Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 50
Guðrún Selma
gudrunselma@mbl.is
„Árið 2009 var ég 19 ára og 104
kíló. Ég er um 165 cm á hæð. Ég
var með áreynslu astma og hné sem
voru að bugast undan álagi. Mér
leið ekki vel í eigin líkama og ákvað
að núna væri þetta orðið gott. Það
sem ég gerði þá var að byrja breyta
mataræðinu. Einfalt, minnkaði
brauð, tók út nammi og sætindi
nema leyfði mér um helgar. Hætti
að drekka sykrað gos og ávaxta-
safa, að drekka hitaeiningar getur
verið stór ástæða þyngdaraukn-
ingar. Eftir fimm til sex vikur var
ég tíu kílóum léttari. Þá hafði ég
þor í að skrá mig í ræktina og eftir
það varð ekki aftur snúið. Byrjaði í
hóptímum og að lokum var ég kom-
in með einkaþjálfara í fjarþjálfun.
Ég gerði fullt af mistökum á leið-
inni, borðaði of mikið eða leyfði mér
aðeins út fyrir rammann sem ég
setti mér. Ég nennti stundum ekki
á æfingu það er eðlilegt,“ segir
Anna Lovísa sem gafst ekki upp og
segir það lykilinn að árangrinum. Á
árunum 2009 til 2010 létti hún sig
um 43 kíló og keppti í fitness árið
2011 og 2013.
Að elska sjálfa sig
þrátt fyrir galla
Anna Lovísa segist hafa sett sér
misgáfuleg áramótaheit í gegnum
tíðina en í ár ætlar hún bæta þol og
styrk, sem hún missti niður á með-
göngunni sem hún er að jafna sig á,
hreyfa sig dags daglega fyrir utan
æfingar, rækta vinasambönd og
elska sjálfa sig þrátt fyrir galla og
takmörk.
„Algengustu mistökin sem fólk
gerir þegar kemur að áramóta-
heitum er að fara of geyst af stað
og ætla sér of mikið og þá jafnvel á
stuttum tíma. Ef þú hefur ekki
hreyft þig af viti í langan tíma er
engum greiði gerður að ætla taka
janúar með trompi og mæta á æf-
ingu sex til átta sinnum í viku í einn
til tvo tíma í senn. Það er ávísun á
að þú endist ekki mikið meira en
tvær til þrjár vikur. Ekki ákveða að
fara að hreyfa þig til þess að verða
grönn eða grannur heldur farðu að
hreyfa þig því það er gott fyrir þig
og heilsu þína og heilbrigði. Tvisvar
til þrisvar sinnum í viku í tvær til
þrjár vikur er nóg fyrir byrjendur
og eftir fyrstu vikurnar getur fólk
farið að auka við,“ segir Anna
Lovísa sem er bæði með B.A. í tóm-
stunda- og félagsmálafræði og dip-
lóma í heilbrigðis- og heilsuuppeldi,
hvort tveggja frá HÍ.
Hvaða máli skiptir mataræðið?
Föstur og ketó eru líklega vinsæl-
asta heilstískan í dag, hvaða skoðun
hefur þú á því? Er eitthvað sem fólk
þarf að varast?
„Mataræðið er 80% af árangr-
inum. Þú getur ekki æft af þér lé-
legt mataræði. Ef þú ert með mat-
aræðið yfir daginn/vikuna á hreinu
upp á 75-85% þá hefurðu smá svig-
rúm til þess að njóta einhvers sem
þú kannski færð þér ekki á hverjum
degi.“
Fólk velur það sem
hentar því best
„Varðandi ketó og föstur þá hef
ég prófað hvort tveggja, og mín
skoðun er sú að fólk velur sér það
sem hentar því best. Ketó er lágkol-
vetna mataræði með mikilli fitu-
inntöku og próteini en litlu af kol-
vetnum og margir hverjir elska það
og vegnar vel á slíku og er það bara
frábært og að mínu mati ekkert
verra en hvað annað. Fösturnar aft-
ur á móti eru meira mín deild, það
hentar mér mjög vel 16:8 eða 17:7
konseptið. Mér finnst oft erfitt að
borða á morgnana og nota oftast
gluggann 11/12-19/20. En föstur eru
alls ekki einhver „megrunarleið“
heldur búa bara til „fæðuglugga“
þessa 7-8 klukkutíma sem þú notar
til að borða hitaeiningafjölda þinn
yfir daginn í stað þess að borða yfir
lengri tíma og þar af leiðandi er
auðveldara að hafa stjórn á hitaein-
ingainntökunni. Sem hentar mér
mjög vel og hefur reynst fjölda
fólks við fitutap og þyngdaraukn-
ingu / vöðvauppbyggingu ef út í það
er farið.“
Anna Lovísa er virk á Snapchat
undir notendanafninu Lovisa11 og
notar appið til þess að hvetja sig og
fylgjendur sína með sér.
„Þú getur
ekki æft af
þér lélegt
mataræði“
Anna Lovísa Þorláksdóttir, verkefnastjóri og hóp-
tímakennari í Sporthúsinu, er búin að strengja
áramótaheit fyrir árið 2019. Hún segir algengt
að fólk fari of geyst af stað en sjálf hefur hún
reynslu af því að setja sér markmið og ná þeim.
Þegar Anna Lovísa var 19 ára var hún 104 kíló og
með hné sem voru að bugast undan álagi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsa Anna Lovísa Þorláksdóttir
hefur sett sér það markmið fyrir
árið 2019 að vinna upp þol á styrk
sem hún missti niður á meðgöngu.
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
101 ART DECO
Lady Gaga vekur gjarnan athygli
fyrir klæðaburð sinn. Á þriðju-
daginn var það þó ekki kjóll
hennar sem átti sviðið eins og á
Golden Globe-verðlaunahátíðinni
um helgina heldur var það stór-
undarlegur aukahlutur sem söng-
og leikkonan bar sem stal sen-
unni á galakvöldi í New York.
Gaga minnti á gamla Holly-
wood-stjörnu í glitrandi svörtum
kjól frá Ralph Lauren. Kjóllinn
sem var með hálsmáli sem minnti
á jakkaföt var töluvert einfaldari
en skrautlegur aukahluturinn
sem hún bar.
Fólk virðist heldur ekki átta
sig á hvaða hlutverki aukahlut-
urinn átti að þjóna. Var þetta
veski eða bara skraut? Var Lady
Gaga kannski mætt með fuglinn
sinn?
AFP
Með veski eða gæludýr?
Fjaðrir Aukahlut-
urinn undarlegi var
skreyttur fjöðrum.