Morgunblaðið - 29.04.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
595 1000
AlicanteFlugsæti
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
turr
br
ey
Báðar leiðir m/tösku og handfarangri
Flugsæti frá kr.
39.850
Verð m.v. 10. maí til 17. maí
Helgi Bjarnason
Atli Steinn Guðmundsson
Fertugur íslenskur sjómaður var
skotinn til bana í þorpinu Mehamn í
Finnmörku, nyrsta fylki Noregs,
aðfaranótt laugardags. Tveir menn,
einnig íslenskir sjómenn, voru
handteknir í kjölfarið, annar er
grunaður um morðið og hinn er tal-
inn meðsekur. Lögreglan mun fara
fram á að þeir verði úrskurðaðir í
gæsluvarðhald þegar þeir verða
leiddir fyrir dómara í dag.
Lögreglan fékk tilkynningu um
klukkan hálffjögur að íslenskum
tíma aðfaranótt laugardags um að
karlmaður hefði verið skotinn í
íbúðarhúsi í Mehamn. Maðurinn
var á lífi en alvarlega særður þegar
lögreglan kom á vettvang en endur-
lífgun bar ekki árangur. Skömmu
eftir klukkan átta um morguninn
fékk lögreglan ábendingu um að
bifreið hefði verið ekið ofan í skurð
skammt frá Gamvik sem er þorp í
nágrenninu. Talið er að mennirnir
hafi verið á bílnum.
Vopnaðir sérsveitarmenn voru
kallaðir til og handtóku þeir menn-
ina tvo eftir ábendingu í húsi í
Gamvik. Þeir komu út þegar lög-
reglan kom og veittu ekki mót-
spyrnu við handtökuna, að því er
VG hefur eftir talsmanni lögregl-
unnar.
Yfirheyrðir næstu daga
Fram kom í fréttatilkynningu
sem lögreglan í Finnmörku sendi
frá sér í gær að sá sem grunaður er
um verknaðinn, 35 ára gamall Ís-
lendingur, hafi ekki verið yfirheyrð-
ur þar sem hann hafi neitað því.
Lögreglan stefnir hins vegar að því
að yfirheyra hann og annan Íslend-
ing, 32 ára gamlan, sem grunaður
er um að vera meðsekur í málinu, á
næstu dögum.
Þeim hafa verið skipaðir verj-
endur. „Ég hitti skjólstæðing minn
í dag en ég get ekki tjáð mig neitt
um okkar samskipti eins og er,“
sagði Vidar Zahl Arntzen, lögmaður
aðalákærða, í samtali við mbl.is í
gær.
Báðir mennirnir verða leiddir
fyrir dómara í Vadsø í dag. Þá fer
lögreglan fram á fjögurra vikna
gæsluvarðhald og einangrunarvist
yfir árásarmanninum og vikulangt
gæsluvarðhald yfir yngri mann-
inum. Sá hefur neitað aðild að mál-
inu að því er norskir fjölmiðlar hafa
eftir lögmanni hans.
Sérfræðingar frá norsku rann-
sóknarlögreglunni vinna að rann-
sókn málsins með lögreglunni í
Finnmörku. Hinn látni verður kruf-
inn í Tromsø. Lögreglan hefur ósk-
að eftir upplýsingum um mennina
frá íslensku lögreglunni.
Viðurkenndi á Facebook
Hinn látni og sá sem grunaður er
um verknaðinn eru hálfbræður.
Fram kemur í tilkynningu lögregl-
unnar að hinn grunaði hafi haft í
hótunum við fórnarlambið fyrir
árásina og hafi þær verið til rann-
sóknar hjá lögreglunni. Sett hafði
verið nálgunarbann á manninn
gagnvart hinum látna 17. apríl síð-
astliðinn. Honum var tilkynnt um
það símleiðis. Lögreglan vill ekki
tjá sig um eðli hótananna, að svo
stöddu, vegna rannsóknarhags-
muna.
Áður en sá grunaði var handtek-
inn birti hann færslu á Facebook
þar sem hann virðist viðurkenna að
hafa orðið bróður sínum að bana og
talar um svívirðilegan glæp sem
muni elta hann alla ævi en jafn-
framt að þetta hafi ekki átt að fara
svona, hann hafi ekki ætlað að
hleypa af. Biður hann fólkið sitt
fyrirgefningar.
Talsmaður lögreglunnar stað-
festir við NTB-fréttastofuna að lög-
reglan viti um Facebook-færsluna
og hafi aflað upplýsinga um hana.
Segir hann að samskipti viðkom-
andi á Facebook kunni að vera mik-
ilvæg gögn við rannsóknina.
Hinn látni hét Gísli Þór Þór-
arinsson og var fertugur sjómaður,
búsettur í Mehamn. Hann lætur
eftir sig unnustu og fósturbörn.
Mikil áhrif í samfélaginu
Mehamn er kyrrlátt tæplega 800
manna sjávarþorp í Finnmörku.
Það er höfuðstaður sveitarfélagsins
Gamvik þar sem búa alls rúmlega
1.100 manns. Er þetta nyrsta byggð
Noregs og hefur verið talin með fá-
tækustu sveitarfélögum landsins.
Trond-Einar Olaussen bæj-
arstjóri segir málið harmleik í sam-
félagi þar sem allir þekki alla. Það
muni hafa mikil áhrif á samfélagið
og hvetur íbúa til þess að hlúa hver
að öðrum. Sveitarstjórnin bauð
þeim íbúum sem vildu áfallahjálp
og andlegan stuðning.
Íslendingar efldu Gamvik
Um þrjátíu Íslendingar búa í Me-
hamn og Gamvik. Upphafið má
rekja til þess að tveir menn frá
Vestfjörðum, Albert Már Eggerts-
son og Haraldur Árni Haraldsson,
fluttu þangað eftir bankahrun og
stofnuðu útgerð og fiskvinnslu í
Gamvik. Þeir byggðu fyrirtækið
upp með íslenskum aðferðum. Þetta
upplýsir Þóra Ragnheiður Björns-
dóttir sem var prestur í Mehamn
og Gamvik í nokkur ár frá árinu
2012. Á ýmsu gekk í rekstrinum í
upphafi en þeir félagar eru miklir
dugnaðarmenn og hafa náð að efla
hann smám saman. Þegar þeir
byrjuðu var Gamvik í mikilli nið-
urníðslu en reksturinn varð mikil
lyftistöng fyrir samfélagið, að sögn
Þóru.
Nokkrir Íslendingar fluttu til
Gamvikur til að vinna á sjó og í
landi hjá fyrirtækinu sem hét Sæd-
is í upphafi en nú Gamvik Seafood
og einnig kom fólk frá Austur-
Evrópu til að vinna í fiski. Síðar
fluttu nokkrir Íslendingar til Me-
hamn til að vinna og gera sjómenn
einnig þaðan út.
Þóra segir að á meðan hún var í
Mehamn og Gamvik hafi verið ágæt
samheldni meðal Íslendinganna.
Þeir hafi til dæmis hist 17. júní og
félagarnir í Sædisi hafi lagt sitt af
mörkum með því að selja fólkinu
fisk á góðu verði.
Lögreglan krefst gæsluvarðhalds
Íslenskur sjómaður skotinn til bana í Norður-Noregi Íslendingur grunaður um verknaðinn
og annar talinn meðsekur Sá grunaði var til rannsóknar vegna hótana og sætti nálgunarbanni
„Hver einasti maður í Mehamn
er í sjokki,“ sagði Sigurður
Hjaltested, sjómaður í Mehamn,
í samtali við mbl.is í fyrradag.
„Við vorum góðir félagar. Þessi
drengur var alveg yndislegur og
ég get sagt þér að stórt skarð er
höggvið í samfélag Íslendinga
jafnt og Norðmanna.“
Minningarathöfn um Gísla
Þór var haldin í Mehamn á laug-
ardag auk þess sem kirkjan í
þorpinu Gamvik var höfð opin.
Athöfnin var tilfinningaþrungin,
að því er norskir fjölmiðlar
höfðu eftir prestinum. „Athöfn-
in var mjög falleg og þangað
komu allir, Íslendingar og Norð-
menn. Hann var aufúsugestur á
hverju heimili hér,“ segir Sig-
urður.
Skarð höggvið
í samfélagið
MINNINGARSTUND
Ljósmynd/Travel-Finmark
Mehamn Kirkjan í Mehamn gnæfir yfir höfnina. Þangað komu um 70 íbúar á minningarstund á laugardagskvöld.
Mehamn í Finn mörku
Í nyrsta fylki Nor egs
N
O
R
EG
U
R
F I N N L A N D
RÚSSLAND
S
V
Í Þ
J
Ó
Ð
Osló
Stokkhólmur
HelsinkiBjörgvin
Tromsø
Mehamn
Mehamn
Staðsetning: 71°N
Sveitarfélag: Gamvik
Íbúafjöldi: 779
He
lsi
ng
jab
ot
n
Eystrasalt
Noregshaf
Norður-
Atlantshaf
Barentshaf
„Heildarplássið stækkar um ca. 100
fermetra og verður tæplega 400 fer-
metrar eftir stækkun,“ segir Sigrún
en hluti af stækkuninni fer undir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Vínbúðin á Eiðistorgi á Seltjarn-
arnesi verður stækkuð umtalsvert á
næstunni. Hefur Vínbúðin tryggt
sér pláss við hlið núverandi versl-
unar og verður það tekið til notk-
unar síðar á árinu.
Talsverðar breytingar hafa verið á
nýtingu verslunarpláss á Eiðistorgi.
Nú síðast hvarf Íslandspóstur á
braut og við það losnaði álitlegt
pláss. Ferðaskrifstofan Mundo
tryggði sér það og við það losnaði
rými við hlið Vínbúðarinnar. Í því
rými var um árabil rekinn söluturn.
Samkvæmt upplýsingum frá Sig-
rúnu Ósk Sigurðardóttur, aðstoð-
arforstjóra ÁTVR, stækkar verslun
Vínbúðarinnar umtalsvert við þetta.
verslunarrými og hluti undir lager-
rrými.
Vínbúðin á Eiðistorgi er að
margra mati orðin nokkuð lúin í
samanburði við þær sem endurnýj-
aðar hafa verið síðustu ár. Kröfu-
harðir viðskiptavinir hafa til að
mynda kvartað undan því að ekki er
kælir í versluninni eins og víðast
annars staðar. Sigrún staðfestir að
þetta standi til bóta með tilvonandi
stækkun: „Já, það er áformað að
setja upp kæli í búðinni,“ segir hún í
svari við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Sigrún segir hins vegar að tafir
hafi orðið á afhendingu húsnæðisins
og ekki liggi fyrir hvenær það fáist
afhent. „Það er ekki ólíklegt að
framkvæmdir við stækkun búð-
arinnar tefjist til haustsins úr því
sem komið er,“ segir Sigrún Ósk.
Morgunblaðið/Hari
Eiðistorg Vínbúðin verður stækkuð
síðar á árinu um 100 fermetra.
Fá loks kæli í Vínbúðina
Vínbúðin á Eiðistorgi verður stækkuð á árinu