Morgunblaðið - 21.02.2019, Síða 51

Morgunblaðið - 21.02.2019, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 HERRAHÚSIÐ FLYTUR Í ÁRMÚLA 27 Á LAUGAVEGI 47 VEGNA FLUTNINGA HERRAHÚSSINS FRÁ LAUGAVEGI Jakkaföt: 19.900 – 29.900 – 39.900 kr. Stakir jakkar: 9.900 – 14.900 – 19.900 kr. Skyrtur frá Bison – Lindberg – Bosweel: 2 fyrir 1 á 4.900 kr. Olymp skyrtur straufríar úr 100% bómull á 7.600 kr. Kjólskyrtur Vilkma 100% bómull á 6.900 kr. Hálfermaskyrtur á 1.990 kr. Buxur á 9.900 kr. Allar peysur á 4.900 kr. Pólóbolir á 1.990 kr. Calvin Klein nærbuxur 3-í-pakka á 4.900 kr. Úlpur og blússur á 9.900 kr. Allir leðurjakkar á 14.900 kr. LOKUM KL. 18 LAUGARDAGINN 24. FEBRÚAR Á LAUGAVEGI OPNUM Í ÁRMÚLA 27 ÞANN 1. MARS LOKAÚTKALL Hulda Bjarnadóttir hulda@k100.is. „Hraðinn og brandaramagnið sem dælt er út í myndinni er ákveðin bylting í kvikmyndum,“ útskýrir Raggi þegar hann rifjar upp kynni sín af Lego-myndunum. Hann full- yrðir að Lego Movie 2 sé ein fersk- asta og fyndnasta gamanmynd sem komið hefur út síðastliðin 5 ár. Hann gefur myndinni þrjár stjörnur af fjórum mögulegum. Raggi vill sérstaklega hrósa þýð- endum myndarinnar sem hafi ekki bara þýtt góða brandara heldur einnig staðfært suma. Þar af leið- andi hafi foreldrar fengið jafn mikið út úr myndinni og krakkar. Hemmi verkakubbur mættur aftur Phil Lord, Michelle Morgan, Matthew Fogel og Dominic Russo skrifa handrit myndarinnar og þau Mike Mitchell og Trisha Gum leik- stýra myndinni sem fjallar um hinn viðkunnanlega verkakubb Hemma sem bjargaði heimaborg sinni frá tortímingu með aðstoð vina sinna sem sumir hverjir voru gæddir ofur- kröftum. Nú þarf Hemmi að taka á honum stóra sínum á ný þegar bestu vinkonu hans, Lísu, er rænt af stór- skrítnum geimverum, sem þýðir auðvitað að Hemmi verður að fljúga út í geim og bjarga henni, en þannig er myndasögunni lýst á kvik- myndir.is. Raggi fjallaði einnig um 10 þátta Netflix seríuna Umbrella Academy, eða Regnhlífarsamtökin. Serían fjallar um systkini með ofurkrafta. Upphafsatriði þáttanna er sér- staklega eftirminnilegt, að sögn Ragga, enda fæðast börnin öll á sama degi. Saga þeirra í þáttunum hefst þó ekki fyrr en á fullorðins- árum. Þau eru þá hætt að sinna ofur- hetjustörfum sínum og farin að rifja upp fjölskylduharmleik sinn í kring- um útför fósturföður síns. Þau hafa fengið fregnir af því að sjö dögum síðar muni heimurinn enda og þau þurfa að leysa ákveðin mál á þeim tíma. Þau fara því að stilla saman strengi, skilja við fortíðina og leita týnds bróður. Raggi segir ofbeldið töluvert og að yngri en þrettán eigi ekkert endilega að horfa á þessa ser- íu. Ragga þykir serían eiga skilið þrjár af fjórum stjörnum og því er hér komin frambærileg tillaga að sjónvarpsglápi um helgina. Einnig fara fram Eddu-verð- launin íslensku á föstudag og Óskarsverðlaunahátíðin verður í Hollywood næstkomandi sunnudag þannig að af nægu verður að taka fyrir áhugafólk um kvikmyndir og sjónvarp. Kvikmyndagagnrýni Þriggja stjörnu áhorf AFP Glæsilegar Jordan Claire Robbins, Emmy Raver-Lampman, Mary J. Blige og Kate Walsh hér á frumsýn- ingu þáttanna Umbrella Academy. Lego Movie 2 Jason Momoa á rauða dreglinum ásamt Hemma. „Þegar fyrsta Lego-myndin kom hélt ég að þetta yrði bara 90 mínútna auglýs- ing fyrir leikföng, en það reyndist ekki vera,“ segir Ragnar Eyþórssson, eða Raggi bíórýnir sem kemur aðra hverja viku í síðdegisþáttinn á K100. Hann tók einnig fyrir Netflix-seríuna Umbrella Academy.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.