Morgunblaðið - 21.02.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.02.2019, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 VIÐTAL Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við vorum full af þjóðernisást þegar Íslendingafélagið í New York fagn- aði 10 ára lýðveldisafmæli Íslands á Piccadilly-hótelinu í New York,“ segir Guðrún Tómasdóttir, sópran- söngkona og söngkennari, sem tók þátt í hátíðarhöldunum 18. júní 1954. Guðrún segir að Magnús Blöndal Jóhannsson píanóleikari hafi verið í forsvari fyrir dagskrá kvöldsins. Hún og Guðmunda Elíasdóttir hafi sungið íslensk lög við undirleik og í útsetn- ingu Magnúsar Blöndal. Á trompet hafi spilað amerískur tónlistarmaður sem Guðrún man ekki nafnið á. Gunnar Eyjólfsson leikari hafi lesið upp ættjarðarljóð ásamt henni og Guðmundu og allir hafi verið í sínu fínasta pússi á lýðveldisafmælinu. „Guðrún Camp, formaður Íslend- ingafélagsins, bjó með eiginmanni sínum í New York og ef ég man rétt var hún ein af þeim sem komu að stofnun fyrstu AA-deildarinnar á Ís- landi. Guðmunda Elíasdóttir flutti til New York með fjölskyldu sinni 1953 en hún lærði söng í París og Kaup- mannahöfn. Gunnar Eyjólfsson lærði leiklist í New York, hann fékk hlut- verk í a.m.k. einu leikriti en vann á þessum tíma fyrir sér sem flugþjónn og Magnús Blöndal stundaði píanó- nám við Juilliard-skólann. Sjálf var ég að læra söng,“ segir Guðrún, sem langaði að læra með öðrum Íslend- ingum, svo sem Kristni Hallssyni, Þuríði Pálsdóttur og leikaranum Jóni Sigurbjörnssyni á Ítalíu eða í London. Á þeim tíma máttu Íslend- ingar ekki vinna fyrir sér á þessum stöðum og þar sem Guðrún fékk ekki styrk hafði hún ekki tök á að læra á Ítalíu eða í London. „Guðrún Á. Símonar söngkona kom á eftir mér til New York, hún var mikil kattakona eins og margir vita. Gunnar Eyjólfsson kom úr einu fluginu frá Austurlöndum með sí- amskött sem hann gaf Guðrúnu. Svo leið tíminn og leit hófst að vænlegum högna til þess að halda læðunni undir. Það tókst og í fyllingu tímans fæddust níu fallegir síamskettlingar. Móðirin vildi ekkert með kettlingana hafa. En þá birtist gömul íslensk kisa, Katla, sem Halldóra hjá ís- lenska konsúlatinu átti. Katla kom af sjálfsdáðun, kettlingarnir lögðust all- ir á spena hjá henni og döfnuðu vel í hennar fóstri,“ segir Guðrún. Hún hóf söngnám að loknu stúdentsprófi frá MA 1948. Hún flutti til New York árið 1951 og hóf störf á læknastofu. Heim til Íslands kom hún aftur með Goðafossi 1958 ásamt eiginmanni sínum, Frank Ponzi listamanni, sem hún kynntist í New York. Í þeirri borg vann hún einnig töluvert með Guðmundu Elíasdóttur og Magnúsi Blöndal. „Ég var alltaf ákveðin í að halda mína fyrstu tónleika á 10 ára stúd- entsafmælinu mínu og við það stóð ég. Tónleikarnir voru haldnir í Gamla bíói, árið sem við komum heim. Sal- urinn í Gamla bíó er yndislegur og hljómburðurinn góður, “ segir Guð- rún en á Íslandi starfaði hún mikið með Ólafi Vigni Albertssyni, söng með vinkonu sinni Þuríði Pálsdóttur og kom nokkrum sinnum fram með Jóni Sigurbjörnssyni leikara og mörgum fleirum. Kom enn fram rúmlega 90 ára Guðrún söng í mörgum kórum, m.a. Dómkirkjukórnum undir stjórn Páls Ísólfssonar og Útvarpskórnum. Hún kenndi söng, m.a. í Tónskóla þjóðkirkjunnar í áratugi. Hún sá um raddþjálfun í mörgum kórum, eins og Fílharmóníukórnum. Pólífón- kórnum og Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, en Guðrún hætti að koma fram opinberlega og raddþjálfa fyrir einu til tveimur árum . „Ég er orðin 94 ára og kominn tími til að hætta því söngur er ungs manns atvinna. Í dag syng ég sam- söng ásamt vinum mínum í dag- þjálfun á Hrafnistu,“ segir Guðrún og bætir hlæjandi við að Vorboðarnir hafi orðið frægir þegar þeir sungu í auglýsingu fyrir DAS, texta eftir Ómar Ragnarsson, „DAS, DAS, DAS og aftur DAS.“ Guðrún er fljót til svars þegar hún er spurð hvað söngur geri. „Hann gefur gleði, þér líður vel þegar þú syngur og þú tjáir eitthvað sem snertir við öðrum. Það er hollt að syngja í kór en það er vandasamt og gott að kunna að blanda saman röddum og syngja í samhljómi,“ segir Guðrún, sem er langt í frá sam- mála því að einsöngvarar eigi ekki að syngja í kórum eins og margir haldi fram. „Ég söng mest kirkjulega tónlist og þjóðlög og hef gefið út diskana Ís- lensk þjóðlög og Vor mitt þar er blæ- ösp, með lögum, ljóðum og ljóðaþýð- ingum Þorsteins Valdimarssonar. Ég tók einnig upp lög sem sungin höfðu verið í íslenskum leikritum en þær upptökur virðast vera glataðar.“ Þóttum skrýtin á þeim tíma „Mitt lifibrauð hefur verið af söng og kennslu auk þess sem við Frank byggðum sjálf lítinn bæ, Brennholt, í Mosfellsdalnum, þar sem við stund- uðum sjálfsþurftabúskap. Við þótt- um voða skrýtin á sínum tíma, við Frank. Nú er sonur minn, Tómas Atli, tekinn við og ræktar þar bestu tómata á Íslandi sem þola meiri kulda en aðrar gerðir af tómötum,“ segir Guðrún, stolt af syni sínum. Guðrún og Frank eignuðust dóttur- ina Margréti Jósefínu en feðginin lét- ust bæði úr krabbameini, Frank árið 2008 og Margrét 2010. Guðrún býr í Reykjavík, er í dag- þjálfun á Hrafnistu í Reykjavík og á enn sitt herbergi í Brennholti. Hún hefur aldrei tekið bílpróf og því gengið mikið. Hún þakkar göng- unum það hversu hress hún er í dag. Guðrún var sæmd fálkaorðu árið 1996 fyrir framlag sitt til tónlistar og segist þá hafa klæðst kjól sem hún keypti í New York. Hún segir að á árum áður hafi fólk klætt sig upp á hvort sem það var að fara í fiskbúð- ina eða mæta á samkomur og mann- fagnaði, eins og sést á meðfylgjandi mynd frá 10 ára lýðveldisafmælinu í New York 1954. Ljósmynd/Empire Prúðbúin Gestir á Hotel Piccadilly á 10 ára fullveldisafmæli Íslendingafélagsins í New York 18. júní 1954. Morgunblaðinu hafa borist nokkrar ábendingar um nöfn gesta. Á fremsta borði vinstra megin sitja f.v. Kristín E. Jónsdóttir læknir, Halldór Hansen læknir, bandarískur trompetleikari, Magnús Blöndal píanóleikari, Bryndís Sigurjónsdóttir, kona Magnúsar, og Guðrún Tómasdóttir söngkona. Fyrir aftan Bryndísi er Guðrún Camp og maður hennar, David. Við borðið aftan við þau er m.a. Thor Thors sendiherra. Fyrir miðju í fremstu röð á myndinni eru í ljósum kjólum þær Magnea Hannesdóttir, Stefanía Kjartansdóttir og Guðmunda Elíasdóttir söngkona. Í næstu röð fyrir aftan, milli Magneu og Stefaníu, er Guðrún Steingrímsdóttir flugfreyja. Aftar, aðeins til hægri, situr Sigurður A. Magnússon rithöfundur og á borði aftan við hann er m.a. Leifur Guðmundsson hjá Loftleiðum. Fremstur á myndinni hægra megin er Jóhannes Markússon flugstjóri og fyrir aftan hann Ólaf Olsen flugstjóri. Fyrir aftan Ólaf, með svört gleraugu, er Henrik Knudsen, maður Guðmundu Elíasdóttur. Sungið af þjóðernisást í New York  Kom fram á 10 ára fullveldisafmælinu í New York  Sjálfsþurftabóndi í Mosfellsdal  Kenndi og söng fram á tíðræðisaldur  Söng einsöng og í kórum  Fyrstu tónleikar hennar í Gamla bíói 1958 Morgunblaðið/Eggert Söngfélagar Guðrún Tómasdóttir söngkona og Jón Sigurbjörnsson, leikari og söngvari, hittast á Hrafnistu þar sem Guðrún er í dagþjálfun og Jón býr. Þau rifja upp skemmtilegar minningar frá því að þau sungu saman á árum áður. Ljósm./Einkasafn Guðrúnar Tómasdóttur Viðurkenning Vigdís Finnbogadóttir sæmdi Guðrúnu Riddarakrossi 1996. Ljósmynd/Einkasafn Guðrúnar Tómasdóttur Gleði Magnús Blöndal, Gunnar Eyjólfsson, Guðrún Camp, Guðrún Tómas- dóttir og Guðmunda Elíasdóttir æfa sig fyrir samkomuna í NY 1954.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.