Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Bjórinn laus úr banni,“ sagði í
fyrirsögn í frétt í Morgunblaðinu
fyrir tæpum 30 árum. Miðvikudag-
inn 1. mars 1989 leyfðist Íslend-
ingum „að kaupa áfengt öl, bjór
öðru nafni, með löglegum hætti
hérlendis í fyrsta sinn síðan árið
1915“, sagði í blaðinu. Bjórsala
hefur aukist með hverju árinu síð-
ustu 30 árin, en síðustu ár hefur
stórlega dregið úr sölu á vindling-
um og hugsanlega hefur ekki
minna verið selt af sígarettum hér
á landi í hálfa öld heldur en á síð-
asta ári. Ýmislegt fleira for-
vitnilegt kemur í ljós þegar
gluggað er í sölutölur frá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins, meðal
annars að sala á neftóbaki tók aft-
ur kipp í fyrra eftir samdrátt árið
2017.
Mikill bjór hefur til sjávar runn-
ið frá 1989 og enn eitt metið var
slegið í bjórsölu á nýliðnu ári. Af
áfengi seldust í fyrra 22 milljónir
lítra og þar af vegur bjórinn lang-
samlega þyngst. Alls seldust þá
rúmlega 17 milljón lítrar bjórs og
tegundir í boði skiptu tugum. Til
hátíðabrigða var eins og áður með-
al annars boðið upp á þorrabjór,
páskabjór og af jólabjór voru fleiri
tegundir á boðstólum en nokkru
sinni. Í tíu mánuði árið 1989 seld-
ust tæplega sjö milljónir lítrar af
bjór. Salan fór í fyrsta skipti yfir
tíu milljónir lítra 2001.
Ef til vill er hann
beztur ódrukkinn
Eflaust hefur bjórinn haft mikil
samfélagsleg áhrif á þeim tæplega
þremur áratugum sem liðin eru
frá bjórbanni. Margvíslegar skoð-
anir eru trúlega á sölu bjórs, bæði
með og á móti, en óhætt er að full-
yrða að erfitt yrði að stíga skrefið
til baka. Tölurnar í meðfylgjandi
töflu tala sínu máli.
„Margt er manna bölið, misjafnt
drukkið ölið,“ segir í fornum hend-
ingum, sem voru rifjaðar upp í
forystugrein í Morgunblaðinu á
bjórdaginn. Þar var farið yfir svið-
ið undir fyrirsögninni „prófsteinn“
og í leiðaranum segir meðal ann-
ars:
„Og fyrst og síðast verður hinn
áfengi bjór prófsteinn á Íslend-
inga, sem þjóð og einstaklinga.
Ástæða er því til að hvetja fólk til
að taka á móti bjórnum með varúð
og hófsemd. Ef til vill er hann
beztur ódrukkinn. En þeir sem
vilja öl til vinar drekka ættu að
hafa í huga, að bjór er áfengi og
að um hann gilda allar sömu regl-
ur og staðreyndir, siðferðilegar,
heilsufarslegar og lagalegar, sem
aðrar áfengistegundir.“
176 milljónir af sígarettum
þrátt fyrir samdrátt
ÁTVR seldi í fyrra tæplega 882
þúsund karton af vindlingum, en
sala þeirra hefur farið minnkandi
flest undanfarin ár. Eigi að síður
seldi ÁTVR rúmlega 176 milljónir
sígarettna á síðasta ári, miðað við
að 20 vindlingar séu í pakka, tíu
pakkar í kartoni og því alls 200
sígarettur í hverju kartoni.
Viðar Jensson, verkefnisstjóri
tóbaksvarna hjá Embætti land-
læknis, segir að ekki séu til sam-
anburðarhæfar tölur um reykingar
fólks fyrir 1985, en í seinni tíð séu
nákvæmar upplýsingar fyrir hendi
og þar sé samræmi á milli sölu-
talna frá ÁTVR og úr könnunum.
Síðustu ár hafi dregið úr dag-
legum reykingum í nánast öllum
aldurshópum.
Ekki minna reykt í 40-50 ár
„Við höfum talað um faraldur í
reykingum hérlendis á síðari hluta
síðustu aldar. Í tölum frá 1985
kemur fram að nánast helmingur
karlmanna á Íslandi reykti dag-
lega. Reykingar gætu hafa verið
enn algengari 10-15 árum fyrr, en
um það vantar samanburðarhæfar
tölur svo við getum sagt til um
það með fullri vissu hversu al-
mennar reykingar voru á þessum
tíma. Ég held þó að óhætt sé að
segja að tóbaksreykingar hafi ekki
Mikill bjór til sjávar runnið
Tæplega þrír áratugir frá því að bjórinn var leyfður Aldrei meira verið selt heldur en í fyrra
Ekki minna selt af vindlingum í hálfa öld Nef- eða munntóbak tók aftur kipp á síðasta ári
Sala á áfengi og tóbaki
Sala á bjór frá 1989 til 2018
Sala á neftóbaki og sígarettum 2010-2018
Sala á áfengi 2010-2018
Milljónir lítra
Milljónir lítra
25
20
15
10
5
0
50
40
30
20
10
0
16
15
14
13
12
11
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
Neftóbak, tonn Sígarettur, þús. karton
1.500
1.200
900
600
300
0
Neftóbak Sígarettur
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
’10 ’12 ’14 ’16 ’18
24.158 pakkar af sígarettum
voru seldir á degi hverjum að
jafnaði árið 2018
Vi
nd
lin
ga
r
SÍ
G
Ó
M
EÐ
F
IL
TE
R
YO
U
DO
N'
T W
AN
T T
O
SE
LL
M
E D
EA
TH
ST
IC
KS
17 milljónir lítra voru seldar af bjór árið 2018 sem
samsvarar 1 klst. meðalrennsli
Elliðaáa í Reykjavík
300 baðkör á dag eða 47 þúsund
lítrar voru seldir af bjór á degi
hverjum árið 2018
3 sinnum kringum jörðina næði röð af hálfs lítra
bjórdósum með öllum þeim
bjór sem selst
hefur síðan
1989 ef
þeim
væri
raðað
enda
í enda
21.985.359
lítrar af
áfengi
voru
seldir
árið 2018
sem
er 16%
aukning frá
árinu 2010
44,7 tonn af neftóbaki voru seld árið
2018 sem er á við einn meðal-
stóran búrhval
Banni við sölu
á bjór var aflétt
1. mars 1989
15,9 milljónir lítra
346.397.000
lítrar af bjór voru seldir samtals frá
1. mars 1989 til ársloka 2018
Árið 1989 seldust tæplega 7 milljónir
lítra en rúmlega 17 milljónir lítra árið
2018 sem er um 150% aukning
FÖ
S
S
A
R
I
20
18
’89 ’90 ’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96 ’97 ’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18
Heimild: ÁTVR. Útreikningar blaðsins.
Eitt atriði sem Viðar Jensson nefn-
ir sem áfanga í baráttu gegn reyk-
ingum var að leyfisbinda sölu á
tóbaki í upphafi aldarinnar. Áður
hafi mjög víða verið hægt að nálg-
ast tóbak, meðal annars inni í fyr-
irtækjum þar sem tóbak var t.d.
selt úr skókössum. Nefna má að
fyrir nokkrum áratugum voru
dæmi um að hægt væri að nálgast
tóbak í einstaka framhaldsskólum.
Viðar segir leyfisskylduna hafa
verið þarfa breytingu, en heilbrigð-
iseftirlit annist eftirlit með sölu-
aðilum tóbaks. Á sama tíma hafi
einnig verið ákveðið að banna sýni-
leika á tóbaki og hvað þetta tvennt
varði hafi Ísland verið meðal fyrstu
þjóða til að innleiða.
Þegar sala á tóbaki var gerð
leyfisskyld árið 2001 sóttu 850 að-
ilar um leyfi til að selja tóbak. Tólf
árum seinna hafði þeim fækkað
um þriðjung því 2013 voru rúmlega
500 tóbakssöluleyfi í gildi. Útgefn-
um tóbakssöluleyfum hefur haldið
áfram að fækka og 390 slík leyfi
voru í gildi í upphafi síðasta árs.
Mikil fækkun söluaðila
TÓBAKSSALA GERÐ LEYFISSKYLD 2001
15%
afsláttur
15%
afsláttur
ofnar ryksugur
20%
afsláttur
Gerið góð kaup!
15-50% afsláttur
af gæðavörum ORMSSON
janúar
dagar
lágmúla 8
SÍmI 530 2800
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
15%
afsláttur