Morgunblaðið - 21.02.2019, Qupperneq 59
ingaskipinu Haferninum og einnig á
Raufarhöfn, Seyðisfirði og Reyðar-
firði. Áhugamál Steingríms í dag er
að taka ljósmyndir af fuglum. Mikið
filmusafn hans og ljósmyndir eru nú
varðveitt á Ljósmyndasafni Síldar-
minjasafnsins: http://mynda-
safn.siglo.is/. Myndir frá síldarár-
unum má sjá t.d. í flokkunum
atvinnulífið og sjávarútvegur. Á Síld-
arminjasafninu eru til sýnis möppur
með myndum hans. Steingrímur var
einnig í um 13 ár fréttaritari og
blaðaljósmyndari Morgunblaðsins
og birtust á síðum þess blaðs fjöl-
margar fréttir og ljósmyndir frá
honum.
Steingrímur var lengi ritstjóri
Siglfirðings, málgagns sjálfstæðis-
manna á Siglufirði, en hann var lengi
virkur í starfi flokksins á Siglufirði.
Þá var Steingrímur einnig virkur í
ýmsum félögum og félagasamtökum,
s.s. verkalýðsfélaginu Þrótti og
Vöku, Kiwanis og Lions, Björg-
unarsveitinni Strákum o.fl. Á ár-
unum 1974 til 1980 rak Steingrímur
ásamt fleirum kranabílaþjónustu og
steypufyrirtæki á Siglufirði. Á árinu
1982 keypti hann ásamt fjölskyld-
unni Nýja bíó á Siglufirði og rak
hann fyrirtækið til ársins 1991 en
fyrirtækið var áfram í eigu fjöl-
skyldumeðlima allt til ársins 1999.
Frá árinu 1991 til starfsloka starfaði
Steingrímur á lager SR á Siglufirði,
fyrst sem aðstoðarmaður og síðustu
árin sem lagerinn starfaði var hann
lagerstjóri en á þessum tíma og fram
á þennan dag hefur Steingrímur
haldið úti mörgum heimasíðum þar
sem er að finna fréttir og fróðleik um
Siglufjörð á ýmsum tímum og senni-
lega er þekktasta síðan fréttavef-
urinn Lífið á Sigló í dag: www.sk21.is
og www.sk2102.com.
Fjölskylda
Eiginkona Steingríms var Guðný
Friðriksdóttir, f. 6. júní 1932, d. 26.
september 2015, verkakona. Þau
gengu í hjónaband 6. júní 1954 og
voru því gift í 61 ár. Foreldrar Guð-
nýjar voru Friðrik Ingvar Stef-
ánsson, f. 13. september 1897, d. 16.
nóvember 1976, verkamaður á Siglu-
firði, og Margrét Marsibil Eggerts-
dóttir, f. 23. apríl 1903, d. 9. júlí 1985,
húsmóðir á Siglufirði. Þau voru í
sambúð.
Börn: 1) Valbjörn, f. 13. desember
1953, fjármálastjóri og er búsettur í
Kópavogi, maki: Álfhildur Ragna
Halldórsdóttir, f. 13. apríl 1959,
starfar við aðhlynningu. Börn þeirra
eru Lárey, Valbjörn Ingvar og Her-
mann Valdi. Barnabörn þeirra eru
níu; 2) Margrét, f. 11. febrúar 1955,
stuðningsfulltrúi, búsett á Akureyri.
Börn hennar eru Steingrímur Örn,
Steindór, Guðný Ósk og Konráð.
Barnabörnin eru átta og hún á eitt
barnabarnabarn; 3) Kristinn, f. 5.
september 1960, vélaverkfræðingur,
búsettur í Reykjavík, maki: Elínborg
Ágústsdóttir, f. 28. desember 1963,
leiðbeinandi. Börn þeirra eru: Ágúst
Már, Silja Sif og Arnór. Barnabörnin
eru tvö.
Systur Steingríms eru Jóhanna,
10. apríl 1937, búsett í Kópavogi og
Hulda Guðbjörg, f. 8. janúar 1945,
búsett í Reykjavík.
Foreldrar Steingríms voru hjónin
Kristinn Guðmundsson, f. 24. desem-
ber 1914, d. 5. október 1980, sýning-
armaður og útvarpsvirki á Siglufirði,
og Valborg Steingrímsdóttir, f. 1.
febrúar 1914, d. 10. nóvember 1973,
verkakona á Siglufirði.
Steingrímur Kristinsson
Sigurbjörg Björnsdóttir
húsfreyja í Staðartungu
Jóhann Friðrik Tómasson
bóndi í Staðartungu í Hörgárdal
Guðný Jóhannsdóttir
verkakona og húsfreyja á Þverá
Valborg Steingrímsdóttir
verkakona á Siglufirði
Steingrímur Stefánsson
bóndi á Þverá í Öxnadal
Þorbjörg Friðriksdóttir
húsfreyja á Þverá
Stefán Bergsson
hreppstjóri og bóndi á Þverá
Bernharð Stefánsson alþm. og
útibússtjóri Búnaðarbankans á Akureyri
Friðbjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja í Hvanneyrarkoti
Bjarni Daníelsson
sjómaður í Hvanneyrarkoti
í Siglufirði
Björg Lilja Bjarnadóttir
húsfreyja og verkakona á Siglufirði
Gunnhildur Sigurðardóttir
húsfreyja í Hækingsdal og Rvík
Jón Jörundsson
bóndi í Hækingsdal í Kjós og steinsmiður í Rvík
Úr frændgarði Steingríms Kristinssonar
Kristinn Guðmundsson
útvarpsvirki á Siglufirði
Kristmann Guðmundsson
rithöfundur
Guðmundur Jónsson
skipstjóri í Rvík, kenndur við Helgustaði
Gjóður Steingrímur náði mynd af
þessari sjaldgæfu arnartegund.
ÍSLENDINGAR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
90 ára
Elín Valgeirsdóttir
85 ára
Guðmundur Jónsson
Steingrímur Kristinsson
80 ára
Friðrik Ágúst Helgason
Jón Baldvin Hannibalsson
Kjartan Borg
Lillý Sigríður
Guðmundsdóttir
Sigrún Guðnadóttir
75 ára
Árni Óskarsson
Baldur Kjartansson
Edda Karlsdóttir
Karl Harry Sigurðsson
Valgerður Kristina Frid
Þóra Guðrún Grönfeldt
70 ára
Birgir Georgsson
Ellen Olga Svavarsdóttir
Guðný Jónsdóttir
Haukur Ingvarsson
Ingibjörn Guðjón Jóhannss.
Katrín Ólöf Ástvaldsdóttir
Kristín Andrésdóttir
Pétur Andreas Maack
60 ára
Arndís Gyða Jensdóttir
Arngeir H. Guðmundsson
Bogi Þór Jónsson
Hilmar Hreinsson
Jens Elís Kristinsson
Páll Ragnar Guðmundsson
Ragna Frímann Karlsdóttir
Ragnar Einarsson
Svanur Kristinsson
Valgerður Árnadóttir
Zophonías Árnason
50 ára
Arnar Þór Hilmarsson
Birgir Ásgeir Kristjánsson
Edda Ýr Guðmundsdóttir
Jóhanna V. Guðmundsd.
Karl Sigþór Þorsteinsson
Liuda Cernisoviene
Thi Bich Thuy Nguyen
Valborg Stefanía Karlsd.
Vilborg Hólmjárn
Þórir Kjartansson
40 ára
Andrzej K. Tymicki
Arnþór Gústavsson
Eva Lena Henningsdóttir
Fjóla Guðjónsdóttir
Hannibal G. Hauksson
Helga Sigmundsdóttir
Helgi Mar Hallgrímsson
Jón Bergur Arason
Magnús Rúnar Magnússon
María Júlía Jónsdóttir
Nadia Tamimi
Romeo Sarga
Sigrún Vésteinsdóttir
Sólrún Bragadóttir
Tinna Ósk Hauksdóttir
Þórunn Benný
Finnbogadóttir
30 ára
Anto Pejic
Bergur Carlsen
Gunnarsson
Daníel Thorstensen
Eemu Johannes Ranta
Elísabet Guðrún Björnsd.
Eydís Örk Sævarsdóttir
Fjóla Rut Svavarsdóttir
Guðný Björnsdóttir
Hildur Ýr Þórðardóttir
Kristinn Sævarsson
Mansoor Ahmad Malik
Maria Maximciuc
Ragnheiður Kristinsdóttir
Richard Chr. Luc Germain
Sylwia Wanda Grajewska
Þórður Fannar Rafnsson
40 ára Júlía er Borgnes-
ingur og rekur lífsstíls- og
gjafavöruverslunina FOK.
Maki: Jónas Björgvin
Ólafsson, f. 1975, mat-
reiðslumeistari.
Börn: Þórunn Birta, f.
2001, Harpa Rut, f. 2002,
Dagbjört Rós, f. 2006,
Þóra Sóldís og Þorsteinn
Logi, f. 2008, og Jónas
Darri, f. 2015.
Foreldrar: Jón Haralds-
son, f. 1944, og Þóra
Björgvinsdóttir, f. 1945.
María Júlía
Jónsdóttir
40 ára Sigrún er frá Vaði í
Þingeyjarsveit en býr á
Akureyri. Hún er verkefna-
stjóri hjá Rannsóknar-
miðstöð HA.
Maki: Sigurður Birkir Sig-
urðsson, f. 1969, fram-
kvæmdastjóri Motul.
Börn: Sunneva Elín, f.
2007, Una Bára, f. 2012 og
stjúpsonur: Ýmir, f. 1998.
Foreldrar: Vésteinn Garð-
arsson, f. 1942, og Elín
Guðrún Steingrímsdóttir, f.
1946, bændur á Vaði.
Sigrún
Vésteinsdóttir
30 ára Fjóla er Reykvík-
ingur en býr á Laugar-
vatni. Hún er líffræðingur
á Hafrannsóknastofnun.
Maki: Guðmundur H.
Gíslason, f. 1984, verk-
fræðingur hjá Ístaki.
Börn: Alexander Svavar,
f. 2012, og Jónas Smári, f.
2018.
Foreldrar: Svavar Guð-
mundsson, f. 1958, leigu-
bílstjóri, og Elín Krist-
mundsdóttir, f. 1964,
ritari, bús. í Reykjavík.
Fjóla Rut
Svavarsdóttir
Til hamingju með daginn
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
VOR
2019
Zhiqian Yi hefur lokið doktorsvörn sinni
í líffræði við Háskóla Íslands.
Heiti doktorsritgerðarinnar er Að-
ferðir í líftækni til að auka framleiðslu
fucoxanthins í kísilþörungnum Phaeo-
dactylum tricornutum. Leiðbeinandi
var dr. Weiqi Fu, gestadósent við Há-
skóla Íslands og vísindamaður við New
York University Abu Dhabi.
Stór hluti svifþörunga eru kísilþör-
ungar og finnast þeir í vötnum um allan
heim þar sem næg næringarefni og ljós
eru til staðar. Sjávarþörungar, eins og
Phaeodactylum tricornutum, geta inni-
haldið mikið magn fituefna og eru því
möguleikar á að nýta þá til framleiðslu
á verðmætum lífefnum. Vonir eru
bundnar við þá til framleiðslu á lífelds-
neyti og ýmsum lífvirkum efnum eins
og ómettuðum fitusýrum og karótenó-
íðum.
Markmiðið þessa verkefnis var að
kanna mögulegar aðferðir í líftækni til
að auka framleiðslu verðmætra efna í
þörungnum, sérstaklega fucoxanthin.
Fyrst var framkvæmd ítarleg heimild-
arvinna um form, vistfræði og æxlun
kísilþörunga, síðan var gert yfirlit yfir
lífvirk efni í smáþörungum, sérstaklega
saltvatns-þörungum. Að lokum var þör-
ungurinn Phaeodactylum tricornutum
rannsakaður
nánar. Honum var
stökkbreytt með
útfjólubláu ljósi og
ræktaður í margar
kynslóðir (þróað-
ur) með það fyrir
augum að fá fram
afbrigði með auk-
inn vaxtarhraða og
meiri myndun á karótenóíðum. Út-
fjólublátt ljós (UVC) var notað til að
valda stökkbreytingum og afbrigði af P.
tricornutum voru síðan valin til áfram-
haldandi ræktunar. Afbrigðin voru
ræktuð í margar kynslóðir til að þróa
nýjar svipgerðir af P. tricornutum. Við
þetta náðist aukinn vöxtur í P. tricor-
nutum ásamt aukinni myndun verð-
mætra kartenóíða. Að lokum var P. tri-
cornutum stökkbreytt með EMS (ethyl
methanesulfonate) og afbrigði með
auknu fucoxanthin innihaldi valin með
nýrri afkastamikilli aðferð sem gerði
mögulegt að velja jákvæð afbrigði með-
al þúsunda afbrigða. Fimm afbrigði
voru valin með þessari aðferð og rækt-
uð áfram í tvo mánuði til að kanna
stöðugleika þeirra. Fjögur þeirra sýndu
stöðugleika og jókst fucoxanthin inni-
hald þeirra um 33%.
Zhiqian Yi
Zhiqian Yi lauk BS námi í læknisfræði í júní 2008 við Tongji Medical College of
Huazhong University of Science and Technology. Hann var aðstoðarlæknir 2009
til 2012 og fékk læknaleyfi í Kína í nóvember 2010. Hann lauk meistaraprófi í
skurðlækningum við Wuhan Tongji Hospital. Hann hóf doktorsnám við Háskóla
Íslands haustið 2012.
Doktor