Morgunblaðið - 21.02.2019, Side 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Byrjað var í gær að flytja óbreytta
borgara frá síðasta þorpinu í Sýrlandi,
sem enn er undir yfirráðum Ríkis
íslams, samtaka íslamista.
Blaðamenn á svæðinu töldu að
minnsta kosti 15 vörubíla sem fluttu
karla, konur og börn frá Baghuz í
norðurhluta Sýrlands.
Sýrlenski lýðræðisherinn, SDF,
sem nýtur stuðnings Bandaríkjanna,
sagðist ekki vita hvort stríðsmenn
íslamista hefðu verið í þeim hópi. Ekki
var heldur ljóst hve margir yfirgáfu
þorpið í gær.
Sameinuðu þjóðirnar lýstu á
þriðjudag áhyggjum af afdrifum um
200 fjölskyldna sem sagðar voru í
Baghuz. Sagði Michelle Bachelet,
mannréttindastjóri Sþ, að svo virtist
sem íslamskir stríðsmenn meinuðu
fólkinu að yfirgefa þorpið, sem hefur
orðið fyrir hörðum sprengjuárásum
að undanförnu. Hvatti Bachelet stríð-
andi fylkingar til að leyfa þeim að
fara sem vildu en vernda þá sem vildu
vera áfram í þorpinu.
Fyrir hálfum áratug réð Ríki ísl-
ams 88 þúsund ferkílómetra svæði
sem náði frá vesturhluta Sýrlands til
austurhluta Íraks. Lýstu samtökin
yfir stofnun kalífaríkis og stýrðu
svæðinu, þar sem um átta milljónir
manna bjuggu, með harðri hendi. Nú
er talið að um 300 stríðsmenn séu eft-
ir og hafa þeir búið um sig á um hálfs
ferkílómetra svæði. gummi@mbl.is
AFP
Flutt á brott Fólk situr á palli vörubíls sem ekið var í gær frá Baghuz.
Fólk flutt frá síðasta
vígi Ríkis íslams
Talið að 300 stríðsmenn verjist í sýrlensku þorpi
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
sagði í stefnuræðu sinni á rússneska
þinginu í gær að Rússar yrðu að
koma fyrir flugskeytum sem miðað
yrði á stjórnstöðvar ef bandarísk
stjórnvöld kæmu fyrir flugskeytum í
Evrópu.
Yfirlýsing Pútíns kemur í kjölfar
þess að bandarísk stjórnvöld segjast
ætla að rifta afvopnunarsamningi
ríkjanna sem gerður var á tímum
kalda stríðsins, þar sem Rússar hafi
brotið gegn ákvæðum hans með því
að þróa vopn sem eru bönnuð sam-
kvæmt samningnum.
„Rússland hefur ekki í hyggju að
hafa frumkvæði að því að koma slík-
um flaugum fyrir í Evrópu,“ sagði
Pútín í ræðunni. „Ef (Bandaríkin)
þróa og koma fyrir flaugum í Evr-
ópu… mun það verulega grafa und-
an jafnvægi alþjóðlegra öryggismála
og ógna Rússlandi. Ég segi þetta
skýrt og umbúðalaust, Rússland
mun neyðast til að koma fyrir vopn-
um sem hægt er að beita … gegn
stjórnstöðvum þar sem þeim flug-
skeytakerfum sem ógna okkur er
stjórnað,“ sagði Pútín.
Segir ásakanir langsóttar
Fyrr í ræðunni sakaði hann
bandarísk stjórnvöld um að nota
langsóttar ásakanir á hendur Rúss-
um til að draga sig út úr samkomu-
laginu um miðdrægar kjarnaflaugar.
Hann sagðist skilja áhyggjur sem
menn hefðu af áhrifum samkomu-
lagsins því önnur ríki gætu haldið
áfram að þróa vopn sem eru bönnuð í
Rússlandi og Bandaríkjunum.
Ronald Reagan, þáverandi Banda-
ríkjaforseti, og Míkhaíl Gorbatsjov,
þáverandi forseti Sovétríkjanna,
skrifuðu undir samninginn árið 1987
og leystu með því deilur vegna sov-
éskra kjarnorkuflauga sem miðað
var á vestrænar höfuðborgir.
Rússland hótar að
setja upp flugskeyti
Skeytunum beint að stjórnstöðvum
AFP
Ræða Vladímír Pútín flytur stefnu-
ræðu sína í rússneska þinginu í gær.
Risaskjaldbaka sem talið var að
hefði dáið út fyrir rúmri öld fannst
á Galapagoseyjum á þriðjudag.
Umhverfisráðherra Ekvadors til-
kynnti á Twitter að skjaldbakan,
kvendýr, hefði fundist á eyjunni
Fernandina.
Að sögn náttúruverndarstofn-
unar Galapagos sást skjaldbaka af
þessari tegund síðast svo staðfest
sé þegar bandarískur leiðangur fór
til Fernandina í apríl 1906. Bitför
og spor sem talin voru hugsanlega
eftir slíkar skjaldbökur hafa þó
sést á undanförnum áratugum.
Alls eru 12 skráðar skjaldböku-
tegundir á Galapagoseyjum, sem
eru um 1.000 km vestur af Ekva-
dor. Í eyjaklasanum eru 19 stórar
eyjar auk tuga smáeyja og skerja.
Enski náttúrufræðingurinn
Charles Darwin heimsótti eyjarnar
á 19. öld og rannsóknir hans á
dýralífinu þar urðu grundvöllur
kenninga hans um uppruna teg-
undanna. Eyjaklasinn var skráður
á heimsminjaskrá UNESCO árið
1979. AFP
Reyndist
ekki vera
útdauð