Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 47
UMRÆÐAN 47Afmæli
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
* Undirföt
* Náttkjólar
* Sloppar
* Gjafabréf
Fallegar
konudagsgjafir
í Selenu
Glæsilegir skartgripir
innblásnir af íslenskri sögu
G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R
Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is
Í dag er áttræður
vinur minn og sam-
ferðamaður um langa
hríð, Jón Baldvin
Hannibalsson, fyrr-
verandi sjómaður,
kennari, skólameist-
ari, ritstjóri, formaður
Alþýðuflokksins,
fjármálaráðherra,
utanríkisráðherra og
sendiherra Íslands í
Washington og Hels-
inki.
Fáa menn veit ég jafn leiftrandi
greinda, litríka og skemmtilega.
Sannarlega öngvan er lagt hefur
jafngjörva hönd á að skapa for-
sendur hins auðuga íslenska vel-
ferðarsamfélags sem aldrei hefur
staðið í jafnmiklum blóma og ein-
mitt nú. Þökk sé ötulli og einbeittri
baráttu hans fyrir þeim kosta-
kjörum sem inngangan í EES, Evr-
ópska efnahagssvæðið, færði okkur
um miðjan tíunda áratug síðustu
aldar.
Jóns Baldvins verður lengi
minnst á Íslandi fyrir það pólitíska
þrekvirki. Að sama skapi er hans
hlýlega minnst í öðrum löndum
sem hins djarfhuga stjórnmála-
manns er fyrstur steig fram til at-
fylgis baltnesku þjóðunum í tví-
sýnni baráttu þeirra fyrir frelsi og
langþráðu, endurheimtu sjálfstæði.
Undir ógnandi hótunum Rússa
hvikaði utanríkisráð-
herrann Jón Baldvin
hvergi og bauð hinni
vígreifu gömlu
kommúnistaþjóð birg-
inn án þess að blikna.
Með einstöku ís-
lensku orðfæri mælir
hann jafnan óhræddur
og tæpitungulaust.
Eftir hann liggja ótal
snjallar ritgerðir,
greinar og bækur. Að
minnsta kosti tveggja
nýrra ritverka eftir hann er að
vænta á þessu ári.
Það hefur ósjaldan gustað um
Jón Baldvin Hannibalsson og
sennilega aldrei sem nú. Í eðli sínu
er Jón þó friðarins maður. Enginn
þó FriðJón.
Þótt ekki sé vitað með vissu hvar
okkar maður kýs að halda til á
stórafmælinu, mætti vel ímynda sér
hann ganga íhugulan á vit Íslands-
strætis í Litháen eða orna sér að
kveldi við Íslandstorg í Tallinn þar
sem þegnarnir kunna vel að meta
dýrmætt framlag hans til sjálfstæð-
isbaráttu Eistlands, Lettlands og
Litháen.
Ég óska afmælisbarninu – og
fjölskyldu þess allri – friðar og vel-
farnaðar á merkum tímamótum.
Jakob Frímann.
Jón Baldvin
Hannibalsson
Í frétt Morgunblaðs-
ins haustið 2000 frá
ráðstefnunni Björgun
kom eftirfarandi fram:
„Ráðstefnan Björg-
un 2000 var sett á
Grand Hótel Reykja-
vík í gær af Sólveigu
Pétursdóttur dóms-
málaráðherra. Ráð-
stefnan er haldin um
helgina á vegum Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar og er
sú viðamesta á sviði björgunar- og
öryggismála sem haldin hefur verið
hér á landi. Björgun er heiti á ráð-
stefnum sem hafa verið haldnar ann-
að hvert ár frá árinu 1990 og einkum
ætlaðar björgunarsveitum, lögreglu-
embættum, slökkviliðum, heilbrigðis-
starfsfólki, Rauða krossinum og öðr-
um sem að þessum málum koma.
Fjöldi innlendra og erlendra fyrirles-
ara tekur þátt í ráðstefnunni, auk
þess sem málstofur og vinnuhópar
setja mark sitt á hana.
Jón Gunnarsson, formaður Lands-
bjargar, flutti erindi við setningu
ráðstefnunnar í gær um nýjar hug-
myndir og framtíðarsýn Lands-
bjargar á sviði stjórnunar neyðar-
aðgerða hér á landi. Yfirskrift
erindisins var „Eitt land – eitt stjórn-
kerfi“. Í samtali við Morgunblaðið
sagði Jón að meginþema ráðstefn-
unnar væri stjórnstöðvamál og
stjórnun björgunaraðgerða.
„Við leggjum fram tillögur á ráð-
stefnunni að því hvernig við sjáum
stjórnkerfi björgunaraðgerða okkar í
framtíðinni. Þá á ég við alla við-
bragðsaðila. Í dag eru í raun sjö
stjórnstöðvar til í landinu en við
viljum sjá eina stjórn-
stöð fyrir allt landið. Við
teljum þetta raunhæft
markmið,“ sagði Jón.“
Stjórnstöðvarnar sem
Jón á við eru Neyðar-
línan, samræmingar-
stöð Almannavarna
ríkisins, fjarskipta-
miðstöð ríkislögreglu-
stjóra, stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar, sjó-
björgunarmiðstöð
Slysavarnafélagsins
Landsbjargar í tengslum við Til-
kynningarskyldu íslenskra skipa,
Landsbjörg björgunarsveita og loks
björgunarmiðstöð Flugmálastjórnar.
„Þetta eru aðilar sem allir vinna
saman þegar til kastanna kemur.
Málið er að ná þeim öllum saman í
eina stjórnstöð á landsvísu og síðan
yrðu umdæmisstjórnstöðvar um
landið. Það er aukaatriði hvar þessi
stjórnstöð yrði staðsett, aðalatriðið
er að koma henni á,“ sagði Jón.
Þetta er og hefur verið skoðun
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
frá stofnun árið 1999 og er hluti af
þeirri vinnu sem nú fer fram á milli
aðila um að sameina höfuðstöðvar
Lögreglu, Landhelgisgæslu, Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, Toll-
gæslu og Neyðarlínunnar.
Ef þessi sameining verður að veru-
leika verðum við enn nær því að ná
þessum markmiðum sem Jón fjallaði
um árið 2000.
Margt hefur gerst síðan, Slysa-
varnafélagið Landsbjörg, Land-
helgisgæslan, almannavarnadeild
Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínan
hafa verið með sínar höfuðstöðvar í
Skógarhlíð síðan árið 2003.
Sett var á laggirnar samhæfingar-
stöð SST sem var vísir að þessu, en
daglega reknar stjórnstöðvar hafa
ekki verið samhæfðar í eina eins og
Jón lagði þarna til. Vissulega hafa
þrjár af þessum stjórnstöðvum runn-
ið saman í eina en sjóbjörgunarmið-
stöð Tilkynningarskyldu íslenskra
skipa og björgunarmiðstöð Flug-
málastjórnar eru í dag hluti af stjórn-
stöð Landhelgisgæslunnar.
En núna eru menn að komast nær
þessari sýn á árinu 2019. Verið er að
skoða mögulegt staðarval á nýjum
höfuðstöðvum fyrir Ríkislögreglu-
stjóra, Lögregluna á Höfuðborgar-
svæðinu, Landhelgisgæslu, Slysa-
varnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðis, Tollgæsluna og
Neyðarlínuna. Samhliða því eru hug-
myndir að bæta samgang milli þess-
ara aðila til að auk samræmingu í
neyðaraðgerðum.
Nái þær hugmyndir fram að ganga
er ljóst að um verður að ræða mikið
framfaraspor í samræmingu neyðar-
aðgerða á landsvísu og kannski mun
Slysavarnafélagið Landsbjörg geta
sagt. „Verkefni lokið“ um þetta hags-
munamál sem hefur brunnið á for-
svarsmönnum félagsins síðustu 20
ár.
Eftir Þorstein
Þorkelsson
Þorsteinn Þorkelsson
» Í 20 ár hefur Slysa-
varnafélagið Lands-
björg talið að auka þurfi
samræmingu björg-
unaraðgerða. Nú er
kominn tími til að taka
næstu skref.
Höfundur er félagi í Slysavarna-
félaginu Landsbjörg.
steinit@simnet.is
Eitt land – eitt stjórnkerfi
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG PÍPARA?