í dag. Reyndu að líta veröldina svolítið
björtum augum. Börn reyna á þolrifin í þér
þennan daginn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þess að missa ekki sjónar á
takmarki þínu. Sumir skilja ekki fyrr en
skellur í tönnum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Finndu út hvar þú best getur komið
skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að
hlustað sé á þig. Láttu ekki endalaust
segja þér fyrir verkum, vertu þinn eigin
herra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú veist ekkert fyrir víst fyrr
en þú tekur á því. Ekki ætla þér um of því
þá eru meiri líkur á að þú gefist upp. Þú
heldur verndarhendi yfir einhverjum í
vinnunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er um að gera að leita
álits annarra, þótt þú sért viss í þinni sök.
Taktu tíma til að einbeita þér og safna
orku. Þú bíður svars við spurningu með
öndina í hálsinum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Notaðu daginn til að dekra við
sjálfa/n þig því þú verður að endurnýja
orkuna. Sígandi lukka er best og þá gefur
þú þér líka tíma til að kanna málin vel.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Virkjaðu starfsgleði þína og
gakktu óhrædd/ur á hólm við ný og vanda-
söm verkefni. Þú kemur alltaf niður á fæt-
urna í erfiðum aðstæðum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu að slaka á og minna þig á
að þú þarft ekki að sannfæra aðra um
ágæti þitt. Þú verður fyrir því að týna hlut
sem þér er kær en hann finnst fljótt.
Eins og ég sagði í Vísnahorni ígær hef ég alltaf haft gaman af
hestavísum. Árni Óla segir frá því í
„Hverra manna“, að Björg í Kíla-
koti, dóttir Sveins á Hallbjarnar-
stöðum, hafi átt bleikan hest og vildi
helst ekki koma á bak neinum öðr-
um hesti, – „Bleikur var stólpagrip-
ur mikill og gammvakur og varð
hann gamall vegna þess að húsfreyj-
unni þótti vænt um hann,“ segir þar.
Um síðir varð þó að skjóta Bleik og
var Björg hrygg þann dag allan.
Um nóttina kom hún svo að glugga
yfir rúmi Hólmfríðar systur sinnar á
Víkingavatni og kvað við raust þess-
ar vísur:
Eins og reykur fjúki um fold
fjör á leikur þræði;
húðar-Bleikur hné að mold
haltur og veikur bæði.
Aldrei hnotið hófa-mar
hafði á snotru skeiði,
en sem þrotin ævin var
í hel skotinn deyði.
Helju frá sem alla á
enginn náir snúa,
en ég fái hann aftur sjá
ekki má ég trúa.
Ellin hallar öllum leik,
ættum varla að státa,
hún mun alla eins og Bleik
eitt sinn falla láta.
Síðan segir Árni Óla að þau hafi
orðið forlög síðustu vísunnar að hún
kom í Ljóðmælum Páls Ólafssonar.
Þeim, sem vissu um höfund hennar,
þótti þetta undarlegt og spurðu Pál
hverju sætti. Honum hnykkti við en
gaf þá skýringu, að hann hefði
kunnað vísuna lengi og sér hefði
fundist andinn í henni svo svipaður
sínum kveðskap að hann hefði verið
farinn að halda að vísan væri eftir
sig.
Vafalaust er skýringin á þessum
ruglingi að hjá Páli er vísunni
stungið inn í „Eftirmæli“ um hestinn
Bleik og lýkur svo:
Lífs á vori mætir mér
minn sí-þorinn Bleikur,
endurborinn eins og hér
inndæl sporin leikur.
Verður glatt í muna mér
millum hnatta þeyta;
hann mun attur eins og hér
æ á brattann leita;
aldrei mæðast undir mér,
engan hræðast voða;
á slíkum gæðing gaman er
geyminn hæða að skoða.
Jón Þorsteinsson á Arnarvatni
orti:
Töltir hún um tún og engjar til að bíta;
liggi tað á leiði grónu
lengist flipi á Árna-Skjónu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hestavísur
„EF EINN ÁHORFANDI STENDUR UPP OG
GENGUR ÚT TEL ÉG FYRIRLESTURINN UM
HEILSURÆKT ÁRANGURSRÍKAN.”
„GeturÐU EKKI UNNIÐ HRAÐAR? ÉG ER AÐ
DREPAST Í HANDLEGGJUNUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að kaupa nauðsynjar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HA! ÞÚ OG ÞESSI
BANGSI!
ÉG VILDI AÐ ÉG
ÆTTI BANGSA
HVERNIG LÍT ÉG ÚT Í KJÓLNUM?
FEIT?
NEI, GRENNRI!
GRENNRI EN HVAÐ? ER ÞESSI
SPURNING ENN
EIN GILDRAN?
Fokið er nú í flest skjól hjá Víkverja,allavega í hárdeildinni. Svo er mál
með vexti að hann ákvað að fara í
fyrstu klippingu hins nýja árs. Sem
væri svo sem ekki í frásögur færandi
ef Víkverji hefði ekki þóst sjá ögn
meira í skallann að klippingu lokinni
en hann hefur gert áður.
x x x
Hárgreiðslukonan var öll af viljagerð til þess að tefja ögn lengur
gráa fiðringinn hjá Víkverja og
bauðst því til þess að setja smá lit
þarna í hársvörðinn hjá honum þann-
ig að það bæri ekki eins mikið á skall-
anum. Víkverji þáði það boð með
skömmustulegum þökkum.
x x x
Víkverji lítur almennt ekki á sigsem hégómlegan. En þarna var
hann tilbúinn til þess að spásséra um
bæinn með lit í hársverðinum, allt til
þess að halda í þá ímynd að testóster-
ónframleiðsla Víkverja væri ekki
hægt og bítandi að fækka hárunum á
höfði hans.
x x x
Einhverra hluta vegna þykir þaðvíst ferlegt að missa hárið. Svo
ferlegt að algengasta ráðið við hárlosi
mun vera hreinlega það að raka hárið
allt af. Hvers vegna ætti að fram-
lengja kvöl og pínu hársins, sem er
hvort eð er á útleið, þegar hægt er að
verða sköllóttur enn fyrr? Víkverji er
allavega ekki spenntur fyrir þeirri
lausn.
x x x
Hann er þó meðvitaður um að lík-lega falla öll vötn til Dýrafjarðar
í þessum efnum. Fyrr eða síðar verð-
ur hár Víkverja komið á þann stað. Sá
dagur er þó ekki kominn enn, vonar
Víkverji. Kannski getur hann bara
orðið eins og Bruce Willis var, eða
Jack Nicholson, með kollvikin út í loft
og hárið greitt aftur?
x x x
Allt þetta og meira flaug um höfuðVíkverja meðan litnum var mak-
að á. „En svo fer þetta auðvitað bara
úr í næstu sturtu!“ sagði hárgreiðslu-
konan. Það er hári Víkverja til happs
að hann ætlar næst í sturtu í febr-
úar … árið 2020. vikverji@mbl.is
Víkverji
Komið til mín, öll þér sem erfiðið og
þunga eruð hlaðin, og ég mun veita
yður hvíld
(Matt: 11.28 )