Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt vilja-
yfirlýsingu Reykjavíkurborgar og
Reita fasteignafélags um mikla
uppbyggingu á lóðunum Suður-
landsbraut 34 og Ármúla 31. Stefnt
er að undirritun samninga á allra
næstu dögum.
Reitir hafa staðið að uppbygg-
ingu á mörgum byggingarreitum og
áforma m.a. stórfellda uppbyggingu
á Kringlureitnum.
Umræddar lóðir eru á horni Suð-
urlandsbrautar, Grensásvegar og
Ármúla, alls 26 þúsund fermetrar.
Rafmagnsveitur Reykjavíkur voru
með bækistöð á lóðunum um árabil.
Fram kemur í greinargerð skrif-
stofu eigna og atvinnuþróunar að
Reitir fasteignafélag hf., eigandi
fasteigna á leigulóðinni Suðurlands-
braut 34 og Ármúla 32, hafi kynnt
borgaryfirvöldum hugmyndir að
uppbyggingu á lóðunum í samræmi
við aðalskipulag Reykjavíkur 2010-
2030. Hugmyndirnar geri ráð fyrir
niðurrifi á iðnaðarhúsum á lóðinni,
verulegri uppbyggingu og að nýt-
ingu lóðarinnar verði breytt í
blandaða byggð með íbúðum og at-
vinnuhúsnæði.
Arkitektar vinna hugmyndir
Áform félagsins miða að því að
heildarbyggingarmagn verði að lág-
marki rúmir 45.000 fermetrar, íbúð-
ir verði 400 til 500 og atvinnu-
húsnæði um 5.000-6.000 fermetrar.
Með viljayfirlýsingunni er samið
um að unnin verði í samstarfi ný
deiliskipulagstillaga um fyrir-
komulag og nýtingu á lóðinni.
Áformað er að þrjár arkitektastofur
vinni hugmyndir, sem sérstök dóm-
nefnd mun meta. Mynda á sam-
ráðshóp lóðarhafa og borgaryfir-
valda til að vinna að verkefninu og
verkstýra vinnu við gerð deiliskipu-
lagstillögu.
Gert er ráð fyrir að lóðin verði
minnkuð við Suðurlandsbraut
vegna fyrirhugaðrar legu borgar-
línu og ekki komi til greiðslu til lóð-
arhafa vegna skerðingarinnar.
Uppbygging á lóðinni verður í
samræmi við markmið og í anda
húsnæðisáætlunar Reykjavíkur-
borgar. Miðað er við að um 15%
íbúða á lóðinni verði leiguíbúðir,
þ.e. íbúðir Félagsbústaða, stúdenta-
íbúðir, búseturéttaríbúðir og/eða
íbúðir fyrir aldraða. Félagsbústaðir
hafa kauprétt að þriðjungi þessara
íbúða á umsömdu föstu verði.
Aðilar miða við að framkvæmdir
við uppbyggingu á lóðinni hefjist
ekki síðar en tveimur árum eftir að
nýtt deiliskipulag hefur verið sam-
þykkt. Samráðshópi verður falið að
stilla upp tímaáætlun fyrir skipu-
lagsvinnu og uppbyggingu á lóðinni.
Sem fyrr segir voru Rafmagns-
veitur Reykjavíkur með bækistöðv-
ar á þessum stað. Hitaveita Reykja-
víkur var með bækistöðvar á lóð
hinum megin við Grensásveg. Þessi
tvö fyrirtæki sameinuðust árið 1999
undir heitinu Orkuveita Reykjavík-
ur. Orkuveitan reisti höfuðstöðvar
við Bæjarháls í Árbæjarhverfi. Þær
voru teknar í notkun árið 2003 og
eignirnar við Suðurlandsbraut og
Grensásveg voru þá seldar.
Rafmagnsveitureiturinn er stór
og gróinn og býður upp á mikla
möguleika varðandi uppbyggingu.
Fimm hæða bygging, Orkuhúsið,
setur svip sinn á reitinn. Þarna
voru áður skrifstofur Rafmagns-
veitunnar en nú eru læknastofur í
húsinu. Arkitektarnir Guðmundur
Kr. Guðmundsson og Ferdinand Al-
freðsson teiknuðu húsið. Við Ármúl-
ann eru lágreistar byggingar, sem
munu væntanlega hverfa.
Íbúðir á Rafmagnsveitureit
Reitir fasteignafélag ætlar að reisa íbúðir og atvinnuhúsnæði við Suðurlandsbraut og Ármúla, alls
um 45 þúsund fermetra Ráðgert að íbúðir verði allt að 500 talsins Viljayfirlýsing undirrituð
www.mats.is
Uppbygging Orkuhúsið á Suðurlandsbraut 34 setur mestan svip á Rafmagnsveitureitinn. Við Ármúlann eru lægri hús sem munu væntanlega hverfa.
Reitir fasteignafélag hf. er
stærsta félagið í útleigu at-
vinnuhúsnæðis á Íslandi. Þetta
segir á heimasíðu félagsins.
Félagið á um 140 eignir um
land allt, samtals um 465 þús-
und fermetra.
Stærstu eigendur eru Lífeyr-
issjóður starfsmanna ríkisins,
A- og B-deild, 17,1%, Lífeyris-
sjóðurinn Gildi 14,8% og Lífeyr-
issjóður verslunarmmanna,
14,7%. Alls eiga 11 lífeyrissjóðir
í landinu um 64% í félaginu.
Forstjóri þess er Guðjón Auð-
unsson.
Félagið á alls
140 eignir
REITIR FASTEIGNAFÉLAG
POTTAR OG PÖNNUR
Fagmaðurinn velur AMT en þú?
Þýsk hágæðavara
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
Allir velkomnir einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
Allt fyrir eldhúsið
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu