Morgunblaðið - 21.02.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.02.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 • Við erum á facebook Nýtt frá Skoðið laxdal.is/yfirhafnir Skipholti 29b • S. 551 4422 Fisléttir dúnjakkar frá 19.900 Við erum á Facebook Laugavegi 82 | 101 Reykjavík Sími 551 4473 Ný sending frá nanso Smart föt, fyrir smart konur Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is NÝJAR VORVÖRUR Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is Opið virka daga kl. 8-18 Sængurverasett, dúkar, servíettur, viskustykki, dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór, handklæði & þvottapokar. Vörurnar fást í Efnalauginni Björg í Mjódd LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili, sjúkrastofnanir og heimili „[Við] gátum ekki brugðist við fyrr en hann var búinn að ná að lumbra ansi duglega á henni, henda henni inn í runna og stappa á henni þar.“ Svona lýsir Snorri Barón Jónsson árás sem hann varð vitni að í hádeg- inu í gær, en lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu handtók karlmann í annarlegu ástandi á Háaleitisbraut í Reykjavík eftir að sá gekk gróflega í skrokk á ungri konu. Er hann sagður hafa sparkað í bifreið sem var kyrr- stæð á gatnamótum á Háaleitisbraut og í framhaldinu réðst hann á öku- manninn, sem var ung kona. Snorri lýsir því í færslu á Face- book að árásin hafi verið hrottaleg og að hann sé hugsi vegna þess sem hann varð vitni að. Tildrög árásarinnar voru þau, að sögn Snorra, að maðurinn virtist vera ósáttur við að bíll konunnar skagaði lítillega inn á gangbraut á ljósum við gatnamót Háaleitisbraut- ar og Kringlumýrarbrautar. „Hann byrjaði á að sparka í bílinn hennar og garga duglega á hana. Hún fór út úr bílnum til að ræða við hann og þá hjólaði hann bara í hana,“ skrifar Snorri, sem var ásamt félaga sínum í bíl á rauðu ljósi hinum megin við götuna. „Um leið og við náðum að bruna yfir til þeirra og negla bílnum upp á gangstéttina þá tók hann á rás,“ segir hann. Konan sem ráðist var á er sögð hafa verið í miklu áfalli eftir ódæðið. Árásarmaðurinn verður yfirheyrður þegar ástand hans leyfir. Óður maður réðst á konu  Gróf líkamsárás um miðjan dag á götu úti í Reykjavík „Við sem Samtök foreldra lítum þetta grafalvar- legum augum. Þetta er atriði sem verður bara að vera í lagi. Það er ekki hægt að gefa neinn afslátt af því,“ segir Hrefna Sigur- jónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Heimilis og skóla, spurð um mál sem kom upp fyrr í vikunni þar sem í ljós kom að ein- staklingur hafði safnað kennitölum og forsíðumyndum 422 nemenda í 96 grunnskólum í landinu úr skóla- upplýsingakerfinu Mentor. Hrefna segir að þegar svona mál komi upp bregði fólki eðlilega og velti því fyrir sér hvort þetta hafi beinst gegn barni viðkomandi og hvort öruggt sé að einungis hafi ver- ið um að ræða mynd og kennitölu. Sem séu þess utan auðvitað upplýs- ingar sem eiga ekkert að fara út úr kerfinu. Hrefna segir Heimili og skóla fylgjast vel með málinu og væntanlega eigi það sama við um skólayfirvöld, sveitarfélögin og for- svarsmenn Infomentor sem reki kerfið. Upplýsinga- leki sagður alvarlegur  Kennitölur og myndir láku út
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.