Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
2
2
6
RENAULT KANGOO
DÍSIL, 1,5 L, 90 HESTÖFL.
NÚ Í FYRSTA SINN SJÁLFSKIPTUR
Verð:2.572.000 kr. án vsk.
3.190.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 5,0 l/100 km*
RENAULT KANGOO RAFBÍLL
NÝ STÆRRI RAFHLAÐA - 33 KWH
UPPGEFIN DRÆGNI 180–200 KM**
Verð:4.090.000 kr.
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
r
tö
lu
r
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri
/
**
S
am
kv
æ
m
tu
pp
ge
fn
um
tö
lu
m
fra
m
le
ið
an
da
um
dr
æ
gn
iv
ið
be
st
u
m
ög
ul
eg
u
að
st
æ
ðu
r
(W
LT
P
).
RENAULTKANGOO
Renault Kangoo er mest keypti sendibíll landsins.
Komdu í atvinnubíladeild BL og fáðu tilboð í nýjan Kangoo:
Sjálfskiptan dísilbíl eða 100% rafbíl með stærri rafhlöðu en áður.
www.renault.is
100% RAFMAGN
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 /www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sumarið nálgast og fyrir kylfinga
gæti verið tímabært að kynna sér
talsverðar breytingar sem gerðar
hafa verið á golfreglum. Þær taka til
allra þátta leiksins og margvíslegra
uppákoma sem hent geta kylfinga.
Sæmundur Melstað, formaður
dómaranefndar Golfsambands Ís-
lands, segir að um alþjóðlegar breyt-
ingar sé að ræða og þær mestu sem
gerðar hafi verið á golfreglunum í
mörg ár. Hann segir að tilgangurinn
sé meðal annars að flýta leik og ekki
sé lengur refsað með vítishöggi geri
kylfingur eitthvað fyrir slysni, eins
og þegar hann tvíslær bolta. Þá séu
reglurnar á nútímalegra máli heldur
en áður og um leið skiljanlegri fyrir
hinn almenna kylfing. Íslensk þýð-
ing á reglunum verður send heim til
kylfinga á næstunni.
Af einstökum breytingum nefnir
Sæmundur að nú má pútta með
flaggstöngina í holunni, jafnvel þótt
boltinn sé á flöt. Einnig má kylfingur
gera við flestar skemmdir á flötinni,
ekki aðeins boltaför, að náttúru-
legum ójöfnum undanskildum.
Mæla fjarlægð með farsímum
Í fréttaskotum frá dómaranefnd
Golfsambands Íslands á heimasíðu
sambandsins er fjallað um breyt-
ingar á reglunum. Þar kemur m.a.
fram að fjarlægðarmælar eru nú
leyfðir samkvæmt almennum golf-
reglum, þar með taldir farsímar með
innbyggða fjarlægðamæla. Áður
þurfti að setja staðarreglu til að
heimila notkun þeirra en nú má nota
fjarlægðarmælana þótt slík staðar-
regla sé ekki fyrir hendi. Á hinn bóg-
inn má nú setja staðarreglu sem
bannar notkun fjarlægðarmæla.
Eftir þessa breytingar hefur kylf-
ingur þrjár mínútur til að leita að
bolta í stað fimm mínútna áður og
önnur breyting tekur til þess hvern-
ig kylfingar láta bolta falla. Nú á að
láta bolta falla úr hnéhæð, en ef kylf-
ingur af gömlum vana lætur boltann
óvart falla úr axlarhæð getur hann
leiðrétt mistökin með því að láta
boltann falla aftur og fær ekki víti.
Ef bolti lendir í ómögulegri stöðu í
glompu og kylfingur treystir sér
ekki til að slá upp úr glompunni hef-
ur hann nú nýjan kost við að taka
víti. Gegn tveimur vítahöggum getur
hann dæmt boltann ósláanlegan og
látið bolta falla utan glompunnar.
Með þessari nýjung er komið í veg
fyrir að leikmenn „festist“ í glomp-
unni.
Nú er til dæmis veitt lausn frá öll-
um holum sem dýr hafa myndað á
vellinum. Í fyrri reglum takmörk-
uðust slíkar lausnir við grafdýr, þ.e.
dýr sem mynda holur til bústaðar
eða skjóls. Hundar falla t.d. ekki
undir grafdýr og því var ekki veitt
lausn frá holum eftir hunda. Nú
þurfa dómarar því ekki lengur að
greina hvers konar dýr myndaði hol-
una því lausn er veitt frá holum eftir
öll dýr, að því er fram kemur á golf-
.is. Reyndar er þetta nokkuð sem
kylfingar þurfa sjaldan að glíma við
hér á landi, en er í alþjóðareglunum.
Skiljanlegri golfreglur flýti leik
Mestu breytingar í mörg ár Fjarlægðarmælar leyfðir Kylfingar „festist“ ekki í glompu
Í fréttaskotum frá dómara-
nefnd GSÍ er fjallað um breyt-
ingar á golfreglunum. Þar er
m.a. að finna eftirfarandi um
nýja skilgreiningu á kylfulengd:
Í fyrri reglum máttirðu velja
hvaða kylfu þú notaðir við að
mæla kylfulengdir, t.d. þegar
þú tókst víti. Nú er kylfulengd-
in föst fyrir hvern leikmann í
hverjum hring, þ.e. kylfulengd-
in er lengd lengstu kylfunnar
sem þú ert með í golfpok-
anum, að pútternum undan-
skildum. Með þessari breyt-
ingu er komið á meira sam-
ræmi í stærð lausnarsvæðis á
milli leikmanna, t.d. þannig að
leikmenn með langa púttera
njóti ekki stærra lausnar-
svæðis en aðrir.
Kylfulengd
skilgreind
FRÉTTASKOT DÓMARA
AFP
Álitamál Atvinnukylfingurinn Bryson DeChambeau bíður eftir úrskurði dómara á móti þeirra bestu á Hawaii.