Hugrún - 01.08.1923, Side 8

Hugrún - 01.08.1923, Side 8
6 iw(tT^T^OT?Ci ^nh Saga eftir §#§#Í -iN^NM Steindór Sigurðsson. r I—' G var á leið til Kaupmannahafnar í þjónustu óvissunnar. — *—' Á flótta undan hefndarsvipum æskuafglapa og auðnu- leysisörlaga. Æfin bak við mig Iá í brotum, og framundan eygði ég aðeins dimrna eyðimörk auðnuleysis og endurgjalds. Ég hafði á liðnum dögum spilað hátt og tapað eins og fleiri. — Nú flúði ég án þess að vita hvað við mér tæki, — hvar ég lenti. — — Hæddur og svikinn af tilfinningarlausu léttúðarkvendi flúði ég til að hverfa og gléyma. — — — — — En í farþegarúminu var glaumur og gleði. Ég reyndi sem svo oft áður að njóta augnabliksins, — en veitti það örðugt. Milliferðaskipið hafði komið við í Færeyjum. Allmargt nýrra farþega hafði bæst við í hinn glaðværa hóp, sem fyrir var, þar á meðal þrjár barnungar stúlkur. Ég sat inni í reykingasalnum, þegar einn farþeginn, — ungur og ærslagjarn náungi, er ég þekti frá fo.nu fari, — kom inn með ferð mikilli. »Hvað gengur á fyrir þér?« spurði ég stuttur í spuna. Ég var að lesa »Rökfræði konunnar!« eftir einhvern kvenhaturs- postula. »Hefirðu séð færeysku fegurðina, — þá nýkomnu?« »Nei,« svaraði ég og allur lestraráhugi hvarf á svipstundu.

x

Hugrún

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugrún
https://timarit.is/publication/1335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.