Morgunblaðið - 10.01.2019, Side 57
MINNINGAR 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
✝ Ólöf ÁslaugKristjánsdóttir
fæddist á Siglufirði
17. janúar 1956.
Hún lést á Landspít-
alanum 28. desem-
ber 2018.
Foreldrar hennar
voru Þrúður El-
ísabet Guðmunds-
dóttir, f. 28.7. 1917 á
Litlu-Borg í Húna-
þingi, d. 30.1. 2002,
og Kristján Sturlaugsson, f. 3.1.
1912 á Saurum í Laxárdal í Dala-
sýslu, d. 16.6. 1974.
Ólöf var næstyngst sjö systkina,
hin eru Sigurlaug, f. 1940, Einar
Janus, f. 1943, Ásta Lilja, f. 1947,
d. 2.6. 2017, Elísabet, f. 1950, Stur-
laugur, f. 1953, og Arndís, f. 1958.
Eiginmaður Ólafar var Sig-
urður Ríkharð Stefánsson, f.
17.12. 1956, d. 5.4. 2009. Hann
var sonur hjónanna Fríðu Sig-
urðardóttur, f. 1937, og Stefáns
Þórs Haraldssonar, f. 1933. Ólöf
giftist Sigurði 24. júlí 1975 í
Siglufjarðarkirkju.
Synir þeirra eru: 1)
Hákon Heimir, f.
1974, kona hans er
Alda Pétursdóttir.
Börn þeirra eru
Rakel Rós, f. 2001,
Brynjar Karl, f.
2004, og Sigurður
Ríkharð, f. 2010. 2)
Birgir Agnar, f.
1982, kona hans er
Ágústa Þórunn Jó-
elsdóttir. Synir þeirra eru Krist-
ófer Ingi, f. 2006, Óskar Máni, f.
2013, og Aron Thor, f. 2016.
Ólöf fæddist á Siglufirði og bjó
þar meginhluta ævinnar. Hún
starfaði við ýmis félags- og
nefndarstörf, m.a. sem formaður
bæjarráðs Siglufjarðar í 10 ár
auk þess að sinna fjölda annarra
trúnaðar- og nefndarstarfa fyrir
bæinn. Síðustu árin starfaði hún
á hjúkrunarheimilinu Eir.
Útför Ólafar fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 10.
janúar 2019, klukkan 13.
Elsku mamma, kveðjustundin
kom allt of snemma.
Lífið er sannarlega hverfult.
Það var bjart yfir í lok mars
þegar Brynjar fermdist, engar
vísbendingar um að dökk
óveðursský væru að hrannast
upp. En það var sannarlega
ógnarstormur í aðsigi.
Mamma var staðráðin í að
standa storminn af sér en þrátt
fyrir mikla og hetjulega baráttu
tókst það því miður ekki.
Þegar ég minnist mömmu reik-
ar hugurinn ósjálfrátt til æskuár-
anna á Siglufirði, hlýjar og nota-
legar minningar. Oft gestkvæmt á
heimilinu og kátt á hjalla, mamma
sá til þess að það var ávallt snyrti-
legt, allt í röð og reglu, heitur
matur í hádeginu og á kvöldin. Ég
minnist glaðværðar, umhyggju og
hlýju.
Það voru oft líflegar og jafnvel
heitar umræður við eldhúsborðið
heima, m.a. um stjórnmálin.
Mamma var mikill jafnaðarmaður
og sat í bæjarstjórn fyrir Alþýðu-
flokkinn, þannig að bæjarmálin
voru í brennidepli á þeim tíma.
Mamma miðlaði ávallt málum af
stakri ró.
Gegnum tíðina lagði ég mitt af
mörkum til að skaprauna foreldr-
um mínum með ýmsum uppá-
tækjum en minnist þess aldrei að
mamma hafi skipt skapi eða sagt
við mig styggðarorð, slík var
ástin, umhyggjusemin og þolin-
mæðin. Þannig mun ég minnast
móður minnar.
Megi hún hvíla í friði við hlið
föður míns.
Hákon Heimir Sigurðsson.
Elsku mamma.
Þetta er allt saman svo óraun-
verulegt og sárt, aldrei hefði mig
grunað að okkar kveðjustund yrði
á deildinni við hliðina á þar sem
pabbi dó eftir sína baráttu árið
2009.
Sem betur fer á maður fullt af
góðum minningum og ýmislegt
hefur verið bardúsað í gegnum
tíðina. Þú kenndir mér ansi margt
sem hefur og á eftir að koma sér
vel í náinni framtíð.
Sárt þykir mér að hugsa til þess
að þitt æviskeið sé á enda og að þú
fáir ekki að njóta barnabarnanna
þinna sem voru þér efst í huga öll-
um stundum. Stoltur er ég af þér
móðir kær, betri mömmu hefði ég
ekki getað hugsað mér og einnig
er ég stoltur af æðruleysi þínu og
baráttuvilja í gegnum þessi erfiðu
veikindi. Við litla fjölskyldan
stöndum þétt saman á þessum erf-
iðu tímum sem og alltaf eins og við
ræddum um.
Minning þín mun lifa í huga
okkar og hjörtum um ókomna tíð.
Elska þig mamma og sakna.
Þinn sonur
Birgir Agnar.
Elsku Lóa mín. Nú ertu farin
frá okkur og eftir sitjum við með
minningarnar einar en þar er af
nægu að taka. Ég man hvað þú
varst alltaf elskuleg við mig og
hvað ég upplifði mig alltaf vel-
komna til ykkar. Þegar ég var
eina „stelpan þín“, eftir að við Há-
kon byrjuðum saman, varstu allt-
af að kaupa handa mér föt eða
annað skemmtilegt. Ég man eitt
sinn er þið Siggi fóruð til útlanda
og komuð heim með hvíta boli og
sokka handa Hákoni en ég fékk
fallegar buxur, rúllukragapeysu
og fleiri falleg föt. Þú hafðir virki-
lega gaman af því að fá stelpu inn í
fjölskylduna og dekraðir við mig.
Þetta færðist svo yfir á Rakel
þegar hún fæddist og þú gast dúll-
að þér við að kaupa föt á hana. Ég
man þegar þið fóruð tvær einar í
verslunarferð í Kringluna, Rakel
hefur sennilega verið um fjögurra
eða fimm ára.
Svo var það sumarið þegar Há-
kon fór á sjóinn og ég var ein á
Akureyri. Þú hringdir í mig á
hverjum degi, rétt til að spjalla og
að heyra hvernig ég hefði það.
Passa að mér leiddist ekki.
Þegar Rakel fæddist voruð þið
mætt til Akureyrar um leið og
þið heyrðuð að fæðingin væri
komin af stað. Svo tók við bið,
endalaus bið, allan daginn, en þið
létuð það ekki á ykkur fá, svo
spennt voruð þið að hitta fyrsta
barnabarnið ykkar. Það var ynd-
islegt að fá ykkur strax upp á
fæðingardeild enda spennan og
gleðin mikil.
Svo fæddist Brynjar og þá
færðist nú fjör í leikinn. Mikið
fannst krökkunum gaman að
busla í bölum á pallinum hjá
ömmu í Miðhúsum eða fá að
sprauta vatni á grasið, blómin og
allt annað í garðinum. Þegar
Brynjar var yngri mætti hann
stundum fyrir utan hjá ömmu,
gjarnan með vini, aðeins að koma
í heimsókn og ósjaldan var þeim
gefinn ís eða peningur fyrir ís sem
þeir gátu keypt sér á bakaleiðinni.
Þetta gladdi þá ávallt.
Það voru ófá tár á hvarmi þeg-
ar við tilkynntum þér nafnið á
Sigga Rikka. Yngsta prinsinum
okkar sem ekki fékk að kynnast
föðurafa sínum. Hann er aðeins
átta ára í dag svo við munum
segja honum sögur af ömmu og
afa frá Siglufirði til að halda minn-
ingunum á lofti fyrir hann.
Elsku, elsku Lóa mín. Þetta
hafa verið erfiðir níu mánuðir og
erfiðastur var desember. Ég var
hjá þér helgina í apríl þegar þú
fékkst greininguna og fyrir jól
þegar þú fékkst lokaniðurstöður.
Það hefur mikið verið grátið og
erfitt að sætta sig við þetta og
kveðja. Við munum minnast þín
fyrir allt það jákvæða og góða, allt
sem þú gerðir fyrir okkur og hvað
þú elskaðir barnabörnin þín mikið
og settir þau í fyrsta sætið. Þú
munt lifa áfram í minningum okk-
ar og sögum. Við elskum þig.
Þín tengdadóttir,
Alda.
Elsku Lóa.
Hér sit ég við borðið þitt og
skrifa þessi minningarorð.
Það er tómlegt og finnst mér
eins og þú eigir eftir að koma
gangandi inn í eldhús og setjast
með kaffibollann þinn og spjalla.
Söknuðurinn er mikill og
kemst ég ekki hjá því að syrgja
þær stundir sem ömmusnáðarnir
þínir munu aldrei eiga með þér.
Ein uppáhaldsminning mín
með þér er þegar þú heimsóttir
okkur til Noregs, enda var það
tími sem við náðum að kynnast
betur og skilja hvor aðra betur.
Þó að við værum ekki alltaf sam-
mála varstu og ert enn fyrirmynd
mín á mörgum sviðum og sakna
ég og syrgi þann tíma sem við átt-
um eftir að eiga saman og tengj-
ast enn meir.
Ég held utan um strákana þína
og passa þá eins vel og ég get,
elsku tengdamamma mín, og
geymi minninguna um þig í hjarta
mínu alla tíð.
Þín
Ágústa.
Elsku amma.
Við söknum þín og geymum þig
ávallt í hjörtum okkar.
Regnbogi glitrar um himin,
þvílíkt undur sem það nú er.
Líkt og vinátta sem maður öðlast og
varðveitir
um alla eilífð í hjarta sér.
Á enda hvers regnboga er gullið góða,
maður finnur það ef vel er að gáð.
Maður getur fundið slíka gersemi í vin-
áttu,
sérstaklega ef vel í byrjun er sáð.
Þó er sú staðreynd að regnbogar dofna
og eftir verður minningin ein
um þá liti, það undur og þá fegurð
sem virtist vera svo hrein.
Vinátta getur því sannarlega dofnað,
sérstaklega ef vinur í burtu fer.
Minningar verða því einungis eftir
fyrir þann sem eftir er.
Um hlátrasköllin góðu,
þau skemmtilegu spjallkvöld,
tryggðin, trúin og traustið
og hvað gleðin tók oft öll völd.
Þó gerist oft það undur
að regnbogi birtist á ný
og vinir aftur hittast
líkt og ekkert hafi farið fyrir bí.
Því ef vonleysið mann ei gleypir,
heldur ætíð í þá trú
að regnbogi muni aftur birtast
og sá regnbogi gæti verið þú.
Það skiptir því ekki svo miklu
hvar á jarðarkringlunni maður er
því ætíð mun maður sjá aftur
regnbogann birtast sér.
Alltaf mun ég því halda
mínum kæra vin nær,
allavega í mínu hjarta,
öruggan stað þar hann fær.
(Katrín Ruth)
Ömmusnáðarnir þínir
Kristófer Ingi, Óskar Máni
og Aron Thor Birgissynir.
Elsku amma okkar.
Við munum sakna þín sárt en
þú munt lifa áfram í hjörtum okk-
ar og minningum. Hvíldu í friði og
kysstu nú afa frá okkur.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Kveðja frá barnabörnunum
þínum,
Rakel Rós, Brynjar Karl
og Sigurður Ríkharð
Hákonarbörn.
Í dag kveðjum við elskulega
systur okkar Ólöfu Áslaugu frá
Siglufirði sem er látin eftir erfið
veikindi. Hún var sjötta í röð sjö
systkina. Oft var glatt á hjalla á
stóru heimili okkar við leik og
störf. Við eigum eftir að sakna
elsku Lóu okkar mikið. Guð blessi
syni hennar, tengdadætur og
barnabörnin.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum)
Minning þín lifir.
Sigurlaug, Einar Janus, El-
ísabet, Sturlaugur, Arndís.
Það lýsti friður og kyrrð af
hvítu jólaljósunum í gluggum
Landspítalans, í síðasta skiptið
sem ég heimsótti Lóu frænku.
Vonin um bata engin, krabbinn
hafði betur gegn bjartsýninni um
að þetta myndi hafast. Það er
skrítin tilhugsun að frænka sem
hefur verið til staðar fyrir mig
eins lengi og ég man eftir skuli
vera horfin á braut.
Lóa frænka var sjálfstæð, eld-
klár og fljót að koma auga á það
góða í öllum aðstæðum. Það kom
vel í ljós í þessum veikindum, því
hún kvartaði aldrei, ætlaði bara
að ná sér af þessu og halda áfram
að lifa lífinu. Það var hægt að
finna það spaugilega í þessum að-
stæðum, eins og öðrum og það var
stutt í hláturinn, eins og venju-
lega.
Lóa lét að sér kveða í atvinnu-
rekstri og bæjarpólitíkinni á Sigló
árum saman. Það var sérlega
þægilegt að leita til hennar varð-
andi ráð um sveitarstjórnarmálin,
þar var hún á heimavelli, vel lesin
og hokin af reynslu. Var formaður
bæjarráðs lengi, í stjórn heil-
brigðisstofnunar og árin sem ég
var í Kennó var hún í skólamála-
nefnd og fyrirmælin voru skýr um
að klára námið og flytja norður.
Þegar Lóa og Siggi fluttu
suður, rétt eftir aldamót, með við-
komu í Mexíkó um tíma, settust
þau að í Grafarvoginum. Þau
fengu því miður allt of stuttan
tíma saman og þessi 10 ár síðan
Siggi dó hafa verið Lóu erfið.
Með söknuði kveð ég Lóu
frænku og heiti því að vera til
staðar fyrir hennar fólk um
ókomna tíð.
Við sjáumst síðar.
Hulda Hrönn.
Ólöf Áslaug
Kristjánsdóttir
EVA ÖRNÓLFSDÓTTIR
framhaldsskólakennari,
Lundi 92, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi,
að morgni jóladags, 25. desember.
Útför hennar verður frá Áskirkju
föstudaginn 11. janúar klukkan 15.
Ragnar Jónasson
Jónas Ingi og Guðný
Sigrún og Björn Lúðvík
Stefa og Rúnar
Elsku faðir okkar, afi og langafi,
ÖLVER ÞORLEIFUR GUÐNASON
frá Eskifirði,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði
4. janúar. Hann verður jarðsunginn frá
Eskifjarðarkirkju föstudaginn 11. janúar klukkan 14.
Aðstandendur
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
INGVAR ÁGÚSTSSON,
lést miðvikudaginn 19. desember.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 17. janúar klukkan 13.
Sigurður Ingvarsson Steinunn Jóhannsdóttir
Kristinn Ingvarsson Guðný O. Arndal
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG PÉTURSDÓTTIR,
áður Stóragerði 28,
Reykjavík,
lést 5. janúar.
Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn
15. janúar klukkan 13.
Guðbjörg Gunnarsdóttir Pétur Ingi Guðmundsson
Kristín S. Gunnarsdóttir Sigþór Þórarinsson
Ástrós Gunnarsdóttir Þorfinnur Ómarsson
og ömmubörn
Okkar ástkæri,
TRYGGVI ÓLAFSSON
listmálari,
lést á Droplaugarstöðum 3. janúar.
Útför hans fer fram frá Neskirkju
mánudaginn 14. janúar klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Grensásdeild og
SEM-samtökin.
Gerður Sigurðardóttir
Stígur Steinþórsson Sigurlaug Arnardóttir
Gígja Tryggvadóttir Ari Matthíasson
Þrándur Tryggvason Elísabet Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI ÓLAFSSON
hagfræðingur,
Sunnuvegi 7,
Reykjavík,
lést á Landspítala Vífilsstöðum
sunnudaginn 6. janúar.
Útför fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 15. janúar
klukkan 13.
Guðmundur Óli Helgason
Guðrún Lára Helgadóttir Christer Allanson
Þórólfur Örn Helgason
Hulda Hrönn M. Helgadóttir
Kjartan Orri Helgason Guðlaug Erla Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR
leikskólakennari,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
aðfaranótt mánudags. Hún verður
jarðsungin frá Árbæjarkirkju mánudaginn
14. janúar klukkan 13.
Ásdís Gunnarsdóttir Halldór Þórisson
Anna Helga Sigfúsdóttir Jón Bjarni Björnsson
Sigríður Hulda Sigfúsdóttir Eiríkur Jónsson
og barnabörn