Morgunblaðið - 21.02.2019, Síða 41
FRÉTTIR 41Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
Verð stykkið
(Þrír litir)
Leitið tilboða í stærri kaup
www.stalidjan.is
Stáliðjan ehf - Smiðjuvegi 5,200 Kópavogi - Sími 564 5885 - www.stalidjan.is
Dempar hljóð umallt að 18dB.
Minnkar slit á gólfi.
Má þvo í þvottavél.
Mjög létt að setja á og taka af.
Bráðnauðsynlegt í skóla,mötuneyti
og allstaðar þar semað fjölmenni
kemur saman.
970 kr.
Hljóðsokkar á stóla
SKECHERS UNO-ROSE BOLD
DÖMUSKÓR MEÐ MEMORY
FOAM. STÆRÐIR 36-41
13.995.-
DÖMUSKÓR
Þrír þingmenn breska Íhaldsflokks-
ins, sem fer með völd í Bretlandi,
sögðu sig úr flokknum í gær. Er
ástæðan óánægja með stefnu
Íhaldsflokksins vegna Brexit,
væntanlegrar útgöngu Bretlands
úr Evrópusambandinu.
Þingmennirnir þrír, Anna
Soubry, Heidi Allen og Sarah Woll-
aston, ætla að ganga til liðs við nýj-
an óháðan hóp þingmanna, sem
átta þingmenn Verkamannaflokks-
ins, stærsta stjórnarandstöðu-
flokksins, mynduðu fyrr í vikunni
þegar þeir sögðu sig úr flokknum
vegna óánægju með Brexit-stefnu
flokksins og vaxandi gyðingahaturs
innan hans.
Í átt að hengiflugi
Þingkonurnar þrjár hafa allar
lýst andstöðu við að Bretland gangi
úr ESB. Í sameiginlegu úrsagnar-
bréfi segja þær að Brexit hafi end-
urskilgreint Íhaldsflokkinn og
grafið undan öllum tilraunum til að
færa hann til nútímans. Flokkurinn
hafi færst til hægri og láti norður-
írska samstarfsflokkinn, Lýðræðis-
lega sambandsflokkinn, DUP, og
harðlínuandstæðinga ESB ráða för
í aðdraganda Brexit.
„Okkur þykir það svívirðilegt að
flokkur sem áður var treyst best til
að stýra breskum efnahagsmálum
leiði nú landið í átt að hengiflugi út-
göngu án samnings,“ segir í bréfi
þeirra.
Theresa May, forsætisráðherra
og leiðtogi Íhaldsflokksins, sagðist í
gær harma úrsögn þingmannannaa
en sagði að flokkur hennar myndi
alltaf fylgja heiðarlegri, hófsamri
og þjóðlegri stefnu.
AFP
Sætaskipti Þingkonurnar þrjár setjast hjá fyrrverandi þingmönnum
Verkamannaflokksins við upphaf fundar í breska þinginu í gærmorgun.
Breskir þingmenn
segja sig úr flokkum
Stofna óháðan þinghóp vegna Brexit
Franskur dómstóll dæmdi í gær
svissneska bankann UBS til að greiða
3,7 milljarða evra sekt, jafnvirði rúm-
lega 500 milljarða króna, fyrir að hafa
með ólöglegum hætti aðstoðað
franska viðskiptavini sína við að fela
milljarða evra í Sviss fyrir frönskum
skattayfirvöldum.
Er þetta hæsta sekt sem um getur
í franskri réttarsögu. Útibú UBS í
Frakklandi var einnig dæmt til að
greiða 15 milljónir evra, jafnvirði 2
milljarða króna, í sekt vegna málsins.
Þá voru franska ríkinu dæmdar 800
millljónir evra í bætur.
Lögmenn bankans sögðu strax eft-
ir að dómurinn var kveðinn upp, að
honum yrði áfrýjað.
UBS hafði reynt að ná dómssátt en
féllst að lokum ekki á tilboð um
sektargreiðslur.
Franskir saksóknarar héldu því
fram að fjöldi viðskiptavina UBS
hefði leynt samtals um 10 milljörðum
evra fyrir franska skattinum á árun-
um 2004 til 2012. Fullyrtu þeir að
stjórnendur UBS hefðu gert sér fulla
grein fyrir því að þeir væru að brjóta
frönsk lög. Þessu neitaði bankinn og
sagðist hafa starfað í fullu samræmi
við svissnesk lög.
Sögðust stjórnendur bankans ekki
hafa vitað að einhverjir franskir við-
skiptavinir hefðu ekki gefið eignir
sínar í Sviss upp til skatts. Hefðu sak-
sóknarar ekki lagt fram neinar sann-
anir, svo sem nöfn viðskiptavina eða
bankareikninga, til stuðnings fullyrð-
ingum sínum.
Í málinu var svissneski bankinn
sakaður um að hafa skipulagt óform-
lega fundi með hugsanlegum við-
skiptavinum sínum í Frakklandi, en
slíkt er ólöglegt samkvæmt frönskum
lögum. Franskir stjórnendur bank-
ans hefðu síðan notað það sem kall-
aðir voru „mjólkurmiðar“ til að fylgj-
ast með því hve margar „mjólkur-
fernur“, eða peningar, voru fluttir í
svissneska bankareikninga. Einn
slíkur mjólkurmiði fannst við rann-
sókn málsins.
Málaferlin hófust sl. haust eftir
rannsókn, sem stóð í sjö ár. Fyrrver-
andi starfsmenn bankans komu fram
og fullyrtu, að lög hefðu verið brotin.
Þessar ásakanir og rannsóknin
leiddu til þess að svissnesk stjórnvöld
neyddust til að breyta reglum lands-
ins um skilyrðislausa bankaleynd.
Hæsta sekt
í réttarsögu
Frakklands
UBS gert að greiða 3,7 miljarða evra
AFP
Uppljóstrari Bradley Birkenfeld,
fyrrverandi starfsmaður UBS, veitti
stjórnvöldum upplýsingar.