Morgunblaðið - 21.02.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.02.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum Škoda Kodiaq hefur slegið rækilega í gegn og Karoq litli bróðir gefur honum lítið eftir. Komdu í reynsluakstur og finndu hvernig er að vera á toppnum. Hlökkum til að sjá þig. Tilboðsverð 4.550.000 kr. Škoda Karoq Ambition / 1.6 TDI / Sjálfskiptur Listaverð 4.850.000 kr. 300.000 kr. Afsláttur Verð frá 5.790.000 kr. Škoda Kodiaq 4x4 Tveir á toppnum frá Škoda VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við vorum búnir að vera á sama stað í átta ár og þurftum á ákveðinni breytingu að halda. Það er gott að prófa nýja hluti og kannski að taka skrefið upp á við,“ segir leikstjórinn Gunnar Páll Ólafsson. Gunnar Páll og Samúel Bjarki Pétursson, samstarfsmaður hans til næstum tveggja ára- tuga, gerðu nýverið samning við framleiðslu- fyrirtækið Superprime sem hefur á sínum snærum fjölmarga heimsþekkta leikstjóra í Hollywood. Þar á meðal eru nöfn á borð við Damien Chazelle, David LaChapelle, Martin Scorsese, Paul Thomas Anderson og Terrence Malick sem alla jafna einbeita sér að gerð stórra kvikmynda í Hollywood en leikstýra einnig auglýsingum af og til, þó það fari kannski ekki hátt. Hafa gert auglýsingar fyrir stórfyrirtæki Samúel og Gunnar hafa gert auglýsingar og tónlistarmyndbönd um árabil. Þeir hafa verið á mála hjá Humble TV í Bandaríkjunum síð- ustu átta árin og á þeim tíma gert auglýsingar fyrir stórfyrirtæki á borð við Mercedes Benz, Audi, McDonalds, Spectrum, Disney og Guinness-bjór þar sem fyrrverandi fótbolta- maðurinn Rio Ferdinand var í aðalhlutverki. „Við vildum breyta til og sögðum upp samn- ingi við Humble TV. Þó Ameríka sé stórt land spurðist fljótt út að við værum á lausu og við fengum skilaboð frá fjölda fyrirtækja. Svo tók við tveggja vikna törn þar sem við tókum örugglega 20 símafundi með mismunandi fyrirtækjum. Það var eiginlega frekar eins og við værum að ráða einhvern í vinnu,“ segir Gunnar og hlær við. „Eigendur Superprime komu heiðarlega fram, sögðu hvað þeim fannst og hvernig þeir gætu nýtt sér krafta okkar. Það var ekkert verið að sykurhúða þetta, bara farið yfir það hvernig við gætum unnið saman. Það er kannski eitt af því sem maður hefur lært í gegnum tíðina, að geta séð í gegnum ein- hverja vitleysu. Okkur leist vel á eigendurna sem eru virt fólk í bransanum. Superprime er bæði að framleiða efni fyrir sjónvarp og bíó- myndir en er líka sterkt í auglýsingum. Teng- ing þarna á milli hljómaði spennandi fyrir okk- ur. Svo var það ekkert að skemma fyrir að geta verið á lista með þessum stóru nöfnum.“ Spennandi verkefni í dagskrárgerð Samúel og Gunnar starfa ekki bara erlendis. Þeir eiga framleiðslufyrirtækið Skot hér heima ásamt Ingu Lind Karlsdóttur og Hlyni Sigurðssyni og segir Gunnar að verkefna- staðan hjá fyrirtækinu sé góð. Þó auglýs- ingamarkaðurinn hafi ekki verið mjög líflegur síðan eftir HM síðasta sumar þá hafi annað tekið við. „Það er brjálað að gera í dagskrár- gerð. Við erum að gera aðra þáttaröð með Loga Bergmann og aðra þáttaröð af Kokka- flakki sem er að fara í sýningar og vorum að klára Burðardýr fyrir Stöð 2. Svo er heilmikið fram undan í haust. Ég og Sammi erum búnir að þróa og erum að fara að leikstýra nýjum þætti sem fer í tök- ur í mars. Þetta er þáttur sem tekur við af Út- svari á RÚV næsta vetur, kallast Kappsmál og verður stjórnað af Braga Valdimar Skúlasyni og Björgu Magnúsdóttur. Þetta verður svona leikjaþáttur þar sem íslenskir orðaleikir og orðagrín fá að njóta sín.“ Íslenski bransinn góður stökkpallur Gunnar Páll segir að þó rólegra sé yfir aug- lýsingabransanum hér heima en oft áður sé nóg af verkefnum erlendis. „Við höfum minnk- að okkar leikstjóravinnu hér heima og erum kannski meira í að koma öðrum á framfæri í gegnum Skot. Við erum hins vegar sjálfir í leikstjórastólnum úti og þar eru engin merki um að verkefnum sé að fækka. Það er til dæm- is mikið að gera í bílaauglýsingum en þær eru oftast það fyrsta sem skorið er niður þegar kreppir að. En við sjáum það vel að íslenski bransinn er góður stökkpallur. Unstoppable- auglýsingin sem við gerðum fyrir Icelandair hefur til dæmis gert heilmikið fyrir okkur í Bandaríkunum. Það er einmitt það besta við íslenska bransann, þar er hægt að prufukeyra efni áður en þú ferð út í stóra bransann.“ Ekki verður annað séð en að þeir félagar séu komnir í „stóra bransann“ þegar nöfn þeirra eru talin upp með heimsþekktum leik- stjórum. „Já, þetta er alveg Meistaradeildin. Þetta er eins og að fá að spila fyrir United. Við höfum auðvitað okkar sambönd sem við komum með þarna inn. En þetta eru eftirsóttir leikstjórar sem laða að sér handrit. Það eru spennandi tímar fram undan.“ Vinna með virtu fólki í bransanum  Samúel og Gunnar gerðu samning við framleiðslufyrirtækið Superprime  Eigendur þess njóta virðingar í kvikmyndabransanum  Kynntir við hlið Martin Scorsese og Paul Thomas Anderson Nýr vettvangur Gunnar Páll Ólafsson og Samúel Bjarki Pétursson eru á uppleið ytra. Eins og rakið er hér til hliðar hafa Samúel og Gunnar á síðustu árum gert auglýs- ingar fyrir erlend stórfyrirtæki á borð við Mercedes Benz, Audi, McDonalds, Spectr- um, Guinness-bjór og Toy Story-garð á vegum Disney. Þá gerðu þeir stóra herferð fyrir síðustu jól fyrir tískuvöruverslan- irnar TJ Maxx í Bandaríkjunum. Búast má við því að fleiri spennandi erlend verkefni bætist við á næstunni. Þeir hafa líka gert fjölda auglýsinga fyr- ir íslensk fyrirtæki, til að mynda VÍS, Tryggingamiðstöðina, Lottó og Icelandair. Þá má einnig geta auglýsinga fyrir Ís- landsbanka, Mottumars, UN Women, Sím- ann, Flugfélag Íslands og Geysi. Hafa gert auglýs- ingar fyrir mörg stórfyrirtæki FJÖLBREYTT VERKEFNASKRÁ Guinness Rio Ferdinand í bjórauglýsingu. Ólík viðföng Viddi kúreki og Hörður Björgvin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.