Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
LOKAÐ Í DAG
VEGNA TALNINGAR
VERSLAÐU Á
WWW.ILVA.IS
25-50%
af völdum borðstofuhúsgögnum
og sérpöntunum- fleiri tilboð í verslun
Lýkur sunnudaginn 24. febrúar
Bækur gegna
mikilvægu hlut-
verki í söng-
leiknum Matt-
hildi sem fer á
fjalir Borgarleik-
hússins í mars.
Sjálf leikmyndin
samanstendur
af bókum, sem
áður voru í Borgarbókasafninu.
Starfsfólkið er himinlifandi yfir að
afskrifaðar bækur fái þannig nýtt
líf. Í samstarfi við Borgarleikhúsið
býður Borgarbókasafnið í Kringl-
unni upp á leikhúskaffi kl. 17.30 til
19 í kvöld um sýninguna Matthildi.
Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri og
Hlynur Páll Pálsson aðstoðarleik-
stjóri segja gestum frá uppsetning-
unni og kynna leikmyndina.
Bækur fá nýtt líf í
söngleiknum Matthildi
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 52. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Jón Arnór Stefánsson var ungur
með eiginleika sem ekki var hægt
að kenna, að sögn Benedikts Guð-
mundssonar körfuboltaþjálfara.
Hlynur Bæringsson er eins og tvær
ólíkar persónur innan vallar og
utan, segir þjálfarinn Ingi Þór
Steinþórsson. Jón og Hlynur leika
síðasta landsleik sinn í kvöld og
fjallað er ítarlega um þá í opnu
íþróttablaðsins. »2-3
Kveðjuleikur Jóns
Arnórs og Hlyns í kvöld
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Upptaktur að tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands kl. 19.30 í
kvöld í Eldborg í Hörpu er hið kyrr-
láta Fratres eftir Arvo Pärt. Síðan
hljómar verkið Bow to String eftir
Daníel Bjarnason í fyrsta skipti á Ís-
landi í útsetningu fyrir selló og sin-
fóníuhljómsveit, en hann samdi
verkið fyrir Sæunni Þorsteins-
dóttur sellista, sem mun flytja
verkið. Því næst flytur
Sinfóníu-
hljómsveitin
Vorblót
Stravinskís,
sem er með-
al dáðustu
hljómsveit-
arverka 20.
aldar, undir
stjórn Daníels.
Daníel Bjarnason stýrir
Vorblóti Stravinskíjs
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Vilberg Valdal Vilbergsson, heiðurs-
borgari Ísafjarðarbæjar frá því í fyrra,
er svo sannarlega maður kynslóðanna.
Hann byrjaði að spila á harmoniku á
böllum á Flateyri, þegar hann var á
fermingaraldri, og spilar enn, tæplega
80 árum síðar. Hann var rakari í yfir
60 ár frá 1950 og rakarameistari frá
1954, hætti formlega fyrir um fimm
árum en tekur enn í skærin og klippti
nýlega sjötta ættliðinn í beinan karl-
legg í einni fjölskyldu.
„Ég er eiginlega hættur að klippa,
klippi lítið meira en Samúel Einars-
son, sem tók við af mér,“ segir Vilberg
Valdal, oftast nefndur Villi Valli, en
Samúel byrjaði sem nemi hjá honum
1964. Heiðursborgarinn segir að hann
hafi helst vilja læra mublusmíði eða
rafvirkjun en það hafi ekki gengið
eftir. „Það var lítið að gera í þessum
greinum á þessum tíma, líka í Reykja-
vík. Þá bauð Árni Matthíasson, rakari
hérna á Ísafirði, mér að koma til sín
sem nemi. Ég hugsaði málið og fannst
allt í lagi að prófa þetta enda var
þriggja mánaða uppsagnarfrestur í
náminu og ég hafði þá möguleika á að
halda áfram eða fara í eitthvað annað.“
Rakarameistarinn segir að einn
kostur við rakaraiðnina sé að ekki
þurfi mikinn húsakost til þess að sinna
starfinu. „Ég áttaði mig á því að víða
mætti klippa þó að aðstæður væru
ekki upp á það besta.“
Hann var hjá Árna í átta ár og opn-
aði þá eigin rakarastofu á Silfurgötu 5,
þar sem Norska bakaríið var áður. Þar
var hann í eitt ár en flutti síðan í
Hafnarstræti 11. Harry Herlufsen,
danskur hárskeri, átti fasteignina, en
flutti til Danmerkur 1959 og bauð Villa
Valla húsið til kaups auk þess sem
hann tók við stjórn Lúðrasveitar Ísa-
fjarðar af Dananum og stjórnaði henni
í níu ár. „Hann bjó í íbúðinni uppi og
rak rakarastofuna á neðri hæðinni,“
segir Villi Valli. „Það var stutt í vinn-
una og ég gat gengið þangað þurrum
fótum í öll þessi ár.“ Hann flutti síðan
stofuna í Silfurgötu 9 árið 2001 og þar
heldur fyrrnefndur Samúel upp-
teknum hætti.
Villi Valli segir að reksturinn hafi al-
mennt gengið vel. „Nema þegar bítla-
tískan kom og menn hættu að láta
klippa sig. Þetta voru mikil viðbrigði
og margir rakarar hættu en Sammi
var nýbyrjaður að læra hjá mér og ég
hélt áfram.“
Tónlistin í hávegum höfð
Tónlistin hefur spilað stórt hlutverk
í lífi Villa Valla. Hann spilaði lengi með
Lúðrasveit Ísafjarðar og fleiri böndum
og er enn að skemmta fólki.
„Við spilum þrír saman á dans-
leikjum fyrir eldri borgara,“ segir
hann en hinir eru Baldur Geirmunds-
son og Magnús Reynir Guðmunds-
son. Hólmgeir, sonur Baldurs, hefur
líka spilað með þeim. Auk þess spilar
tónlistarmaðurinn með Harmoniku-
félagi Vestfjarða.
Hann spilar á mörg hljóðfæri og
hefur spilað á þremur hljómdiskum.
Þeir eru Villi Valli, sem kom út 2000, Í
tímans rás 2008 og Ball í Tjöruhúsinu
árið eftir, þar sem hann lék með Salt-
fisksveit Villa Valla. „Ég var í hljóm-
sveitum og var með hljómsveitir frá
því ég var unglingur,“ áréttar tón-
listarmaðurinn.
Villi Valli maður sex
kynslóða fyrir vestan
Ljósmynd/Samúel Einarsson
Rakarinn með fjóra ættliði Villi Valli rakarameistari, Tryggvi Þór
Guðmundsson og Heimir Tryggvason fyrir aftan. Magnús Þór Heimisson
í stólnum með Heimi Snæ Magnússon. Auk þess klippti Villi Valli Guðjón
Kristjánsson (f. 1880, d. 1954) og Guðmund Guðjónsson (f. 1910, d. 1984).
Tónlistarmaðurinn hefur klippt sex ættliði í beinan karllegg
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Vestfirðingar Ólafur Kristjánsson við píanóið og Villi Valli með nikkuna.