Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 62
62 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Allt að 70% afsláttur af umgjörðum og sólgleraugum ÚTSALA! Satt að segja hef égánægju af öllumstefnum og straumum í tónlist. Er tilbúin að gefa öllu tækifæri ef ég heyri stef eða takta sem grípa athygli mína,“ segir Jó- hanna Guðmundsdóttir, skólastjóri Tónlistar- skóla Stykkishólms, sem er 65 ára í dag. Hún er ættuð úr Gaul- verjabæjarhreppi í Flóa, fædd og uppalin á Selfossi, en fór liðlega tvítug vestur í Ólafsvík og kenndi þar tónlist í tvo vetur. „Ég byrjaði ung í tón- listarnámi og söng í kór á Selfossi. Snerti síðan ekkert á tónlistinni í nokkur ár, fór í Versl- unarskólann og lauk þaðan prófi. Sneri mér svo aftur að tónlistinni, tók kennarapróf og var munstruð til starfa vestur í Ólafsvík og kenndi þar í tvo vetur. Var svo á heimleið, ef svo mætti segja, en á fallegu vorkvöldi fór ég á ball í félagsheimilinu Röst þar sem ég í orðsins fyllstu merkingu féll fyrir bakaranum í Stykkis- hólmi, Guðmundi Teitssyni. Þar má segja að örlög mín hafi verið ráð- in, að minnsta kosti sneri ég ekki aftur heim á Suðurlandið eins og ætlunin þó var.“ Í Stykkishólmi hefur Jóhanna sinnt mörgu. „Í fjölskyldufyrirtæk- inu bakaði ég og sá um bókhaldið og um hríð stýrði ég hagsmuna- félagi atvinnurekenda hér. Þá hef ég verið organisti við Stykkis- hólmskirkju, kennt við grunnskólann og stýrt tónlistarskólanum frá 2005. Þar eru í dag um 100 nemendur og sjálf gríp ég aðeins í kennslu,“ segir Jóhanna sem kveðst eftir rúmlega fjörutíu ára búsetu fyrir löngu hafa fest rætur í Hólminum. Það sé hennar heimabær. „Ég þarf að skjótast suður til Reykjavíkur á afmælisdeginum. Næ því að hitta eitthvað af fólkinu mínu sem þar býr og hlakka til þess,“ segir Jóhanna. Þau Guðmundur eiga tvo syni; Helga Reyni sem býr í Kópavogi og Ólaf sem búsettur er í Serbíu og starfar þar fyrir ís- lenskt fyrirtæki. Þá átti Guðmundur fyrir tvö börn, Ásgeir og Ebbu Guðnýju. Skólastjóri Skýst suður og hitti fólkið mitt, segir Jóhanna Guðmundsdóttir. Flóakona sem festi rætur í Hólminum Jóhanna Guðmundsdóttir er 65 ára í dag Á sta Kristín Sigurjóns- dóttir er fædd á Norð- firði hinn 10. janúar 1979. „Þegar ég er spurð að því hvaðan ég sé lendi ég alltaf í töluverðum vand- ræðum. Jú, ég er fædd og uppalin á Norðfirði fyrstu árin. Þegar ég var sex ára fluttum við á Reyðarfjörð þar sem ég bjó þar til ég fór að heim- an. Ég er samt rosa mikill Eskfirð- ingur í mér, en ég var mikið þar hjá ömmu og afa og nældi mér svo auð- vitað í eskfirskan kærasta. Svo eru föðuramma mín og afi frá Borgar- firði eystri og Loðmundarfirði þann- ig að ég tengi mig heilmikið þangað. Ég er sem sagt mikil sveitastelpa og stolt af því að vera Austfirðingur.“ Ásta er gift Páli Bragasyni frá Eskifirði, en þau hafa verið saman síðan hún var 14 ára og hann 16 ára. Þau trúlofuðu sig árið 2000 og giftu sig árið 2009. Þau eiga börnin Braga Hrafn sem fæddur er árið 2003 og Tönju Ýri sem fædd er árið 2006. Ásta og Páll fluttu saman til Reykjavíkur 1995 þar sem þau fóru bæði í menntaskóla en eftir það klár- aði Ásta viðskiptafræði ásamt verk- efnastjórnun frá Háskóla Reykja- víkur. Árið 2004 flutti litla þriggja Ásta K. Sigurjónsdóttir, frkvstj. Íslenska ferðaklasans – 40 ára Fjölskyldan Páll, Tanja Ýr, Ásta og Bragi Hrafn í tilefni af fermingu þess síðastnefnda. Algjör sveitastelpa Hjónin Ásta og Páll eru ásamt fjölskyldunni í skíðaferð í Gerlos í Austurríki. Í dag er Sveinn Pálsson frá Sandgerði 95 ára. Sveinn giftist Eddu Ingibjörgu Mar- geirsdóttur (f. 15.2. 1933, d. 21.9. 2018) á jóladag árið 1950. Edda og Sveinn eign- uðust 5 börn, 17 barnabörn og langafa- og langömmubörnin eru orðin 14. Sveinn hefur gengið syngjandi í gegnum lífið enda ennþá kórfélagi í mörgum kór- um. Annað áhugamál hans er fótbolti og var hann m.a. einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði. Árið 1968 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur þar sem Sveinn hóf störf við Álverið í Straumsvík og starfaði hann þar í tugi ára fram á eftirlaunaaldurinn. Sveinn býr nú einn á heimili þeirra hjóna og sér alfarið sjálfur um sig og hús- haldið. Í dag verður hann að heiman og heldur upp á daginn með afkomendum sínum. Árnað heilla 95 ára Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.