Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 8

Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty Dekraðu við línurnar BH 8.950 kr. Buxur 3.650 kr. Fantasie Lilianne Meirihlutinn í borgarstjórn fór íómerkilega málfundaræfingu á borgarstjórnarfundi í fyrradag. Með því ætlaði hann að breiða yfir kosningabrot sín en afhjúpaði í stað- inn slæman málstað. Minnihlutinn hafði lagt fram tillögu um að sveitarstjórnar- ráðuneytið kannaði aðgerðir borgar- innar í aðdraganda kosninga, aðgerðir sem reyndust lög- brot.    Klækjastjórn-málamenn meirihlutans, Dagur B. Eggertsson og Þórdís Lóa Þórhalls- dóttir, létu „breyta“ tillögunni þannig að hún varð óþekkjanleg, til að þurfa ekki að fella hana.    Breytingin fólst í því að taka út aðsveitarstjórnarráðuneytið skoðaði ákvarðanir og athafnir borgarinnar í aðdraganda kosning- anna og að setja í staðinn inn texta um að „leggja línur til framtíðar“. Ætlunin með því var að beina at- hyglinni frá kosningabrotinu í for- tíðinni og tala í staðinn almennt um framtíðina.    Vissulega er gott að ræða fram-tíðina, en fyrst þarf að sjálf- sögðu að komast til botns í því hvað gerðist í borginni í aðdraganda síð- ustu borgarstjórnarkosninga.    Hvernig gat það gerst að meiri-hluti borgarstjórnar sinnti engum aðvörunum en hélt áfram með kosningabrotaaðgerðir sínar?    Skiljanlegt er að Dagur vilji ekkiræða þetta, en þetta er samt stóra málið sem verður að upplýsa. Dagur B. Eggertsson Klækjamenn afhjúpa sig STAKSTEINAR Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,7% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-15. febrúar. Fylgi Sjálf- stæðisflokksins jókst um tæpt pró- sentustig frá síðustu mælingu sem lauk 28. janúar sl., en greint er frá þessu á heimasíðu MMR. Samfylkingin mældist með 15,9% fylgi, sem er tæplega hálfu prósentu- stigi meira en flokkurinn mældist með í síðustu könnun og fylgi Fram- sóknarflokksins jókst um tæpt pró- sentustig og mældist nú 13,5%. Ríkisstjórnin á uppleið Þá minnkaði fylgi Vinstri grænna um rúmlega eitt prósentustig og er nú 11,1%, fylgi Pírata minnkaði um rúmlega eitt og hálft prósentustig og mælist nú 10,4% og fylgi Miðflokks- ins minnkaði um rúmlega tvö pró- sentustig frá síðustu mælingum og mælist flokkurinn nú með 6,1%. Fylgi annarra flokka mælist 5,2% Samkvæmt könnun MMR jókst stuðningur við ríkisstjórnina lítil- lega, 42,8% sögðust styðja ríkis- stjórn Katrínar Jakobsdóttur for- sætisráðherra nú samanborið við 41,5% í síðustu mælingu. Alls svöruðu 934 einstaklingar, 18 ára og eldri, könnuninni og voru þeir valdir handahófskennt úr Þjóðskrá. Sjálfstæðisflokkur eykur fylgi sitt  Sjálfstæðisflokkur mælist nú með 22,7% fylgi og Samfylking er með 15,9% Morgunblaðið/Ómar Lýðræði Alþingishúsið stendur við Austurvöll í miðbæ Reykjavíkur. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Sala á miðum í Herjólf, fyrir Þjóð- hátíð í Vestmannaeyjum 2019, fór vel af stað, að sögn ÍBV og Sæferða. Miðasala hófst kl. 9 í gærmorgun og rúmum klukkutíma síðar var orðið uppselt í allar ferðir hjá Sæferðum mánudaginn 2. ágúst. „Miðasalan er búin að ganga mjög vel hjá okkur. Það er eiginlega orðið uppselt á föstudeginum og uppselt á mánudeginum af þeim miðum sem við vorum með í sölu,“ sagði Rann- veig Ísfjörð, afgreiðslustjóri Herjólfs. Mikið álag var á bókunarvél fyrirtæk- isins sem tók við um 800 bókunum fyrsta klukkutímann eftir opnun. „Það var óvenjulítið álag á símanum því netið tók þetta eiginlega allt hjá okkur. Um 90% sölunnar fóru fram á netinu,“ segir Rannveig. Sala ÍBV á miðum í Herjólf hófst einnig í gær, en ÍBV kaupir hluta af Herjólfsmiðum Sæferða. „Það geng- ur allt vel hjá okkur, “ sagði Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmda- stjóri ÍBV, eftir hádegi í gær. „Við eigum alveg enn miða. Það er ekki uppselt í neinar ferðir hjá okkur,“ segir Dóra. Fyrstu listamenn tilkynntir Þjóðhátíðarnefnd tilkynnti í gær fyrstu listamennina sem koma fram á Þjóðhátíð. Ljóst er að margir ungir tónlistarmenn koma fram á hátíðinni í ár. Söngkonan GDRN kemur fram á hátíðinni í fyrsta skipti. Herra Hnetu- smjör og Huginn mæta einnig í Herj- ólfsdal og raftónlistartvíeykið Club- Dub sömuleiðis. Í tilkynningu frá Þjóðhátíð kemur fram að fleiri lista- menn verða staðfestir á næstu vikum en Þjóðhátíð 2019 er sögð verða sú stærsta frá upphafi. Sala á miðum fyrir Þjóðhátíð byrjar vel  Uppselt í Herjólf mánudaginn 2. ágúst hjá Sæferðum Morgunblaðið/RAX Herjólfur Ljóst er að fjölmargir munu sigla á Þjóðhátíð 2019.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.