Morgunblaðið - 21.02.2019, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 21.02.2019, Qupperneq 67
MENNING 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Vesalings elskendur er önnurmynd sænska leikstjóransMaximilian Hult. Myndiner þverþjóðleg framleiðsla, leikstjórinn er sænskur, leikararnir íslenskir og myndin er fjármögnuð af bæði íslenskum og erlendum aðilum. Raunar er nú svo komið í kvikmynda- landslagi dagsins í dag að flestar myndir sem ekki eru frá Bandaríkj- unum eru fjármagnaðar með þver- þjóðlegum hætti, þannig hér er ekki meiriháttar undartekning á ferð. Myndin segir frá bræðrunum Ósk- ari (Björn Thors) og Magga (Jóel Sæ- mundsson). Báðum gengur þeim brösulega í ástarmálum, hvorum með sínum hætti. Óskar er tilfinningalega bældur, hann hefur verið ástfanginn af sömu konunni síðan í grunnskóla en aldrei þorað að gera neitt í málun- um. Maggi hins vegar er mjög opinn og mikill sprelligosi. Fyrir vikið er hann helst til ágengur í ástarsam- böndum, hann er afar þurfandi og þess vegna fara kærusturnar frá hon- um jafnskjótt og þær koma. Í byrjun myndar eru bræðurnir í mat hjá föður sínum og stjúpmóður. Mamma þeirra lést þegar þeir voru börn og það er gefið í skyn að sá harmleikur hafi aldrei verið gerður almennilega upp. Óskar nefnir við hjónin að það hljóti nú að vera nota- legt að búa í svona rúmgóðu húsi í út- hverfunum, með garð og pott og allar græjur. Stjúpmóðir hans svarar því að þau séu nú reyndar að hugsa sér til hreyfings, þau vilji eitthvað minna og eitthvað sem er nær miðbænum. Það verður úr að þau skiptast á húsnæði, pabbinn og stjúpmamman flytja inn í íbúð Óskars og hann flytur inn í húsið þeirra, ásamt hundinum sínum. Maggi flytur líka inn í húsið, þar sem hann er nýhættur með enn einni kær- ustunni og húsnæðislaus. Tveir ung- lingar, þeir Danni T og Danni M, enda á að búa hálfpartinn þarna líka, þeir koma í það minnsta mjög reglu- lega til að passa hundinn. Óskar fer allt of oft með hundinn sinn til dýralæknis, því hann er skot- inn í dýralækninum Önnu (Sara Dögg Ásgeirsdóttir) og smátt og smátt byrjar einhvers konar samband að blómstra milli þeirra. Á meðan hopp- ar Maggi milli alls konar kvenna, sem hann á mismikið sameiginlegt með. Þótt sagan fjalli um nokkuð hvers- dagslega hluti gengur heilmikið á og framvindan er hröð og margbreyti- leg. Vesalings elskendur er rómantísk gamanmynd í húð og hár. Hún sækir ljóslega innblástur í myndir Woody Allen, hún fjallar um ástarsambönd annars vegar og fjölskyldusambönd hins vegar og leitast við að finna kóm- ísku hliðarnar á þeim. Allir leikar- arnir standa sig frábærlega og sýna feikilega góða gríntakta. Myndin er uppfull af frábærum frammistöðum, sem gefur ekki einungis til kynna að leikararnir séu góðir heldur einnig að vandað hafi verið til verka í leikara- vali og leikstjórn. Björn Thors og Jóel bera myndina uppi, þeir eru stórfínir í aðalhlutverkunum og eiga góðan samleik sem þessir gjörólíku bræður. Edda Björgvinsdóttir á líka fína innkomu í hlutverki stjúpmóður- innar. Myndin er skemmtileg og fyndin en hefur þó nokkra annmarka. Kvik- myndatakan er fremur óspennandi, myndavélahreyfingar eru sjaldgæfar, klipping er notuð sparlega og sjónar- horn eru oft mjög einhæf. Kyrrstæðir rammar geta verið áhrifamiklir en hér saknar maður þess að hafa hreyf- ingu til að hrista aðeins upp í hlut- unum. Í kynningarefninu er myndinni lýst sem karakterdrifinni gamanmynd, sem á vissulega við þar sem meira er lagt í að afhjúpa persónurnar og sýna hvernig þær þróast en að búa til æsi- lega fléttu. Það verður þó að viður- kennast að persónusköpunin er ekki nógu sterk á heildina litið. Persónur Magga og Óskars eru skýrustu per- sónurnar, við kynnumst þeim best og þær eru þess vegna áhugaverðastar. Aukapersónurnar eru sumar hverjar skemmtilegar, sérstaklega Dann- arnir tveir, en aðrar, t.d. Anna dýra- læknir, listamaðurinn Ingibjörg (Hafdís Helga Helgadóttir) og allar hinar kærusturnar, eru fremur flatneskjulegar og stundum hreint og beint steríótýpískar. Anna virðist til dæmis ekki hafa neinn sjálfstæðan vilja og samskiptaleg átök hafa lítil sem engin áhrif á hana. Á einum tímapunkti lýsir listakonan Ingibjörg því fjálglega hvernig listin er henni í blóð borin og að „hún geti ekkert að því gert að hún sé listamaður“, sem hljómar meira eins og háðsglósa um listamannserkitýpu en eitthvað sem listamaður myndi segja. Þess ber þó að geta að leikkonurnar Sara Dögg og Hafdís Helga gera gott úr því sem þær hafa í höndunum. Persónurnar eru nánast aldrei ber- skjaldaðar, maður fær ekki að sjá nógu vel undir skrápinn. Það er oft gefið í skyn að það liggi eitthvað und- ir, að Óskar sé kvíðasjúklingur, að bræðurnir hafi aldrei tekist almenni- lega á við dauða móður sinnar, að fað- ir þeirra sé slappur uppalandi o.s.frv.. Ekkert af þessu er samt sett í for- grunn sem væri full ástæða til, af því maður upplifir að það sé verið að halda frá manni upplýsingum. Það koma líka sjaldan upp nein almenni- leg átök, ef fólki lendir saman þá leys- ist það bara af sjálfu sér. Þarna er farið á mis við gullin tækifæri til að skapa bæði spennu og grín. Vesalings elskendur líður fyrir nokkra vankanta á handriti en hún er hin fínasta afþreying og algjörlega áhorfsins virði. Hún er skemmtileg og bráðfyndin á köflum, sem er ekki síst vegna þess að leikurinn er virki- lega fínn. Les misérables Aðalpersónur „Björn Thors og Jóel bera myndina uppi, þeir eru stórfínir í aðalhlutverkunum og eiga góðan samleik sem þessir gjörólíku bræður.“ Borgarbíó, Háskólabíó og Smárabíó Vesalings elskendur bbbnn Leikstjórn og handrit: Maximilian Hult. Kvikmyndataka: Tómas Örn Tómasson. Klipping: Stefanía Thors. Aðalhlutverk: Björn Thors, Jóel Sæmundsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Edda Björgvins- dóttir, Sigurður Karlsson og Hafdís Helga Helgadóttir. 105 mín. Ísland og Svíþjóð, 2019. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Í Hollandi er þess minnst að í ár eru 350 ár frá dauða hins merka mynd- listarmanns Rembrandt Harmens- zoon van Rijn (1606-1669). Stjórn- völd hafa kosið að kalla 2019 „Ár Rembrandts“ og verður haldið upp á ártíð þessa merka sonar Hollands með sérstökum sýningum í helstu söfnum og með margskonar öðrum hætti. Í vikunni var til að mynda safnað saman um 175 körlum og drengjum sem allir heita Rem- brandt og þeir ljósmyndaðir fyrir framan eitt helsta meistaraverk málarans, Næturvaktina, sem er í Rijksmuseum í Amsterdam. Tilkynnt hefur verið að ráðist verði í viðamikla hreinsun og rann- sókn á Næturvaktinni og hefst hún í júlí. Verkið dáða verður ekki tekið úr umferð heldur geta gestir fylgst með hópi um tuttugu sérfræðinga athafna sig inni í glerbúri sem sett verður upp í sýningarsalnum og verður rannsókninni og niður- stöðum hennar deilt jafn óðum meðal gesta, auk þess sem áhuga- samir munu geta fylgst með verk- inu á netinu. Næturvaktin hefur lent í ýmsu á þeim 377 árum sem eru liðin síðan verkið var málað. Tvisvar hafa skemmdarvargar skorið illa í það og einu sinni var slett á það sýru. Ár Rembrandts van Rijn í Hollandi AFP Nafnar við meistaraverk Um 175 karlar og drengir söfnuðust saman við meistara- verk Rembrandts, Næturvaktina, en allir bera þeir nafn málarans dáða sem lést árið 1669.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.