Morgunblaðið - 21.02.2019, Blaðsíða 50
Það er heldur betur gósentíð hjá
súkkulaðiunnendum því komið er á
markað nýtt súkkulaði frá Nóa Sí-
ríusi sem ber hið fagra nafn Doré.
Súkkulaðið er með karamellu-
bragði og þykir með afbrigðum vel
heppnað. Einungis er hægt að fá
súkkulaðið í litlum páskaeggjum en
spurning er hvort súkkulaðið muni
birstast í fleiri vörutegundum.
Að sögn Silju Mistar Sigurkarls-
dóttur, markaðsstjóra Nóa Síríuss,
hafa viðtökurnar verið vonum
framar. „Þetta súkkulaði er engu
öðru líkt, í stað sykurs er notuð
ekta karamella sem gefur súkku-
laðinu sitt einstaka bragð. Kara-
melluunnendur verða ekki fyrir
vonbrigðum með þessa frábæru
viðbót í páskaeggjafjölskyldu Nóa.
Við höfum fengið frábærar við-
tökur og margar spurningar varð-
andi það hvort súkkulaðið komi
ekki á markað í varanlegt vöruval,
svo gott er það,“ segir Silja og við
verðum bara að vona það besta.
Hver getur staðist gullið? Doré þýðir einmitt gull á frönsku en nýja kara-
mellusúkkulaðið frá Nóa mælist vel fyrir hjá neytendum sem virðast afar
sáttir með þessa bragðgóðu nýjung.
Nýtt súkkulaði frá Nóa Síríusi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
„Þvílíkur munur!
Ég bæði sef fastar og sofna fyrr. Ég ligg ekki andvaka á koddanum og
vakna endurnærð og úthvíld. Ég sef alla nóttina og er ekki sífellt að
vakna upp eins og áður. Ég mæli hiklaust með Melissa Dream fyrir alla“
Elsa M. Víðis
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Nánari á icecare.is
Valið besta
bætiefni við streituhjá National Nutrition
í Kanada
Betri svefn
Melissa Dream er
vísindalega samsett
náttúrulyf, hannað til að
stuðla að djúpri slökun
og værum svefni.
Þessi blanda inniheldur ekki efni
sem hafa sljóvgandi áhrif.
Rafhitun
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og flest annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
Rafhitarar fyrir heita potta
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði • Sími: 565 3265 • ww.rafhitun.is
íslensk
framleiðsla
í 25 ár
Hiti í bústaðinn
Pasta með pepperóní og
sveppum í hvítlauksostasósu
400 g (ósoðið) pasta
1 sóló hvítlaukur eða 2-3
hvítlauksrif
1-2 msk. smjör
250 g sveppir (1 askja), sneiddir
150 g pepperóní, skorið í fernt
150 g (1 askja) laktósafrír krydd-
ostur með hvítlauk frá Örnu, rifinn
svo hann bráðni hraðar
500 ml laktósafrír rjómi frá Örnu
salt og pipar
Bræðið smjör á pönnu og press-
ið hvítlaukinn saman við. Steikið
sveppi og pepperóní í hvítlauks-
smjörinu og kryddið með pipar.
Hellið rjóma yfir og hrærið kryd-
dosti saman við. Látið sjóða sam-
an við vægan hita undir loki á
meðan pasta er soðið eftir leið-
beiningum á pakkningu. Smakkið
sósuna til með pipar og salti áður
en soðnu pastanu er blandað sam-
an við hana. thora@mbl.is
Morgunblaðið/Svava Gunnarsdóttir
Klikkar aldrei Pastaréttir eru dæmigerðir réttir sem geta ekki klikkað sé sósan í lagi.
Pasta með pepperóní og
sveppum í hvítlauksostasósu
Pastaréttir eru sívinsælir og frábærir til að nýta grænmeti og álegg sem er við
það að syngja sitt síðasta. Það er Svava Gunnarsdóttir á Ljúfmeti og lekker-
heitum sem á heiðurinn að þessari uppskrift en hún segir að sé sósan góð geti
útkoman ekki verið önnur en frábær.
Dagana 14.-16. mars verða ítalskir
dagar á veitingastaðnum Einsa
kalda í Vestmannaeyjum. Það er
meistarakokkurinn Michele Manc-
ini sem mun sjá um að kynna angan
og bragð Toskanahéraðs þar sem
hann rekur veitingastaðinn Eno-
teca L’olivo. Veitingastaðurinn er í
eigu besta vinar Mancini, sem er
ítalska knattspyrnugoðið Gianluigi
Buffon.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Mancini kemur til landsins, en hann
kom fyrst hingað fyrir fjórum árum
og heillaðist af landi og þjóð. Hann
ku jafnframt vera grjótharður
stuðningsmaður íslenska knatt-
spyrnulandsliðsins, sem hann segir
að fari ótæpilega í taugarnar á
Buffon.
Boðið verður upp á pasta-
námskeið og síðan hefðbundna
ítalska rétti á veitingastaðnum og
ljóst er að mikil skemmtun er í
vændum fyrir aðdáendur ítalskrar
matarmenningar.
Ítalskir dagar í Vestmannaeyjum