Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
alan
20-50%
afsláttur
af öllum vörum
hafin
U
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
Embætti forseta Bandríkjannahefur mikla sérstöðu í ver-
öldinni. Mestu skiptir að þar fer
oddviti öflugasta ríkis heims, sem
svo vel vill til að er lýðræðisríki.
Við bætist að for-
setinn hefur meiri
völd á sinni könnu
en títt er í lýðræð-
isríkjum þótt önn-
ur ríki, svo sem
Frakkland, hafi
fært sínum forseta
mikil viðbótarvöld
eftir upplausnarskeið á eftir-
stríðsárunum.
Forsetinn er ekki aðeins æðstihandhafi framkvæmdavalds-
ins heldur jafnframt þjóðhöfð-
ingi.
Og stundum virðist konung-legur svipur á umgengni við
forsetann og er t.d. sérstakt stef
spilað þegar hann gengur opin-
berlega í sal. Og fjölmiðlar hanga
á hverju orði forsetans og þótt
fyrir vestan séu flestir öflugustu
fjölmiðlar landsins hælbítar for-
setans og leyni lítt hatri sínu á
honum þá þjappar það trúaðasta
fylginu fastar um hann.
Forsetinn getur tilkynnt aðhann muni flytja ávarp til
þjóðarinnar og þótt frjálsir fjöl-
miðlar séu ekki bundnir við að
senda það út taka þeir ekki þá
áhættu að vera ekki með þegar
og ef forsetinn segir eitthvað
fréttnæmt. Og þá má ekki gleyma
því að það sem forsetinn segir er
þegar af þeirri ástæðu orðið
fréttnæmt.
Slíkt skyndiávarp var flutt ífyrradag. Repúblikanar segja
að forsetinn hafi komist vel frá
því og styrkt sig. Demókratar
segja að því fari fjarri. Þetta
tvennt var fyrirsjáanlegt.
Donald Trump
Forseti flytur ávarp
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Minjastofnun Íslands ákvað í fyrra-
dag að skyndifriða þann hluta Víkur-
kirkjugarðs sem er innan bygging-
arsvæðisins á Landssímareitnum.
Er þetta stækkun á því svæði sem
greint hafði verið frá fyrr um daginn
að menntamálaráðherra hefði stað-
fest að fallist yrði á friðlýsingar-
tillögu um.
Skyndifriðunin gildir í allt að sex
vikur eða þar til ráðherra hefur
ákveðið hvort friðlýsa skuli viðkom-
andi menningarminjar að fenginni
tillögu Minjastofnunar.
Fyrri friðlýsingin, sem mennta-
og menningarmálaráðuneytið til-
kynnti um í fyrradag, tekur til leifa
kirkju og kirkjugarðs og annarra
fornminja innan lóðarmarka Víkur-
garðs.
Í frétt á vef Minjastofnunar segir
að gripið sé til þessara ráðstafana
þar sem ljóst hafi verið af sam-
skiptum við lóðarhafa að þeir hafi
ekki haft hug á „að breyta inngangi
hótelsins eins og Minjastofnun hafði
lagt til og hafði ástæðu til að ætla að
hefði verið samþykkt“.
Þess í stað hafi framkvæmdarað-
ilinn nú mögulega uppi áform um tvo
innganga sem vísa að Víkurgarði og
því ljóst að ætlunin sé að nýta garð-
inn sem aðkomusvæði hótelsins.
Slíkt sé „algerlega óásættanlegt af
hálfu Minjastofnunar Íslands“.
annaei@mbl.is
Hluti kirkjugarðsins friðaður í skyndi
Skyndifriðun Minjastofnunar í allt að sex vikur Deilt um inngang hótels
Tölvumynd/THG arkitektar
Austurvöllur Nýtt hótel er að rísa.
Mikil andstaða er við hugmyndir um
vegtolla í umsögnum til umhverfis-
og samgöngunefndar Alþingis, skv.
upplýsingum FÍB, en í fyrradag
höfðu nefndinni borist 576 umsagnir
frá einstaklingum um samgöngu-
áætlun áranna 2019-2034. FÍB
hvatti í byrjun ársins almenning til
að láta skoðun sína á vegtollum í ljós
með eða á móti.
Fram kemur í frétt á vefsíðu FÍB
í gær að félagið kannaði afstöðu til
vegtolla í þeim erindum og umsögn-
um einstaklinga sem birtar eru á
vefsvæði Alþingis, þar sem fram
komi að í fyrradag höfðu 530 ein-
staklingar eða 92% sagst í umsögn-
um sínum vera á móti vegtollum en
43 eða 7,5% lýsa stuðningi við veg-
tolla.
„Þessu til viðbótar var farið yfir
52 umsagnir og erindi frá opinberum
aðilum, samtökum og félögum um
samgönguáætlunina. Í þeim erind-
um eru sex umsagnir frekar jákvæð-
ar gagnvart hugmyndum um veg-
tolla (veggjald) og ein neikvæð. Ekki
er tekin bein afstaða til vegtolla í 46
umsögnum,“ segir í frétt á vefsíðu
FÍB.
Morgunblaðið/Ómar
Vetrarumferð Hugmyndir um að taka upp veggjöld eru umdeildar.
576 umsagnir sendar
92% einstaklinga á móti vegtollum,
samkvæmt athugun FÍB á umsögnum